Skessuhorn - 26.06.2019, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 201916
Fyrir skömmu lá leið blaðamanns
að bænum Gufuá í Borgarhreppi.
Bæjarhúsin eru skammt frá þjóð-
veginum norðan við Borgarnes.
Heima fyrir er kyrrðin þó einstök
og ekki sést til næstu bæja. Á jörð-
inni stendur eitt lítið útihús og
íbúðarhús þeirra Sigríðar Ævars-
dóttur og Benedikts Líndal. Áin
rennur þarna skammt frá, hest-
arnir standa slakir í sólinni og þrír
geithafrar rölta makindalega um
rétt við útihúsin þegar blaðamann
ber að garði. Hundarnir Moli og
Hringur sjá um sitt svæði og fylgdu
blaðamanni síðasta spölinn að hús-
inu og heilsuðu honum svo kurteis-
ir um leið og Sigga og Benni komu
út. Við setjumst niður og rætt er
meðal annars um búskapinn, skóg-
rækt, hestamennsku og hnakka-
framleiðslu en auk þess um starf-
semi frumkvöðlafyrirtækisins Pure
Natura, sem framleiðir fæðubótar-
efni úr hliðarafurðum sem falla til
við slátrun sauðfjár.
Einskismannsland áður
en þau keyptu
Við fengum okkur sæti í borð-
króknum hjá þeim í litla notalegu
húsinu sem þau fluttu inn í fyr-
ir um hálfu ári ásamt yngstu dótt-
ur sinni, Jónu Rós sem er að ljúka
námi í Varmalandsskóla næsta vor.
Síðasti ábúandinn á Gufuá fór það-
an 1964 og síðan hefur bærinn ver-
ið í eyði. „Það áttu þetta nokkr-
ir menn úr Reykjavík en þeirra af-
komendur vildu selja jörðina svo
við ákváðum að kaupa. Það var
ekkert hér þegar við komum, jörð-
in var í raun einskismanns land og
umgengni fólks til samræmis við
það,“ segir Benni. „Þetta er krefj-
andi verkefni og langt frá því búið.
Hér var ekkert, hvorki hús, vegur,
vatn né rafmagn. Það tók okkur því
dálítinn tíma að ákveða að slá til.
Við hugsuðum alveg með okkur
að það væri sjálfsagt skynsamlegast
að finna eitthvað aðeins þægilegra.
En að sjálfsögðu gerðum við það
ekki, það er ekki okkar stíll,“ seg-
ir Sigga og hlær. „Við sjáum ekki
eftir því, staðsetningin er æðisleg í
alla stað og svo bjuggum við lengi
hér á næstu jörð, Staðarhúsum, og
þekkjum því næstum hverja einustu
þúfu á svæðinu. Hér getum við líka
byggt upp bara nákvæmlega eins
og við viljum en við erum alltaf að
brasa ýmislegt,“ bætir Benni við.
Rótgrónir Borgfirð-
ingar í dag
Sigga er fædd og uppalin í Kópa-
vogi en Benni í Reykjavík. Benni
flutti fyrst í Borgarfjörðinn árið
1978, þá 23 ára gamall. En hvern-
ig lá leiðin í Borgarfjörð? „Afi og
langafi voru tímabundið bænd-
ur hér í Borgarfirði svo ég kom
stundum hingað og var í sveit á
Þorgautsstöðum í Hvítársíðu. Ég
keypti svo Staðarhús, sem er bara
næsta jörð við okkur núna, þegar
ég var 23 ára. Svo við höfum ver-
ið hér í um það bil 100 ár myndi ég
segja,“ svarar Benni og hlær. „En
að öllu grínu slepptu þá myndi ég
nú alveg segja að við séum orðn-
ir rótgrónir Borgfirðingar núna.
