Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 20196 Starfsdagar leik- skóla verða fimm AKRANES: Frá og með næsta starfsári leikskóla á Akranesi verða fimm skipulagsdagar á leikskólum bæjarins í stað fjög- urra nú. „Skóla- og frístundaráð mælist til þess að skipulagsdag- ar leik- og grunnskóla verði eins margir sameiginlegir og kostur er og skólarnir verði í samstarfi um ákvörðun um skipulagsdaga skólanna,“ segir í bókun ráðsins sem bæjarráð hefur einnig stað- fest. Með því að fjölga starfs- dögum vill skóla- og frístunda- ráð stuðla að bættu starfsum- hverfi. -mm Bæta fjarskipti á heiðinni HOLTAV.H: Neyðarlínan ohf. hefur sótt um framkvæmdaleyfi vegna jarðstrengs og trémast- urs á Holtavörðuheiði í þeim tilgangi að bæta fjarskiptasam- band á þjóðveginum. Byggð- arráð Borgarbyggðar sam- þykkti á síðasta fundi sínum að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli umsóknarinnar. -mm Ráðin skólastjóri REYKHÓLAR: Sveitar- stjórn Reykhólahrepps hefur samþykkt tillögu mennta- og menningarmálanefndar sveit- arfélagsins og falið sveitarstjóra að ganga til samninga við Önnu Björgu Ingadóttur um ráðningu hennar í starf skólastjóra Reyk- hólaskóla. Ásta Sjöfn Kristjáns- dóttir er starfandi skólastjóri, tók við starfinu af Valgeiri Jens Guðmundssyni sem hætti á ára- mótum. Anna Björg er kennari í Mosfellsbæ en kenndi m.a. við Reykhólaskóla árin 2014-2016. -mm N4 sækir um styrki VESTURLAND: Sjónvarps- stöðin N4 á Akureyri hefur að undanförnu sent styrkbeiðn- ir til vestlenskra sveitarfélaga vegna sjónvarpsþáttagerðar í landshlutanum. Akraneskaup- staður ákvað nýverið að styrkja stöðina um hálfa milljón króna. Sambærilegu erindi, sem sent var Borgarbyggð, var afgreitt á fundi byggðarráðs í liðinni viku, með þeim hætti að vísa umsókn- inni til umfjöllunar í atvinnu,- markaðs- og menningarnefnd sem leggja skal mat á það hvort og þá með hvaða hætti þáttagerð af þessu tagi fellur að áherslum varðandi markaðsstarf sveitar- félagsins. -mm Leikskólabygging í útboð BORGARBYGGÐ: Ríkis- kaup, fyrir hönd Borgarbyggð- ar, hafa óskað eftir tilboðum vegna byggingaframkvæmdar við Grunnskóla Borgarfjarð- ar á Kleppjárnsreykjum. Um er að ræða 540 fermetra nýbygg- ingu á einni hæð sem mun hýsa leikskólann Hnoðraból auk að- stöðu fyrir starfsfólk leikskólans og grunnskólans. Tilboðsfrest- ur er til 8. maí næstkomandi og nánari upplýsingar er að finna á útboðsvef Ríkiskaupa. -arg Kviknaði í út frá kamínu SKORRADALUR: Síðdeg- is á laugardaginn var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út á fyrsta forgangi vegna bruna í sum- arhúsi í Fitjahlíð í Skorradal. Slökkviliðsmenn frá Borgarnesi, Hvanneyri og Reykholti fóru á staðinn. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra fór betur en á horfðist. Kvikn- að hafði í klæðningu út frá kam- ínu. Var viður og annað bygg- ingarefni við útblástursrör farið að sviðna þannig að mikinn reyk lagði um húsið. Segir Bjarni að litlu hefði mátt muna. Fólk sem dvaldi í húsinu hafi hins vegar brugðist skjótt við; beitt slökkvi- tæki og vatni úr garðslöngu á eld- inn og náð þannig að koma í veg fyrir að eldur yrði laus. Tjón varð því minniháttar og fólki varð ekki meint af, að sögn Bjarna. -mm Eldur kom upp um borð í báti BREIÐAFJÖRÐUR: Undir