Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.2019, Side 12

Skessuhorn - 24.04.2019, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 201912 Við Aðalgötu 20 í Stykkishólmi eru þrjár konur saman með opin verk- stæði þar sem hægt er að koma og fylgjast með þeim vinna. Sigríður Erla Guðmundsdóttir er með verk- stæðið Leir7 þar sem hún vinnur með leir frá Ytri-Fagradal á Skarðs- strönd í Dölum. Lára Gunnars- dóttir er með verkstæði sem heitir Smávinir og þar vinnur hún muni úr íslensku birki frá Hallormsstaða- skógi og Greta María Árnadóttir er með Gullsmiðju Gretu Maríu þar sem hún vinnur skartgripi úr eð- almálmum. Saman kalla þær verk- stæðin Smiðjur og á morgun, sum- ardaginn fyrsta, bætist við Smiðj- urnar kaffihúsið Jakobína þar sem Sigríður Erla ætlar að bjóða upp á alla hefðbundna kaffidrykki og bakkelsi. Blaðamaður Skessuhorns hitti nýverið þær stöllur að máli. Stykkishólmur kallaði til hennar Sigríður Erla flutti úr Hafnarfirði í Stykkishólm árið 2007 og opnaði verkstæðið Leir7. „Ég flutti eig- inlega til leirsins,“ segir Sigríður Erla og hlær. „Það varð ýmislegt til þess að ég ákvað að nálgast leirinn en hann fæ ég frá Höllu Steinólfs- dóttur í Ytri-Fagradal. Ég var svo lánssöm að kynnast pabba henn- ar, Steinólfi Lárussyni, og kynnti hann mig fyrir leirnum sínum. Ég ákvað að kynna mér íslenska leirinn enn betur, prófaði leir víða úr Döl- unum. Ég ákvað svo að vinna með leirinn úr Ytri-Fagradal og kalla ég leirinn sem ég vinn með Steinólf,“ segir Sigríður Erla. Spurð hvers vegna hún flutti í Stykkishólm en ekki í Dalina, þar sem leirinn er að finna, svarar hún því að Stykk- ishólmur hafi einfaldlega kallað til hennar. „Ég hafði tengingu í Dali mjög lengi en við eigum eyjar á Hvammsfirði. Eftir að við fórum að sigla í Stykkishólm fundum við hvað þessi bær er heillandi og ég hugsaði alltaf með mér að hér gæti ég búið einn daginn. Sonur okk- ar flutti svo hingað með fjölskyld- una sína og við ákváðum að fylgja á eftir. Hér var ég nálægt eyjunum í Breiðafirði, leirnum í Ytri-Fagradal og syni mínum og fjölskyldu, sem er að vísu flutt héðan í dag en okk- ur líður mjög vel í Stykkishólmi,“ segir Sigríður Erla. „Þú stjórnar ekkert honum Steinólfi“ Hvað er það við leirinn úr Dölun- um sem heillar Sigríði Erlu? „Það finnst leir víða um landið en leir- inn í Dölunum er alveg einstakur. Landið okkar er ungt og leirinn því líka frekar ungur en hann er líklega elstur í Dölunum, sem gerir hann betri en annan íslenskan leir. Að mínu mati hefur leirinn ekki notið sannmælis, hann er dökkur og sum- ir vilja meina að ómögulegt sé að vinna með hann. Mér þykir þetta ekki réttlát gagnrýni á Dalaleirinn en hann er að mínu mati einn sá fallegasti. Ég held að fólk sem seg- ir að ómögulegt sé vinna með hann nálgist hann ekki á réttan hátt. Það er lykilatriði að spyrja leirinn hvað hann vill vera og vinna með hann út frá því, þú stjórnar ekkert hon- um Steinólfi, þú spjallar við hann,“ segir hún og hlær. Flísaverksmiðja í Dölunum Sigríður Erla segir Íslendinga ekki ennþá hafa uppgötvað leirinn al- mennilega og að þar sé vannýtt auðlind sem enn eigi eftir að nýta. „Við höfum flest farið til útlanda og séð múrsteinshús og flísar á gólfum og þökum. Þetta er allt gert úr leir. Leirinn er frábært jarðefni sem fólk hefur nýtt um allan heim í aldir en við Íslendingar höfum lítið kom- ist upp á lagið með að nýta hann. Dalamenn vildu á sínum tíma opna flísaverksmiðju en það varð ekk- ert úr því, eflaust því á þeim tíma var svo auðvelt að nálgast flísar frá öðrum löndum. En svo hefur þetta breyst og í dag erum við að flytja