Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 35
VIÐ TÓKUM LANGAN GÖNGUTÚR, BORÐ- UÐUM ÍS OG PLOTTUÐUM ÞESSA SÖGU. TÓNLIST Verk eftir: Vlasov, Rimskí-Korsa- koff, Tsjajkovskí, Rakhmanínoff, Rostovskaja og fleiri voru á dag- skránni. Flytjendur: Alexandra Cherny- shova, Sergei Telenkov og Kjartan Valdimarsson. Kaldalón í Hörpu Laugardaginn 29. febrúar. Nýafstaðin söngvakeppni Ríkisút- varpsins vakti kurr vegna tækni- klúðurs og fyrir það að kynnar keppninnar voru aðalstjörnurnar, ekki sjálfir keppendurnir. Þetta síðarnefnda var líka áberandi á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu á laugardaginn. Dagskráin saman- stóð af rússneskri ljóða- og óperu- tónlist eftir nokkur tónskáld, bæði gömul og ný. Á slíkum tónleikum er söngtextinn gjarnan hafður með í tónleikaskránni, auk fróðleiks um verkin og tónskáldin. Hér var tón- leikaskráin í skötulíki en kynnir, Gerður Bolladóttir, talaði á milli laganna. Verður að segjast eins og er að það kom ekki vel út. Gerður hefði mátt vera betur undirbúin, hún mislas suma titlana; það var eins og hún sæi stundum ekki almennilega það sem hún var að lesa. Auk þess endaði hún hverja kynningu á orð- unum „gerið þið svo vel“ sem varð fljótt leiðigjarnt og truflaði f læðið í dagskránni. Einlægni og tilfinningadýpt Þetta er synd, því að öðru leyti voru þetta prýðilegir tónleikar. Tveir söngvarar komu fram, þau Alexandra Chernyshova og Sergei Telenkov. Chernyshova söng afar fallega, sópranrödd hennar var einstaklega tær, fíngerð og fáguð, en samt kröftug. Víbratóið í rödd hennar var hárnákvæmt og mark- visst, túlkunin ávallt gædd einlægni og tilfinningadýpt. Telenkov, sem er bassabarítón, var smástund að hrökkva í gang, hann virtist óöruggur til að byrja með, en svo héldu honum engin bönd. Rödd hans var voldug og þróttmikil, túlkunin glæsileg og þrungin smitandi innlifun. Píanóleikarinn var Kjartan Valdimarsson, sem er fyrst og fremst þekktur í djassheiminum. Tónlistin nú var talsvert þyngri en maður hefur heyrt frá honum áður. Hann stóð sig einkar vel, leikur hans var skýr og blæbrigðaríkur, fullur af stemningu. Þannig lyfti hann söngnum upp í hæstu hæðir. Dásamleg tónlist Tónlistin sjálf var falleg, oft mjög svo. Þarna voru verk eftir Rimskí- Korsakoff (ekki Korskakoff, eins og kynnirinn sagði) og Tsjajkovskí, þar á meðal úr óperunni Jólöntu (ekki Lólöntu eins og kynnirinn sagði). Lögin voru hrífandi og and- rúmsloftið töfrakennt í meðförum söngvaranna og píanóleikarans. Rakhmanínoff var líka fyrir- ferðarmikill. Hann mun einu sinni hafa mælt svo: „Tónlist og ljóðlist eru systur; sorgin er þeirra móðir.“ Tónskáldið er auðvitað þekktast fyrir píanókonsertana sína, sem eru reglulega f luttir á sinfóníu- tónleikum, en færri vita að hann samdi forkunnarfögur sönglög og mögnuð kórverk. Þau eru vissulega melankólísk og dökk, en ákaflega heillandi engu að síður. Rakhman- ínoff hafði þá gáfu að geta samið undursamlegar laglínur, og þær voru margar á þessum tónleikum. Rúsínan í pylsuendanum var frumf lutningur á sjö lögum (svo- kölluðum rómönsum) eftir Antón- ínu Rostovskaju við ljóð eftir Pús- hkín. Kjartan sté þá til hliðar og Katie Buckley settist við hörpuna. Hún spilaði af öryggi og skýrleika, og léttleika þegar við átti. Alex- andra Chernyshova söng af smekk- vísi og fágun. Tónlistin var stórfeng- leg, fallega melódísk og stundum í einskonar þjóðlagastíl. Hún fór með mann í alls konar ferðalög. Tón- skáld sem nær slíkum áhrifum á svo sannarlega erindi við okkur öll. