Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —5 8 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 9 . M A R S 2 0 2 0
Skildu símann
eir heima!
Úrlausn hjá Nova!
Streymdu
tónlist
Hafðu auga
með heilsunni
Hringdu án
símans
Nýtt!
eSIM
Gígja Þórðardóttir og Arnar Ólafsson sigruðu í tuttugu kílómetra göngu í Strandagöngunni í Selárdal á laugardaginn. Að sögn Ragnars Kristins Ólafssonar, stjórnarmanns í Skíðafélagi
Strandamanna, var gangan sú langstærsta hingað til, 231 þátttakandi, og keppt í ýmsum vegalengdum og aldursf lokkum. „Þetta var örugglega stærsti íþróttaviðburður nokkru sinni hér á
Ströndum”, segir Ragnar, sem sjálfur hefur tekið þátt í öllum tuttugu og sex Strandagöngunum. Gangan er ein af sjö göngum í mótaröðinni Íslandsgöngunni. MYND/JÓN HALLDÓRSSON
KJARAMÁL Samninganefndir sext-
án aðildarfélaga BSRB sátu enn hjá
Ríkissáttasemjara og reyndu að
ná samningi er Fréttablaðið fór í
prentun í gærkvöldi. Hafi ekki náðst
að semja eru nær sextán þúsund
manns nú í verkfalli sem hefjast átti
um miðnætti.
Viðsemjendur félaganna eru
ríkið, Samband íslenskra sveitar-
félaga og Reykjavíkurborg. Var
mislangt í land hjá félögunum í
gærkvöldi. Í ljósi stöðunnar vegna
kórónaveirunnar hafa verið veittar
undanþágur frá verkföllum fyrir
starfsfólk á Landspítalanum, innan
BSRB.
Mismunandi er milli félaga
hversu lengi verkföllin vara. Til
dæmis áttu sumir að hefja tveggja
daga verkfall á miðnætti en aðrir
að fara í ótímabundið verkfall. – gar
Sextán þúsund
á leið í verkfall
COVID-19 Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir segir engin merki um
að Íslendingar séu að missa tökin
á að hefta útbreiðslu kórónaveir-
unnar.
Fjöldi þeirra sem smitaðir eru
hér á landi af kórónaveirunni var
um mitt kvöld í gær kominn í 58. Af
þeim höfðu tíu smitast innanlands,
allir eftir samskipti við fólk sem
komið hefur nýlega til landsins frá
skíðasvæðum á Ítalíu og Austurríki.
Þórólfur Guðnason neitar því að
sú aðferð að beita sóttkví sé að missa
marks. Í gærkvöldi voru 461 sagðir
vera í sóttkví.
„Það hafa greinst þessi tíu smit
innanlands og ég held að við höfum
stoppað frekara smit þannig að við
náum að loka á þetta. En auðvitað
verða alltaf einhver göt og einhverj-
ir sem sleppa í gegn, vafalaust. En að
minnsta kosti erum við þó búin að
ná þessu og erum að vonast til að
það hægi á verulega þessu,“ segir
Þórólfur.
Almannavarnir eru enn á neyðar-
stigi en ekki hefur enn verið gripið
til þess að banna samkomur eins og
sagt hefur verið koma til greina.
Sóttvarnalæknir segir engan
hinna smituðu alvarlega veikan.
Áfram er mælst til þess að fólk sem
kemur frá Ítalíu eða skíðasvæðum í
Austurríki fari í sóttkví.
„Við erum að treysta á fólk að
fara eftir þessu, við höfum ekki
mannafla til að fylgja hverjum og
einum eftir nákvæmlega,“ segir
Þórólfur. Engin merki séu um smit
út frá þeim sem smitast hafa hér
innanlands. „En það er langur með-
göngutími þannig að maður veit svo
sem ekki hvað á eftir að gerast.“
Íslenskir ferðalangar sem verið
hafa í sóttkví á hóteli á Tenerife
koma heima núna í vikunni eftir
að hafa setið af sér tveggja vikna
sóttkví þar. – gar / sjá síðu 4
Ekki að missa tökin á veirunni
Sóttvarnalæknir telur beitingu sóttkvía hafa skilað góðum árangri við að hægja á útbreiðslu kórónaveir-
unnar. Í gærkvöldi höfðu 58 verið greindir með smit hérlendis, þar af tíu sem smituðust hér innanlands.
Almannavarnir eru enn
á svokölluðu neyðarstigi en
ekki hefur enn verið gripið
til þess að banna samkomur
eins og sagt hefur verið
koma til greina til að hefta
útbreiðslu kórónaveirunnar.
Þórólfur
Guðnason