kvöld á mánudaginn í liðinni viku kom upp eldur um borð í fiski- bátnum Æsi BA þar sem hann var staddur að veiðum um tíu sjómílur vestur af Flatey á Breiðafirði. Þrír menn voru um borð. Viðbragðs- aðilar voru ræstir út á hæsta við- búnaðarstigi. Þyrla Landhelgis- gæslunnar TF-LIF var þegar köll- uð út sem og flugvél Gæslunnar og varðskipið Týr. Sjóbjörgunarhóp- ar björgunarsveitanna á Snæfells- nesi voru einnig kallaðir út. Þegar flugvél Gæslunnar kom að bátnum klukkan 18:09 voru mennirnir þrír komnir í flotgalla. Enginn reykur var þá sjáanlegur í bátnum, en hiti engu að síður greinanlegur með hitamyndavél í flugvélinni. Það var svo áhöfnin á Hafey BA sem tók Æsi í tog skömmu síðar og var báturinn dreginn til Brjánslækj- ar. Björgunarbáturinn Guðfinna frá Stykkishólmi fylgdi bátunum inn til Brjánslækjar í öryggisskini. Þegar ljóst þótti að mesta hættan var um garð gengin var Björgu frá Rifi, varðskipinu, þyrlu og flugvél- inni snúið við úr útkallinu. -mm Byggja raðhús á Reykhólum Í fundargerð sveitarstjórnar Reyk- hólahrepps frá 9. apríl síðastliðn- um segir að fallið hafi verið frá þeim áformum að bjóða í alútboði út byggingu íbúða við Hólatröð á Reykhólum en semja þess í stað við Hrafnshóla ehf. um verkið. Sveitar- stjóra var falið að semja við Hrafns- hóla um byggingu raðhússins. Verður miðhús byggingar minnk- að og kostnaður lækkaður sem því nemur, að því fram kemur í funda- gerð. Fyrirhuguð íbúðabygging verður í eigu húsnæðissjálfseignar- stofnunar. Gengið verður til samn- inga við nágrannasveitarlög um stofnun félagsins. Sveitarstjóra var jafnframt falið að gera breytingar á fjárhagsáætlun fyrir næsta fund í samræmi við 12% hlutdeild sveit- arfélagsins í stofnframlagi vegna íbúðanna. Voru áformin samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu. Jó- hanna Ösp Einarsdóttir óskaði eftir að bókað yrði að hún teldi óábyrgt að samþykkja verksamning við Hrafnshóla. „Vanda þarf til verka í svona stórri framkvæmd og tel- ur undirrituð það óábyrgt að sam- þykkja verksamning við Hrafnshóla áður en búið er að skoða aðra kosti líka. Hins vegar telur undirrit- uð brýnt að halda áfram fyrirhug- uðum byggingaráformum og að skoða aðra kosti áður en ákvörðun er tekin,“ segir í bókuninni. Árný Huld Haraldsdóttir lét einnig bóka að þar sem hún kveðst samþykk því að sveitarstjórn gangi til samn- inga við Hrafnshóla en að sér þyki leitt að verktökum að svæðinu hafi ekki verið gefinn kostur á að bjóða í verkið. arg Vinna við Lýsulaug á Snæfellsnesi er í fullum gangi þessa dagana og ganga framkvæmdir vel eftir að vora tók. Vetrarmánuðirnir reynd- ust iðnaðarmönnum frekar erfiðir en mikill snjór safnaðis fyrir í laug- argarðinum. Búið er að steypa upp laugina sjálfa ásamt heitum potti, en annar steyptur pottur var fyr- ir og verður hann í notkun áfram. Nú er verið að vinna við lagnakerfi og fyllingar og verður að því loknu farið í vinnu við frágang umhverf- is laugina og pottana. Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdum mun ljúka og laugin opnuð en Snæfells- bær hefur auglýst eftir sumarstarfs- fólki til að standa vaktina. þa Svipmynd frá Reykhólum tekin síðasta sumar. Ljósm. mm. Styttist í að vinnu við Lýsuhólslaug ljúki

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.