Við prófuðum um tíma að flytja
austur á Hérað en hingað erum
við komin aftur,“ heldur Benni
áfram. „Það var samt æðislegt að
búa fyrir austan, ég vissi ekki að
það væri til svona gott veður á Ís-
landi eins og er þar. En vegalengdir
voru of miklar. Ferðalögin voru of
löng og kostnaðurinn of mikill því
allt okkar fólk var hér fyrir sunn-
an. Við sáum fram á að þetta yrði
bara erfiðara fyrir alla með tíman-
um, það voru að koma barnabörn
og þá langaði okkur að vera nær og
ákváðum því að snúa aftur áður en
við myndum festa of djúpar rætur
fyrir austan. Ég er samt ennþá ást-
fangin af Austurlandi eftir veruna
þar,“ segir Sigga.
LOGN – Landbúnaður
og náttúruvernd
á Mýrum
Eitt af því sem Sigga og Benni eru
að byrja á um þessar mundir er
verkefni sem gengur undir nafninu
LOGN. Um er að ræða samstarfs-
verkefni milli Bændasamtaka Ís-
lands og umhverfis- og auðlindar-
áðueytisins um samþættingu land-
búnaðar og náttúruverndar. Ákveð-
ið var að byrja verkefnið í Bárðardal
annarsvegar og á Mýrum hins veg-
ar, en Gufuá tilheyrir síðara svæð-
inu. „Þetta er verkefni sem unnið
hefur verið að í 20 ár erlendis en
er fyrst núna að byrja hér á Íslandi.
Þetta snýst um að koma náttúru-
vernd inn í landbúnaðinn - finna
leiðir sem henta til nýtingar land-
búnaðarsvæða um leið og unnið er
með aðstæðum og vistkerfi hverrar
jarðar á þann hátt að það viðhaldi
líffræðilegum fjölbreytileika, land-
fræðilegum sérkennum, kostum og
göllum. Hver og einn þáttttakandi
fer sína leið í verkefninu og okk-
ar vinkill er á ferðaþjónustu, land-
búnað og náttúruvernd,“ útskýr-
ir Sigga. „Það er dálítið verið að
mynda þetta verkefni jafn óðum því
við erum bara rétt að byrja á þessu
hér og fyrst um sinn verða það
bændur á Mýrum sem taka þátt.
Þegar þetta verður komið almenni-
lega í gang geri ég ráð fyrir að all-
ir sem vilja geti verið með. Þetta er
einn liður í þeim loftlagsverkefnum
sem Ísland hefur gengist undir að
taka þátt í, en þar hefur orðið mik-
il vitundarvakning undanfarið. Við
höfum lengi vitað af vandamálum
varðandi loftlagsmál og hætt-
unni sem því fylgir því hvernig við
göngum um jörðina. Ég er að verða
56 ára gömul og ég man ekki eft-
ir öðru en að loftlagsmál hafi verið
til umræðu þó markvissar aðgerðir
hafi vantað. Þegar ég var svona 12
ára gömul var mikið talað um gat
á ósonlaginu og að bregðast þyrfti
við því. Svo hafa ýmis vandamál
komið í umræðuna síðan en aldrei
hefur neitt almennilega verið gert,
fyrr en kannski núna. Nú erum við
að finna afleiðingarnar með bein-
um hætti á eigin skinni, til dæm-
is með hlýnun jarðar, og þá loksins
erum við að vakna af blundinum og
bregðast við,“ segir Sigga.
Gerðu
skógræktarsamning
Loftlagsmál og sjálfbærni hafa alla
tíð verði ofarlega í huga Siggu. „Ég
get samt ekki sagt að þetta hafi leg-
ið sérstaklega þungt á mér, ég er
ekki með neinn loftlagskvíða. En
þetta er málefni sem ég hef alltaf
verið mjög meðvituð um og reynt
að leggja mig fram við að gera mitt
fyrir umhverfið. Ég hef gríðarlega
trú á því hvað fólk getur gert ef það
vill og þess vegna óttast ég ekki það
sem er í gangi. Þetta er grafalvar-
legt mál en kannski óþarfi að vera
með kvíða yfir því nema við ætlum
að halda áfram á sömu braut. Við
þurfum bara að horfast í augu við
það, hvorki ýkja það eða draga úr,
og bregðast svo við, hvert og eitt.