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Frábærir tónleikar, en kynningarnar trufluðu. Undursamlegar laglínur sem óþarfi var að kynna Alexandra Chernyshova. Dularfulla símahvarf-ið er splunk uný b a r n a b ó k e f t i r Brynhildi Þórarins-dóttur. Bókin kemur út í s vonef nd r i Ljósaseríu Bókabeitunnar, en bæk- urnar í seríunni eru sjálfstæðar sögur eftir ýmsa höfunda. „Þetta er spennusaga um krakka sem reyna að leysa dularfullt mál. Símar hverfa í hverfinu þeirra og finnast ekki aftur og þau þurfa að vinna saman til að leysa gátuna. Leitin ber þau á óvæntar slóðir því auðvitað blasir ekki alltaf við hver er sekur. Í forgrunni er yngri systir sem kemst á sporið, en fær síðan hjálp frá eldri systur sinni og vini hennar,“ segir Brynhildur. Dóttir pantaði bók „Þessi bók varð þannig til að yngsta dóttirin, þá níu ára, sem vill helst lesa spennusögur, dró mig út í göngutúr í lok síðasta árs. Hún sagði að það vantaði f leiri spennusögur fyrir sinn aldur þannig að nú þyrfti ég að fara að skrifa eitthvað spenn- andi. Við tókum langan göngutúr, borðuðum ís og plottuðum þessa sögu. Anna Kristín á því svolítið í bókinni.“ Börnin harðir yfirlesarar Brynhildur á þrjú börn á aldrinum tíu til fimmtán ára. Hún er spurð hvort þau fái að lesa handrit hennar yfir áður en hún sendir þau til útgef- anda. „Já, alltaf,“ segir hún. „Þau lesa mikið og skanna bókamarkaðinn. Þau segja mér hvernig bækur þeim finnst vanta og koma með ábend- ingar varðandi persónur og sögu- þráð. Þau hika ekki við að segja mér ef þeim finnst eitthvað ekki ganga upp. Þau hafa líka sterkar skoðanir á myndum og kápuhönnun, sem kemur sér oft vel. Við erum öll afar ánægð með myndirnar hennar Elín- ar Elísabetar Einarsdóttur í þessari bók.“ Bókin kemur út um vetur, sem Brynhildur segir mjög skemmti- legt. „Það er mjög gaman að gefa út bók þegar maður er ekki á kafi í jólabókaf lóðinu. Þetta er í raun frábær tími til að gefa út því börn sem fengu margar nýjar bækur um jólin eru akkúrat búin að lesa þær. Á þessum árstíma vantar krakkana eitthvað nýtt til að grípa í.“ Spennusaga um símahvarf Brynhildur Þórarinsdóttir er höfundur barnabókarinnar Dularfulla símahvarfið. Dóttir hennar vildi fá spennandi sögu. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Þetta er frábær tími til að gefa út, segir Brynhildur. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Fyrir börn frá 3 ára og uppúr! – S.J. Fréttablaðið – DV Barnasýning ársins 2015 ! Miðasala á tix.is og í Tjarnarbíó Allra síðustu sýningar! LAU . 01 . FEB kl . 13 00 LAU . 29 . FEB kl . 13 00 LAU . 14 . mar kl . 13 00 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 9 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.