Fréttablaðið - 09.03.2020, Side 35
VIÐ TÓKUM LANGAN
GÖNGUTÚR, BORÐ-
UÐUM ÍS OG PLOTTUÐUM ÞESSA
SÖGU.
TÓNLIST
Verk eftir: Vlasov, Rimskí-Korsa-
koff, Tsjajkovskí, Rakhmanínoff,
Rostovskaja og fleiri voru á dag-
skránni.
Flytjendur: Alexandra Cherny-
shova, Sergei Telenkov og Kjartan
Valdimarsson.
Kaldalón í Hörpu
Laugardaginn 29. febrúar.
Nýafstaðin söngvakeppni Ríkisút-
varpsins vakti kurr vegna tækni-
klúðurs og fyrir það að kynnar
keppninnar voru aðalstjörnurnar,
ekki sjálfir keppendurnir. Þetta
síðarnefnda var líka áberandi á
tónleikum í Kaldalóni í Hörpu á
laugardaginn. Dagskráin saman-
stóð af rússneskri ljóða- og óperu-
tónlist eftir nokkur tónskáld, bæði
gömul og ný. Á slíkum tónleikum er
söngtextinn gjarnan hafður með í
tónleikaskránni, auk fróðleiks um
verkin og tónskáldin. Hér var tón-
leikaskráin í skötulíki en kynnir,
Gerður Bolladóttir, talaði á milli
laganna. Verður að segjast eins og er
að það kom ekki vel út. Gerður hefði
mátt vera betur undirbúin, hún
mislas suma titlana; það var eins og
hún sæi stundum ekki almennilega
það sem hún var að lesa. Auk þess
endaði hún hverja kynningu á orð-
unum „gerið þið svo vel“ sem varð
fljótt leiðigjarnt og truflaði f læðið
í dagskránni.
Einlægni og tilfinningadýpt
Þetta er synd, því að öðru leyti
voru þetta prýðilegir tónleikar.
Tveir söngvarar komu fram, þau
Alexandra Chernyshova og Sergei
Telenkov. Chernyshova söng afar
fallega, sópranrödd hennar var
einstaklega tær, fíngerð og fáguð,
en samt kröftug. Víbratóið í rödd
hennar var hárnákvæmt og mark-
visst, túlkunin ávallt gædd einlægni
og tilfinningadýpt.
Telenkov, sem er bassabarítón,
var smástund að hrökkva í gang,
hann virtist óöruggur til að byrja
með, en svo héldu honum engin
bönd. Rödd hans var voldug og
þróttmikil, túlkunin glæsileg og
þrungin smitandi innlifun.
Píanóleikarinn var Kjartan
Valdimarsson, sem er fyrst og
fremst þekktur í djassheiminum.
Tónlistin nú var talsvert þyngri en
maður hefur heyrt frá honum áður.
Hann stóð sig einkar vel, leikur hans
var skýr og blæbrigðaríkur, fullur
af stemningu. Þannig lyfti hann
söngnum upp í hæstu hæðir.
Dásamleg tónlist
Tónlistin sjálf var falleg, oft mjög
svo. Þarna voru verk eftir Rimskí-
Korsakoff (ekki Korskakoff, eins
og kynnirinn sagði) og Tsjajkovskí,
þar á meðal úr óperunni Jólöntu
(ekki Lólöntu eins og kynnirinn
sagði). Lögin voru hrífandi og and-
rúmsloftið töfrakennt í meðförum
söngvaranna og píanóleikarans.
Rakhmanínoff var líka fyrir-
ferðarmikill. Hann mun einu sinni
hafa mælt svo: „Tónlist og ljóðlist
eru systur; sorgin er þeirra móðir.“
Tónskáldið er auðvitað þekktast
fyrir píanókonsertana sína, sem
eru reglulega f luttir á sinfóníu-
tónleikum, en færri vita að hann
samdi forkunnarfögur sönglög og
mögnuð kórverk. Þau eru vissulega
melankólísk og dökk, en ákaflega
heillandi engu að síður. Rakhman-
ínoff hafði þá gáfu að geta samið
undursamlegar laglínur, og þær
voru margar á þessum tónleikum.
