Fréttablaðið - 09.12.2019, Page 48

Fréttablaðið - 09.12.2019, Page 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Guðmundar Brynjólfssonar BAKÞANKAR Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og Glerártorgi Akureyri Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is Segðu bless við myndlykilinn og hæ við Jibbí! Nova TV er ókeypis sjónvarpsveita á netinu þar sem þú finnur allar helstu sjónvarpsstöðvar á Íslandi auk spennandi áskriftaleiða! nú er komið barnaefni á íslensku á Nova TV! 890 kr./mán. Prófaðu frítt í 7 daga! FRÍTT KAFFI Í DESEMBER Nú hafa verið, fyrir einhver mistök, auglýst laus til umsóknar tvö embætti. Það vantar ríkissáttasemjara og líka háskólarektor. Á sama tíma er ríkislögreglustjóri settur af og fylgja honum aurar. Í sömu mund sækir fólk um embætti útvarpsstjóra og þar ríkir slík leynd að umsækjendur vita varla sjálfir hvort þeir hafa sótt um eða ekki. Þetta teldist varla til tíðinda ef ekki kæmi til sú staðreynd að það er algjör óþarfi að eyða almannafé í svona auglýsingar. Okkur var nefni- lega nýverið sagt og sýnt að hægt væri að færa fólk á milli embætta hjá ríkinu án þess að spandera í aug- lýsingar og fokdýr ráðningarferli. Þannig var ríkissáttasemjari gerður að ráðuneytisstjóra á dögunum og naut hún nafnleyndar alla leið í ráðuneytið, því er hægt að sameina nafnleynd og tilfærslur þannig að þeir sem haldnir eru nafnleyndar- blæti geta haldið því, þrátt fyrir engar umsóknir. Tilfærslukerfið hefur líka þann frábæra kost að það sameinar skilvirkni, sparnað og dásamlegar uppákomur. Á sparnað og skilvirkni hefur þegar verið bent. Dásamleg- heitin liggja í því að Gústav Brynjar Nílsen, fangavörður á Litla-Hrauni, getur vaknað upp sem skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, Inga Hrútfjörð þingvörður getur á góðum degi orðið útvarpsstjóri (með eða án nafnleyndar), Bjarmi Straumland, ljósamaður í Þjóð- leikhúsinu, kæmi sterkur inn sem fangavörður, um leið og Stígur Leið- ólfsson myndi færast úr lögreglunni á Ísafirði í embætti vegamálastjóra. Peningalaus gæti svo vegamálastjóri orðið ríkislögreglustjóri. Þegar vitur maður hefur skrifað þetta upp fyrir þig, lesandi góður, þá sérðu að þetta er harla gott kerfi sem getur ekki klikkað. Og ef þú ert opinber starfsmaður þá skaltu nú þegar hringja í vinnuveitanda þinn og fá upplýsingar um hvar þú átt að mæta í fyrramálið. Tilfærsla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.