Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 2
Þeir geta varla
neitað að skipta
þessu fyrir mig þegar í ljós
kemur að þetta er ekta.
Wei Li, myntsölumaður
Veður
Norðaustan 8-15 m/s, en lægir
eftir hádegi. Dálítil él um landið
norðan- og austanvert, en létt-
skýjað sunnan heiða. Frost 0 til
5 stig, en kólnar í kvöld. Austan
8-15 á morgun. SJÁ SÍÐU 14
Á hvítfextum öldum
Brimbrettamenn létu ekki kuldann í gær fæla sig frá að leika listir sínar í sjónum undan Gróttu á Seltjarnarnesi. Vöktu þeir mikla athygli þeirra
sem í landi voru. Stundum féllu brimbrettakapparnir og hurfu úr augsýn en risu óðar upp aftur og héldu leiknum ótrauðir áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFMÆLISTILBOÐ Í MARS
kr
.kg1790
FISKRÉTTUR
DAGSINS
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarinaSogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
SAMFÉLAG Kínverski myntsölu-
maðurinn Wei Li kveðst ekki kvíða
rannsókn Arion banka á mynt sem
hann skildi eftir í útibúi bankans á
Smáratorgi. „Þeir geta varla neitað
að skipta þessu fyrir mig þegar í
ljós kemur að þetta er ekta,“ segir Li
kokhraustur.
Li er kominn til síns heima í
borginni Shenzhen í Kína, sem er í
grennd við Hong Kong. Hann segist
ánægður með Íslandsferð sína, en
þó hafi verið gott að koma heim. „Ég
ver núna miklum tíma með dóttur
minni. Tengdamóðir mín er föst í
sóttkví vegna kórónaveirunnar í
Hubei-héraði, en hún hefur hjálpað
okkur mikið varðandi pössun og
annað,“ segir Li.
Eins og frægt er orðið fór Li í útibú
Arion banka á Smáratorgi meðan á
Íslandsdvöl hans stóð og sturtaði
þar tæplega 400 þúsund krónum af
illa farinni, íslenskri mynt í mynt-
talningarvélina. Hann var loks
stöðvaður, en ekki fyrr en hann
hafði fengið kvittanir úr vélinni
fyrir móttöku myntarinnar. Arion
banki neitaði að endingu að skipta
myntinni yfir í seðla fyrir Li og
freistaði þess að af henda honum
myntina til baka. Hinn kínverski
Li neitaði þá að taka við myntinni,
enda gæti hann ekki vitað hvort
þetta væri nákvæmlega myntin
hans.
Þegar heim til Kína var komið
ákvað Li að senda kínverskan vin
sinn, sem hann kynntist hér á landi,
í Arion banka til þess að ná í mynt-
ina sem bankinn neitaði að taka
við. „Ég skyldi kvittanirnar fyrir
myntinni eftir hjá honum. Þegar
hann fór í bankann var honum tjáð
að bankinn gæti ekki afhent honum
alla upphæðina,“ sagði Li og sagðist
hafa orðið undrandi yfir tíðind-
unum.
Í kjölfarið hafi hann fengið upp-
lýsingar um að Arion banki hefði
sent hluta af myntinni í rannsókn,
til þess að komast að því hvort hún
væri fölsuð eða ekki, eins og Frétta-
blaðið greindi frá. „Ég hef ekkert að
fela í þessu máli og bíð bara rólegur
eftir niðurstöðunni,“ segir Li.
Í svari frá Arion banka kemur
fram að ekki liggi fyrir hvenær von
er á niðurstöðu greiningarinnar. Þá
hafi fjöldi mynta sem sendur var
utan verið óverulegur.
bjornth@frettabladid.is
Kvíðir ekki niðurstöðu
myntrannsóknarinnar
Þrátt fyrir að Wei Li sé kominn til síns heima í Kína er enn engin niðurstaða
fengin varðandi andvirði fjögur hundruð þúsunda í mynt sem hann lagði inn
í Arion banka og fékk kvittanir fyrir. Bankinn lætur nú rannsaka myntina.
Wei Li bíður rólegur eftir niðurstöðu myntrannsóknar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ORKUMÁL Íbúar Fornhaga 11 til 17
vígðu á föstudag nýja hleðslustöð
fyrir rafmagnsbíla við fjölbýlis-
húsið.
„Við höfum verið að vinna að
ýmsu varðandi vistvænni lifnaðar-
hætti og þetta er liður í því,“ segir
Sólrún Harðardóttir, sem sæti á í
umhverfisnefnd húsfélagsins.
Aðspurð segir Sólrún að enginn
í húsinu eigi enn sem komið er raf-
magnsbíl, en þar eru 31 íbúð. „En ég
veit að það mun ekki líða á löngu
þar til fyrsti bíllinn kemur, því það
er ein fjölskylda sem ætlar að kaupa
bíl á næstunni,“ segir hún.
Hleðslustöðin kostaði alls um 3,4
milljónir en Reykjavíkurborg og
Orkuveitan veittu húsfélaginu eina
og hálfa milljón króna í styrk til að
koma henni upp.
– gar
Rafhleðslustöð á Fornhaga
Kampakátir íbúar við rafhleðslustöðina á Fornhaga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KJARAMÁL Fundað hefur verið und-
anfarna daga í vinnudeilu Eflingar
við Reykjavíkurborg en verkfall um
1.850 félagsmanna Eflingar hefur nú
staðið frá 17. febrúar.
Verkfallið hafur valdið röskun
á starfsemi leikskóla borgarinnar
og sorphirðu svo dæmi séu tekin.
Áfram var fundað í gær en þegar
Fréttablaðið fór í prentun höfðu
viðræður ekki skilað niðurstöðu.
Í fjölmiðlum í gær kom fram að
alvara væri í viðræðunum. Ekki
náðist í Sólveigu Önnu Jónsdóttur
formann Ef lingar né Viðar Þro-
steinsson framkvæmdastjóra í
gærkvöld.
– jþ
Viðræður
Eflingar og
borgarinnar
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð