Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2019, Side 4

Skessuhorn - 26.06.2019, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 20194 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Atferlisfræðingur í frístundum Til er sérstök fræðigrein sem nefnist hagnýt atferlisgreining. Sérfræðing- ar á því sviði vinna til dæmis með fólki sem á við námsörðugleika að stríða, vanda tengdan hegðun, svefni eða jafnvel félagsfærni. Mér finnst þetta sér- lega áhugavert fræðasvið og ef ég væri í dag þremur áratugum yngri gæti ég vel hugsað mér að leggja nám af þeim toga fyrir mig. Ef ég hins vegar byrjaði slíkt nám í dag næði ég varla mörgum árum á vinnumarkaði að því loknu og ætla því að láta það eiga sig. Hins vegar er ekkert sem mælir gegn því að hver og einn geti stundað sjálfstæðar atferlisrannsóknir hvar og hvenær sem hann vill svo lengi sem það telst innan eðlilegra velsæmismarka. Ég gæti til dæmis komið mér fyrir á svölunum heima hjá mér og rannsakað atferli þeirra sem mæta á sand- inn eða til baða í Guðlaugu við Langasand. Bílastæðin eru nefnilega fyrir framan hjá mér þaðan sem gefst býsna góð yfirsýn án þess að mikið beri á. Mér virðist þetta góða fólk vera spánýr hópur gesta á Akranesi og án þess að ég hafi fyrir því tölfræðileg gögn, áætla ég að ferðafólki hafi fjölgað um nokkur hundruð prósent í sumar. Staðurinn er því hástökkvari landsins í fjölda ferðafólks. Þarna koma jafnt þreytulegar þriggja barna mæður sem og fjölskyldur langt yfir vísitölustærð í Strumpastrætó með rennihurðum á hliðunum. Þarna kemur líka allskonar annað fólk sem aldrei hefur komið á Akranes áður jafnvel þótt það búi í sjónfæri í Reykjavík eða Keflavík. Þess- ari þróun fagna ég. Vissulega er svæðið fallegt og frábært að ekki þarf meira til að það komi en einn frían heitan pott. En ferðamenn eru vissulega víðar. Um liðna helgi var ég t.d. á ferð um nokkra fallega staði á Snæfellsnesi. Flestir ferðamenn voru við hinn þekkta Kirkjufellsfoss í Grundarfirði. Ég var með hundinn og meðan konan bar sig að við myndatökur settist ég út í móa í blíðviðrinu og hóf vísindalega atferlisgreiningu gesta. Íslenskur bílstjóri hópferðabíls gaf sig á tal við mig, þó aðallega hundinn. Kvaðst hann vera lukkulegur með að hafa fengið bíla- stæði fyrir rútuna við aðkomuna að fossinum, álíka miklar líkur væru til þess og að vinna í lottói. Hann kvaðst vera að koma í tuttugasta skipti í sumar að fossinum og á fleiri staði á Snæfellsnesi og líkaði vel atvinna sín. Þetta var svona opinn og skemmtilegur íslenskur maður, ekki típískur Ís- lendingur. Ég sagði honum að ég væri að kanna mannlífið. Þarna voru franskir, þýskir, sænskir, kínverskir og breskir ferðamenn. Fólki greinilega líkaði útsýnið vel og allir virtust þeir vera að leita að sama mótívinu, þar sem fossinn er í forgrunni og Kirkjufellið ægifagurt uppi í hægra horn- inu. Nánast allir voru að taka myndir á símana sína og flestir tóku svokall- aðar sjálfur, eða selfie, til óræks vitnisburðar um að hafa heimsótt staðinn. Fólkið virtist ánægt. Það voru líka gestir sem við sáum á Djúpalónssandi, á Hellnum og hvarvetna sem við komum. Það er gaman að spá í fólki. Það sama geri ég iðulega þegar ég er á ferð á erlendri grund. Sest þá gjarnan út við kaffihús og spái í mannlífinu. Svip- urinn á fólki, hvernig það ber sig, asinn, eða kyrrlátt mannlíf. Allt segir nefnilega svo vel til um viðkomandi þjóð. Grískir öldungar á Krít eru til dæmis hamingjusamari og þakklátari fyrir sinn hlut heldur en breskir við- kiptamenn í erli stórborgarinnar London, akandi um á svörtu Range Ro- verunum sínum. Já, það er gott að staldra við og skoða mannlífið. Hvort sem það er á Djúpalónssandi eða Dublin. Ég ætla að halda því áfram í sumar. Ég er nefnilega svo forvitinn, atferlisfræðingur í frístundum. Magnús Magnússon. Steinþór Árnason hefur selt Les- bókina Café á Akranesi og afhend- ir reksturinn í lok næsta mánað- ar. Þangað til verður reksturinn með óbreyttu sniði en auk þess að reka Lesbókina hefur hann tekið við rekstri á kaffihúsinu Skemm- unni á Hvanneyri. Spurður hvernig það hafi komið til að hann ákvað að sækja um rekstur Skemmunnar hlær hann og svarar; „ég er kannski pínu ruglaður. Ég sá þarna gott tækifæri og þegar ég sóttist eftir þessu var ég ekki búinn að selja Lesbókina og sá fyrir mér að reka þetta undir sama hatti.