Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 21 hvernig til myndi takast og fékk ég ekki betur séð þegar ég losaði fyrri fötuna en að það væri í fínu lagi, að vísu ekki horfið, en farið að mýkj- ast mikið. Jarðvegsbætandi vökvi Af og til er vökva tappað af föt- unum, hann má nota annað hvort beint í niðurfallið til stíflulosun- ar eða blanda 1/20 og nota sem blómaáburð. Þar sem ég byrjaði á þessu síðvetrar fóru fyrstu aftapp- anir í vatnslása, mér fannst það ekki góður tími til að bera mikið á af sterkum blómaáburði í svart- asta skammdeginu. Með hækkandi sól fór ég hins vegar að nýta þynnt- an vökvann sem áburð. Á norsku heimasíðunni bokashi.no er einnig bent á að það megi frysta vökvann til seinni notkunar og að spennandi sé að taka grill viðarkol (ath. ekki pressuðu kubbana heldur kolað- an trjávið) og hella vökvanum yfir, geyma í plastboxi með loki og nýta þannig vökvann yfir veturinn. Með þessu fáist mjög góður jarðvegsbæt- ir með langtíma virkni, sem hægt sé að blanda í jarðveg. Ilmar eins og maltbrauð Bokashi aðferðin á uppruna sinn í Japan frá níunda áratugnum, þar sem japanski vísindamaðurinn Teuro Higa setti saman gerla- og gersveppablöndu, sem vinnur vel saman og er uppistaðan í hvatan- um, sem ilmar eins og maltbrauð eða gamalt rúgbrauð þar sem hann er blanda af melassa, bakteríum og gerlum og er þar helst að nefna mjólkursýrugerlana Lactobacillus plantarum og Lactobacillus casei. Einnig Rhodopseudomonas pal- ustris og Rhodospirillum rubrum, jarðvegsbakteríur sem finnast í jarð- vegi og vatni. Með þessum gerlum er svo gersveppurinn Saccharomy- ces cerevisiae, sem bæði er notað- ur við bakstur og ölgerð auk þess að vera í meltingarfærum (bokashi- norge.no). Til eru margar heimasíður um þessa tegund moltugerðar, en ég hef að mestu stuðst við þær síður, sem sjá má hér fyrir neðan. Áður- nefnda norska síðu, bokashinorge. no er með miklum fróðleik, m.a. aðgengilegar spurningar og svör um praktísk mál, síðu frá Planet Natural, sem haldið hefur úti fróð- leik um lífræna ræktun frá 1991 og svo eina ástralska síðu. Lifað í sátt við náttúruna Að lokum; umfang þess sorps sem sótt er heim á mitt heimili hefur minnkað mjög mikið og ekki mik- il fyrirhöfn að koma sér af stað með moltugerð. Á tímum umræðu um framlag hvers og eins til þess að minnka sitt sótspor tel ég moltu- gerð vera gott spor í rétta átt og auðvelt að tileinka sér þennan lífs- stíl, hvort sem búið er í blokk í þétt- býli eða úti í sveit. Okkur er öllum skylt að gera okkar besta til að lifa í sátt við náttúruna og moltugerð úr þeim lífrænu afgöngum sem til falla á heimilinu er einfalt mál. Allir græða; sjálf fáum við næringarefnin út í garð til okkar (eða annarra með garð, ef við erum ekki svo hepp- in að eiga garð) og sveitarfélagið okkar þarf ekki að sækja eins mik- ið sorp heim til okkar og ekki held- ur að standa undir kostnaði við eins mikla urðun, enda er það stefna ís- lenskra sveitarfélaga að draga sem mest úr urðun á næstu árum. Gangi ykkur öllum vel í lífi með Bokashi, eða annarri moltugerð. Þórunn Reykdal. Slóðir inn á heimasíður þær, sem ég hef stuðst við, ykkur til áframhald- andi fróðleiks um þessa tegund jarð- gerðar: https://bokashinorge.no/hva-er- bokashi/ https://www.planetnatural.com/ composting-101/indoor-compost- ing/bokashi-composting/ https://www.bokashi.com.au/ Eyja- og Miklaholtshreppur óskar sveitungum sínumog öðrum Vestlendingum gleðilegs sumars. Hvalarðarsveit óskar íbúum Hvalarðarsveitar og Vestlendingum gleðilegs sumars. Grundararðarbær óskar íbúum Grundararðar og öðrum Vestlendingum gleðilegs sumars -gefur fyrirheit um yndislegt íslenskt sumar Stykkishólmur Vökvalosun. Fata 2 að fyllast. Báðar fötur fullar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.