Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 23 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vakin á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessu- horn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausn- inni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessu- horn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birtist). Dregið verð- ur úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni. Lausnin á síðustu krossgáta var: „Svartur“. Heppinn þátttakandi er: Þuríður Skarphéðinsdóttir, Esjuvöllum 9, 300 Akranesi. Kyrr Blika Varma Atorka Skipar Sár Innyfli Áhald Jötnar Rogginn Gláp Þorn Hvílt Venja Samþ. Ræfill Kven- fugl Sigar Afi Pönnu- kaka Árla Kák Kusk Ilma Ernir For- sjálni Spil 4 5 3 Óttast Púkinn Gufu 19 11 Öldu- gjálfur Skeljar Gort Eilíf Á fæti 21 Ísl.st. Erti 7 16 Svefn- órar Lofa Listar Stærð Kona Gat Skapar Rák Aumar 1 Glaðar Aðstoð 12 Mögl Spjalla Rénar 13 50 Sýll Hlass Alda Tveir um eins Háll Suddi Óeirð Tengið Snótin 15 Útlimir Spurn Gátt Sáðlönd Blóm Deigt Hryggur Von Óþekkt Ævi 6 4 Samhlj. Frjó- angi 18 Sér um Hlust Örla 9 Kvað Húmar Sk.st. Rit Dæld Flan Sefa Kraft Hvína 17 2 150 Fersk Leit Þrýst- ingur Reipi 20 Enni Mauk Titill Slit 8 10 Slæm Vein Púka Rugl Korn Ofn 50 500 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Æ M E Ð G L Ó F A L A G Á A M Æ R A D R Á T T U R M Á I S T A N D U R S N I K K A A U G A V O G U G G I A R T L L L A F A M Á L F R Í H A L R Á G A B B A R A Ð A N T I N M O R Ú A R S A G U R G A Ð E I N N F A T A R A U S I Ð S K Æ R I N S N A U Ð A R V A L N Ý Ö S I N M A Ó A R N Á L N F U M E L N A I R P A J Ó Á R A R T E G U N D K Ó G N P Ú G I L E Ö U K N I P P I A U L Ö G G N A L L A N N R E I S I N N S V A R T U R L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við sýn- ingar á gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjart- an Ragnarsson, í leikstjórn Skúla Gautasonar. Sýningin hefur þegar verið sýnd í Sævangi á Ströndum við góðar viðtökur. Leikfélag Hólma- víkur er eitt af örfáum áhugaleik- félögum á landinu sem rígheldur í þá hefð að fara í leikferðalög með sýningar sínar. Hópurinn ákvað að þessu sinni að leggja land undir fót í fimm daga með fimm sýningar og ætlar meðal annars að sýna í Dala- búð í Búðardal miðvikudaginn 24. apríl, Samkomuhúsinu í Grund- arfirði 25. apríl og Lyngbrekku á Mýrum föstudaginn 26. apríl. Allar sýningar hefjast klukkan 20. Leikarar eru tíu; fimm konur og fimm karlar. Sumir þeirra eru gam- alreyndar kanónur og aðrir eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviði með Leikfélagi Hólmavíkur. Sögusvið Nönnu systur er samkomuhús í ís- lensku sjávarþorpi árið 1996. Þar stendur til að setja upp söngleik um Fjalla-Eyvind. Óvæntar heimsókn- ir og uppákomur setja þó strik í reikninginn. Það gengur á ýmsu og útkoman er vægast sagt skrautleg. mm Eins og áður hefur komið fram, verður fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, þriðjudaginn 30. apríl næstkomandi um upphaf íslenskr- ar dægurtónlistar, sem fylgt verð- ur eftir með lifandi tónlist í Reyk- holtskirkju. Það er Trausti Jóns- son, sem sér um dagskrá kvöldsins. Hann er best þekktur sem veður- fræðingur en er jafnframt áhuga- maður um tónlist. Kvöldstundina hefur hann nefnt „Var hún á leið- inni?“ Svipast um eftir upphafi ís- lenskrar dægurtónlistar – með fá- einum tóndæmum. Dagskráin hefst með fyrirlestri Trausta í Bókhlöðu Snorrastofu kl. 20 um efni og höfunda „tónlistar- léttmetis“ áranna 1901 til 1926 og þar flytur Bjarni Guðmundsson fyrsta dægurlagið frá 1901 með söng og gítarleik. Á tónleikum, að erindi loknu, verða lög eftir 13 höf- unda, úrval úr safni þriggja tuga verka sem fundist hafa, flutt af söngvurum og hljóðfæraleikurum. Tónlistarhópurinn, sem unnið hef- ur með Trausta að verkefninu, hef- ur fengið vinnuheitið Leitarsveitin og hún er skipuð tónlistarfólki úr héraði. Það eru þau Bjarni Guð- mundsson (söngur og gítar), Jónína Erna Arnardóttir (píanó), Olgeir Helgi Ragnarsson (tenór), Ólafur Flosason (óbó), Steinunn Pálsdóttir (harmónika), Theodóra Þorsteins- dóttir (sópran) og Zsuzsanna Budai (píanó). Snorrastofa fagnar afrakstri áhugamannsins Trausta Jónsson- ar og hvetur íbúa til að láta hann ekki fram hjá sér fara. Boðið verður að venju til kaffiveitinga, aðgangur er kr. 1000 og vakin er athygli á að kvöldið hefst kl. 20. -fréttatilkynning Nanna systir sýnd á Vesturlandi Trausti Jónsson leitar upphafs íslenskrar dægurlagatónlistar Auðarskóli Ábyrgð – Ánægja – Árangur SK ES SU H O R N 2 01 9 Auðarskóli óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður skólaárið 2019-2020 Kennarar í Auðarskóla Við Auðarskóla er laus 100% staða umsjónarkennara á unglingastigi og 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi fyrir skólaárið 2019-2020. Umsjónarkennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina eru: Íslenska Samfélagsfræði Erlend tunugmál Val Umsjónarkennsla á yngsta stigi, meðal kennslugreina eru: Stærðfræði Íslenska Náttúrufræði Samfélagsfræði Enska Mikilvægt er að umsækjendur búi að: Færni í samskiptum Frumkvæði í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Góð íslenskukunnátta Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í teymiskennslu. Umsóknarfrestur er til 1.maí 2019 Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla. Umsóknir um starfið berist á netfangið keli@audarskoli.is. Í umsókninni þurfa að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Upplýsingar um starfið veitir Þorkell aðstoðarskólastjóri í síma 4304757. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.