inn flísar frá öðrum heimshlutum, en hvað gerir það fyrir umhverf- ið okkar,“ spyr Sigríður og heldur áfram: „Þetta er náttúrulega frá- leitt þegar við hugsum út í það að við höfum þetta góða hráefni hér í jörðunni okkar. Kannski þegar fólk áttar sig á að það væri mun betra að gera okkar eigin flísar, þá verði reist flísaverksmiðja í Dölunum,“ seg- ir Sigríður Erla brosandi. Aðspurð segist hún sjálf hafa gert gólfflísar úr leirnum frá Ytri-Fagradal og er mjög ánægð með útkomuna. Kaffihúsið Jakobína opnað á morgun Spurð hvaðan talan 7 kemur í nafni verkstæðisins hlær Sigríður og seg- ir 7 vera tölu sem hafi bara alltaf fylgt henni. „Þetta er talan mín sem hefur bara alltaf verið tengd mér á einhvern hátt. Ég hef alltaf miðað við þessa tölu en ég veit ekki hvað- an það kemur. Ætli það sé ekki því 7 er þægileg viðmiðunartala. Til dæmis þegar ég er að gera marga eins hluti þykir mér hæfilegt að gera sjö í einu. Ég held að við höf- um flest einhverja tölu sem fylgir okkur en flestir hugsa ekki um það. Ég reyni ekki að hundsa það sem fylgir mér svona sterkt og hef bara tekið sjöunni fagnandi,“ segir Sigríður og hlær. Við snúum okk- ur því næst að kaffihúsinu sem Sig- ríður Erla ætlar að opna í húsnæði Smiðjanna á morgun, Sumardag- inn fyrsta. Kaffihúsið hefur fengið nafnið Jakobína eftir frænku Sig- ríðar Erlu sem býr í Kaupmanna- höfn. „Jakobína er gríðarlega hæfi- leikarík listakona og ég ætla að vera með verk eftir hana á veggjum kaffi- hússins svo mér fannst vel við hæfi að nefna kaffihúsið eftir henni,“ út- skýrir Sigríður Erla. Á kaffihúsinu verður hægt að fá alla hefðbundna kaffidrykki auk þess sem Sigríður ætlar að bjóða upp á bakkelsi. Fyr- ir utan verkstæðið er búið að koma upp fallegri aðstöðu með gulum bekkjum og borðum þar sem fólk getur setið í sólinni. Inni er fal- leg setustofa með sófasetti innan um fallega muni sem framleidd- ir eru í Smiðjunum. „Það er nú saga að segja frá sófasettinu en ég fór í nytjaverslun í Reykjavík fyrir skömmu í leit að sófa til að hafa á kaffihúsinu. Ég sagðist vera að leita að nettum sófa og afgreiðslumaður- inn benti mér á þetta fína sett sem hann sagði að væri íslensk hönnun og smíði, framleitt í Stykkishólmi. Hér var nefnilega um árabil rekin húsgagnasmiðjan Aton og var þetta sófasett þaðan. Ég stóðst það ekki og keypti að sjálfsögðu settið og nú er það komið heim í Hólminn aft- ur,“ segir Sigríður Erla. Lára og íslenska birkið Lára Gunnarsdóttir er með verk- stæðið Smávini þar sem hún tálgar ýmsa hluti úr birki. Lára er Reyk- víkingur en flutti í Stykkishólm fyr- ir 27 árum. Fljótlega eftir að hún flutti í Stykkishólm byrjaði hún að tálga en fram að því hafði hún ver- ið að vinna við grafík. „Þetta var frekar öfugsnúið hjá mér. Ég bjó um tíma í Neskaupstað, þaðan sem stutt er í Hallormsstaðaskóg. Það var ekki fyrr en ég kom í Hólminn að ég uppgötvaði birkið sem efnivið í verkin mín, og hér var varla tré að sjá,“ segir Lára og hlær. Birkið fær Lára úr Hallormsstaðaskógi. „Ég lærði í grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í kjölfarið var ég mikið að vinna tvívíð verk, lítið að vinna með þrívídd eins og Smiðjur og kaffihús undir einu þaki í Stykkishólmi Sigríður Erla Guðmundsdóttir, Lára Gunnarsdóttir og Greta María Árnadóttir fyrir utan Smiðjur við Aðalgötu 20 í Stykkishólmi. Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður opnað kaffihúsið Jakobína undir sama þaki og Smiðjur. Ljósm. aðsend. Sigríður Erla er leirlistakona sem vinnur með leir úr Ytri-Fagradal í Dölum. Hér er hún að búa til skál.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.