Það er margt hægt að gera,“ segir
Sigga. Eitt af því sem hún og Bene-
dikt hafa ákveðið að gera fyrir um-
hverfið er að leggja um 70 hektara
af landi undir skógrækt. „Við vor-
um að skrifa undir tiltölulega stór-
an skógræktarsamning og erum að-
eins byrjuð í þeirri vinnu, eins og
að gera stíga og setja upp girðing-
ar. Markmiðið er að setja niður um
3000 plöntur í sumar, sem er frekar
lítið en við viljum bara byrja rólega
og undirbúa jarðveginn. Það hefur
líka varla verið hægt að planta trjám
fyrir þurrki,“ segir Sigga. „Það er
líka mikil vinna sem fer í undirbún-
ing svo það er nóg annað að gera
þetta sumar,“ bætir Benni þá við.
Benni’s Harmony
hnakkar í 20 ár
Benni hefur alla tíð verið á kafi í
hestamennsku og verið atvinnu-
maður á því sviði frá 16 ára aldri.
Hann heldur námskeið víða um
land auk þess sem hann og Sigga
hafa gefið út kennsluefni bæði
á DVD og í bókum og eru með
fleira á prjónunum. „Við höfum
núna verið að taka á móti erlend-
um hestamönnum sem staldra við
hjá okkur í svona þrjá daga og fá
að kynnast íslenska hestinum í ís-
lensku umhverfi. Ég hef verið með
stutt námskeið fyrir þá og far-
ið með hópana í reiðtúra hér í ná-
grenninu. Þetta er ákjósanleg stað-
setning upp á þetta að gera, einn
af fáum stöðum þar sem hægt er
að ríða um án þess að finna fyr-
ir bílaumferð svo upp á bæði ör-
yggi og sjarma er þetta frábær stað-
ur. Hér er nokkuð um reiðleiðir og
gerði ég margar þeirra sjálfur þegar
við bjuggum á Staðarhúsum,“ seg-
ir Benni. Fyrir um 20 árum byrjaði
hann einnig að selja hnakka undir
merkinu Benni‘s Harmony og segir
hann þá starfsemi hafa gengið vel.
„Ég var ekki á leiðinni út í þennan
bransa. Þetta kom nú til því ég var
að leita að hnakk fyrir mig og eitt
leiddi að öðru. Ég komst í samband
við verksmiðu í Sviss og hef verið
viðloðandi þá verksmiðju síðan,“
segir hann. „Þetta er svona hlið-
argrein hjá okkur sem við leggj-
um þó alltaf smá tíma aflögu í til að
sinna. Við erum ekki með verslun
en seljum hnakkana út frá vefsíðu.
Ég hef svo ferðast um landið með
hnakkakynningar þar sem fólk hef-
ur tækifæri til að prófa mismunandi
hnakka á sínum eigin hesti. Hnakk-
urinn er svo stór hluti af því hvern-
ig þú þjálfar hest og þá er svo mik-
ilvægt að hafa rétta hnakkinn,“ seg-
ir Benni.
Forystufé
sérstakur fjárstofn
Sigga og Benni eru einnig með
hross og hrossarækt í smáum stíl
auk þess sem þau eru með kind-
ur og geitur og rækta forystufé.
„Hænurnar eru svo væntanlegar
von bráðar,“ segir Sigga og hlær.
Sjálfbærni, náttúruvernd, hestamennska og forystufé er það sem hjónin á Gufuá brenna fyrir:
„Við erum orðnir rótgrónir Borgfirðingar núna“
Benni og Sigga að njóta sólarinnar á pallinum við húsið þeirra á Gufuá. Ljósm. arg.
Hér er Benni í göngutúr með tvo forystuhrúta í taumi og hundurinn Hringur fylgir
á eftir.
Sigga sest niður með einn geitahafur.