Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 24.04.2019, Blaðsíða 15
15 Félagar í Stéttarfélagi Vesturlands sem greiða til Festu lífeyrissjóðs Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 14. maí 2019, á Grand Hótel, Sigtúni, Reykjavík og hefjast fundarstörf kl. 18:00. Félagið á rétt á að senda 4 atkvæðisbæra fulltrúa til fundarins og þarf að hafa aðra fjóra félaga tiltæka til vara. Félagið auglýsir hér með eftir framboðum til þess að fylla þessi sæti. Framboðum þarf að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands Sæunnargötu 2a fyrir 30. apríl. Stjórn Stéttarfélags Vesturlands S K ES SU H O R N 2 01 9 Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur í Reykholti Sími 433 8000 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is Þriðjudagurinn 30. apríl 2019 kl. 20 í Bókhlöðu Snorrastofu og Reykholtskirkju Greint verður í erindi frá því „tónlistar léttmeti“, sem varð - veist hefur frá árunum 1901– 1926, og á tónleikum, sem á eftir fylgja, flytur tónlistarfólk úr héraðinu viðeigandi tóndæmi. Kaffiveitingar Aðgangur kr. 1000 Verið velkomin Athugið breyttan tíma Snorrastofa í Reykholti Fyrirlestrar í héraði „Var hún á leiðinni?“ Svipast um eftir upphafi íslenskrar dægurtónlistar – með fáeinum tóndæmum Trausti Jónsson er umsjónarmaður kvöldsins Karlakórinn Svanir Verður með tónleika að Laxárbakka Hvalfjarðarsveit laugardaginn 27. apríl klukkan 20:30. Aðgangseyrir kr. 2.000 (erum ekki með posa) Lokatónleikar fyrir söngferð kórsins til Hollands. 40 ára Síðastliðinn miðvikudag var síð- asta haftið sprengt í nýjum Dýra- fjarðargöngum, sem liggja milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vest- fjörðum. Lengd ganganna í bergi er 5.300 metrar en auk vegskála beggja megin eru göngin 5,6 kíló- metrar. Fyrsta sprenging Dýra- fjarðarganga var gerð í september 2017 Arnarfjarðarmegin en í októ- ber sama ár Dýrafjarðarmegin. Nú er áætlað að verkinu verði að fullu lokið 1. september 2020. Áætlað- ur kostnaður Vegagerðarinnar af framkvæmdinni auk eftirlits er um níu milljarðar króna og er um lang- stærstu einstöku framkvæmd til samgöngubóta að ræða á landinu, frá því göng voru gerð undir Vaðla- heiði. Byggður er nýr vegur beggja vegna gangamunna. Nýir vegir eru u.þ.b. þrír kílómetrar Arnarfjarðar- megin og 4,8 km Dýrafjarðarmeg- in, samtals um 7,8 km auk teng- inga. Í tengslum við vegagerð að göngunum er verið að byggja nýj- ar brýr á Mjólká (14 m) og Hófsá Stór dagur í samgöngusögu Vestfjarða Kort sem sýnir hvar göngin liggja. (16 m). Einnig var byggð bráða- birgðabrú á Hófsá. Verktakar við gangagerðina eru Metrostav a.s. og Suðurverk hf. mm verkalýðsfélaganna í 15 ár. Við jög- uðumst og rifumst um flesta hluti. Ef ekki daglega þá vikulega. En eitt vorum við sammála um og það var að þessi launamunur verkakvenna og -karla gengi ekki. Ár frá ári unn- um við því markvisst að því að laga þetta. Það tók stanslausa vinnu í 18 ár,“ segir Jón. „Ég er alltaf dálítið montinn af því að hafa átt þátt í að koma þessu í eðlilegt horf,“ bætir hann við. Samofin samfélaginu Járnblendiverksmiðjan á Grundar- tanga hefur sett svip sinn á samfé- lagið í nágrenni sínu allar götur frá því hún var reist. Fjölmargir starfs- menn hennar, og síðar annarra fyr- irtækja á Grundartangasvæðinu, eru búsettir á Akranesi, Hvalfjarð- arsveit, Borgarnesi og Borgarfirði. Það er ekki fyrr en í seinni tíð að stærri hluti starfsfólksins en áður kemur til vinnu frá höfuðborgar- svæðinu, eða frá því Hvalfjarðar- göngin voru grafin. Járnblendi- verksmiðjan á raunar sinn þátt í því að göngin komu til sögunnar. „Á tíunda áratugnum var Vegagerðin að kanna hvernig botn Hvalfjarðar lægi, en þá voru menn farnir að ræða um hugsanleg göng undir fjörðinn. Kom að því að leigja þurfti skip frá Noregi til að mæla botninn. Það kostaði 50 milljónir á þeim tíma og Vegagerðin taldi sig ekki hafa efni á því. Íslenska járnblendifélagið var á þeim tíma þokkalega sett og sömu- leiðis óbundið öðrum hvað varðaði fjármál Grundartangahafnar, sem félagið var þá eini notandinn að. Í sameiningu ákváðu því Íslenska járnblendifélagið, Grundartanga- höfn, Skilmannahreppurinn gamli og Sementsverksmiðjan á Akranesi að leggja 12,5 milljónir frá hverjum og einum í púkkið til að kosta þess- ar botnmælingar. Þær rannsókn- ir gerðu það mögulegt að hægt var að hanna og síðar grafa Hvalfjarð- argöng,“ segir Jón. „Járnblendi- félagið var síðan einn af stofnað- ilum Spalar, sem annaðist fram- kvæmdina og rekstur ganganna allt þar til þau voru gefin ríkinu síðast- liðið haust,“ segir Jón Sigurðsson að endingu. kgk/ Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness. Starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins við störf á á níunda áratugnum. Úr stjórnstöð kísiljárnsverksmiðjunnar á Grundartanga á tíunda áratugnum. Guðmundur Torfason á vaktinni við stjórntækin. Benoný Kári Halldórsson við töppun á níunda áratug síðustu aldar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.