Fréttablaðið - 09.12.2019, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Guðmundar
Brynjólfssonar
BAKÞANKAR
Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is
Segðu bless við myndlykilinn og hæ við Jibbí!
Nova TV er ókeypis sjónvarpsveita á netinu þar sem
þú finnur allar helstu sjónvarpsstöðvar á Íslandi auk
spennandi áskriftaleiða!
nú er komið
barnaefni á íslensku
á Nova TV!
890 kr./mán.
Prófaðu
frítt í
7 daga!
FRÍTT KAFFI
Í DESEMBER
Nú hafa verið, fyrir einhver mistök, auglýst laus til umsóknar tvö embætti.
Það vantar ríkissáttasemjara og
líka háskólarektor. Á sama tíma er
ríkislögreglustjóri settur af og fylgja
honum aurar. Í sömu mund sækir
fólk um embætti útvarpsstjóra og
þar ríkir slík leynd að umsækjendur
vita varla sjálfir hvort þeir hafa sótt
um eða ekki.
Þetta teldist varla til tíðinda ef
ekki kæmi til sú staðreynd að það
er algjör óþarfi að eyða almannafé í
svona auglýsingar. Okkur var nefni-
lega nýverið sagt og sýnt að hægt
væri að færa fólk á milli embætta hjá
ríkinu án þess að spandera í aug-
lýsingar og fokdýr ráðningarferli.
Þannig var ríkissáttasemjari gerður
að ráðuneytisstjóra á dögunum
og naut hún nafnleyndar alla leið í
ráðuneytið, því er hægt að sameina
nafnleynd og tilfærslur þannig að
þeir sem haldnir eru nafnleyndar-
blæti geta haldið því, þrátt fyrir
engar umsóknir.
Tilfærslukerfið hefur líka þann
frábæra kost að það sameinar
skilvirkni, sparnað og dásamlegar
uppákomur. Á sparnað og skilvirkni
hefur þegar verið bent. Dásamleg-
heitin liggja í því að Gústav Brynjar
Nílsen, fangavörður á Litla-Hrauni,
getur vaknað upp sem skólameistari
Verkmenntaskóla Austurlands,
Inga Hrútfjörð þingvörður getur
á góðum degi orðið útvarpsstjóri
(með eða án nafnleyndar), Bjarmi
Straumland, ljósamaður í Þjóð-
leikhúsinu, kæmi sterkur inn sem
fangavörður, um leið og Stígur Leið-
ólfsson myndi færast úr lögreglunni
á Ísafirði í embætti vegamálastjóra.
Peningalaus gæti svo vegamálastjóri
orðið ríkislögreglustjóri.
Þegar vitur maður hefur skrifað
þetta upp fyrir þig, lesandi góður,
þá sérðu að þetta er harla gott kerfi
sem getur ekki klikkað. Og ef þú ert
opinber starfsmaður þá skaltu nú
þegar hringja í vinnuveitanda þinn
og fá upplýsingar um hvar þú átt að
mæta í fyrramálið.
Tilfærsla