“ Auk kaffihúsareksturs hefur Steinþór keypt Sansa, fyrirtæki á Akranesi sem seldi í hverri viku matarpakka með öllum hráefnum sem til þarf í þrjár máltíðir ásamt uppskriftum fyrir fólk að elda matinn sjálft heima hjá sér. Sansa hefur þó ekki selt matarpakka frá því í mars. „Ég stefni á að byggja á sama fyrirkomulagi í Sansa en leggja meiri áherslu á veisluþjón- ustu. Ég vonast til að geta opn- að strax í haust en það verður að ráðast,“ segir Steinþór. Í Skemm- unni á Hvanneyri ætlar Steinþór að halda áfram að bjóða upp á hinn vinsæla vöfflubar og kaffidrykki. „Ég ætla svo að bæta við sölu á vörum úr héraði og verð með ís og allskonar matvörur frá bændum í nágrenninu. Ég mun líka fram- leiða matvöru í Sansa sem ég keyri daglega á Hvanneyri og sel þar, þá brauð og eitthvað slíkt,“ segir Steinþór. „Það er alltaf eitthvað í gangi hjá mér og alltaf spennandi tímar framundan,“ bætir hann við og hlær. arg Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, í sam- vinnu við Báta- og hlunnindasýn- inguna á Reykhólum, gengst nú fyr- ir bátahátíð á Breiðafirði í tólfta sinn dagana 5.-6. júlí næstkomandi. Nú verður breyting á því að þessu sinni eru allar gerðir báta velkomnar, ekki einvörðungu trébátar. Dagskráin hefst föstudaginn 5. júlí þegar kom- ið verður saman. Ráðgert er að þátt- takendur safnast saman á Reykhól- um en flóð er um klukkan 21 og þá er gott að setja bátana niður í höfn- inni fyrir þá sem koma með bátana landleiðina. Að morgni laugardagsins 6. júlí verður haldið frá Reykhólum um klukkan 9 og áformað að sigla að Ólafseyjum og þar skoðaðar gamlar mannvistarleyfar. Þaðan verður siglt í Sviðnur, þær skoðaðar, eigendur verða á staðnum og fræða þátttak- endur. Síðan verður siglt innanskerja til Skáleyja þar sem Jóhannes Geir Gíslason mun sýna gestum minjasafn sem hann hefur komið upp þar og fræða þátttakendur um lífið í eyjun- um. Jóhannes er þar fæddur og upp- alinn og var þar bóndi um tíma. Loks verður siglt til baka til Reykhóla og ráðgert að koma að landi um eða fyrir klukkan 20 en háflóð er um kl. 22 og því hentugt að taka bátana upp. Í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar er tekið fram að aðstæð- um ráði sjávarföll og veður mestu um hvernig siglingin verður og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefj- ast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð. „Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsyn- legur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Vinsamleg tilmæli eru að þátttakendur verði með bjargbelti og að sem flestir bátar séu búnir björg- unarbátum. Björgunarsveitin Heima- menn á Reykhólum mun verða með í för með öflugan bát sjófarendum til halds og trausts. Allir bátar eru velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi. Mjög góð aðstaða fyrir báta er á Reykhólum og einnig er mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn í Reykhólasveit. Báta- og hlunninda- sýningin verður opin og vafalaust hafa þátttakendur áhuga á að skoða hana,“ segir í tilkynningu. Sjá má fróðleik um starf félagsins og myndir frá fyrri bátadögum á vef- slóðinni batasmidi.is mm Í liðinni viku var undirritaður samn- ingur milli Borgarbyggðar og Ei- ríks J Ingólfssonar byggingameist- ara um byggingu fyrir leikskólann Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum. útboð vegna framkvæmdanna fór fram í apríl á þessu ári og í kjölfar þess gengið til samninga við Eirík. Í verkinu felst að byrjað verður að rífa gömlu heimavistarbygginguna og fyrrum skólastjóraíbúð sem eru sambyggð mannvirki við grunn- skólann á Kleppjárnsreykjum. Í kjölfar þess verður reist 540 fer- metra viðbygging á sömu lóð, sam- föst grunnskólahúsinu. Þar verður til húsa starfsemi leikskólans auk skrifstofurýmis bæði fyrir starfsfólk leikskólans og grunnskólans. Í frétt framkvæmdasviðs Borgarbyggðar kemur fram að framkvæmdir hefj- ast í þessari viku. Byggingareftir- litsmaður sveitarfélagsins verður Benedikt Magnússon hjá verkfræði- stofunni Víðsjá sem jafnframt hefur annast byggingarstjórn við stækkun Grunnskólans í Borgarnesi. mm Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri og Eiríkur J Ingólfsson handsöluðu verksam- ning síðastliðinn þriðjudag. Ljósm. Borgarbyggð. Framkvæmdir hafnar á Kleppjárnsreykjum Steinþór Árnason hefur selt Lesbókina Café á Akranesi. Ljósm. úr safni/ kgk Alltaf spennandi tímar hjá Steinþóri Árnasyni Björg og Kári búin undir flutning á Hanomac dráttarvél úr Skáleyjum í Flatey árið 1967 þegar Jóhannes Geir Gíslason var að hefja þar búskap. Bátadagar á Breiðafirði verða um aðra helgi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.