Rúsínan í pylsuendanum var
frumf lutningur á sjö lögum (svo-
kölluðum rómönsum) eftir Antón-
ínu Rostovskaju við ljóð eftir Pús-
hkín. Kjartan sté þá til hliðar og
Katie Buckley settist við hörpuna.
Hún spilaði af öryggi og skýrleika,
og léttleika þegar við átti. Alex-
andra Chernyshova söng af smekk-
vísi og fágun. Tónlistin var stórfeng-
leg, fallega melódísk og stundum í
einskonar þjóðlagastíl. Hún fór með
mann í alls konar ferðalög. Tón-
skáld sem nær slíkum áhrifum á
svo sannarlega erindi við okkur öll.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Frábærir tónleikar, en
kynningarnar trufluðu.
Undursamlegar laglínur sem óþarfi var að kynna
Alexandra Chernyshova.
Dularfulla símahvarf-ið er splunk uný b a r n a b ó k e f t i r Brynhildi Þórarins-dóttur. Bókin kemur út í s vonef nd r i
Ljósaseríu Bókabeitunnar, en bæk-
urnar í seríunni eru sjálfstæðar
sögur eftir ýmsa höfunda.
„Þetta er spennusaga um krakka
sem reyna að leysa dularfullt mál.
Símar hverfa í hverfinu þeirra og
finnast ekki aftur og þau þurfa að
vinna saman til að leysa gátuna.
Leitin ber þau á óvæntar slóðir því
auðvitað blasir ekki alltaf við hver
er sekur. Í forgrunni er yngri systir
sem kemst á sporið, en fær síðan
hjálp frá eldri systur sinni og vini
hennar,“ segir Brynhildur.
Dóttir pantaði bók
„Þessi bók varð þannig til að yngsta
dóttirin, þá níu ára, sem vill helst
lesa spennusögur, dró mig út í
göngutúr í lok síðasta árs. Hún sagði
að það vantaði f leiri spennusögur
fyrir sinn aldur þannig að nú þyrfti
ég að fara að skrifa eitthvað spenn-
andi. Við tókum langan göngutúr,
borðuðum ís og plottuðum þessa
sögu. Anna Kristín á því svolítið í
bókinni.“
Börnin harðir yfirlesarar
Brynhildur á þrjú börn á aldrinum
tíu til fimmtán ára. Hún er spurð
hvort þau fái að lesa handrit hennar
yfir áður en hún sendir þau til útgef-
anda. „Já, alltaf,“ segir hún. „Þau lesa
mikið og skanna bókamarkaðinn.
Þau segja mér hvernig bækur þeim
finnst vanta og koma með ábend-
ingar varðandi persónur og sögu-
þráð. Þau hika ekki við að segja mér
ef þeim finnst eitthvað ekki ganga
upp. Þau hafa líka sterkar skoðanir
á myndum og kápuhönnun, sem
kemur sér oft vel. Við erum öll afar
ánægð með myndirnar hennar Elín-
ar Elísabetar Einarsdóttur í þessari
bók.“
Bókin kemur út um vetur, sem
Brynhildur segir mjög skemmti-
legt. „Það er mjög gaman að gefa
út bók þegar maður er ekki á kafi
í jólabókaf lóðinu. Þetta er í raun
frábær tími til að gefa út því börn
sem fengu margar nýjar bækur um
jólin eru akkúrat búin að lesa þær.
Á þessum árstíma vantar krakkana
eitthvað nýtt til að grípa í.“
Spennusaga um símahvarf
Brynhildur Þórarinsdóttir er höfundur barnabókarinnar
Dularfulla símahvarfið. Dóttir hennar vildi fá spennandi sögu.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Þetta er frábær tími til að gefa út, segir Brynhildur. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Fyrir börn frá 3 ára og uppúr!
– S.J. Fréttablaðið
– DV
Barnasýning ársins 2015 !
Miðasala á tix.is
og í Tjarnarbíó
Allra síðustu sýningar!
LAU . 01 . FEB kl . 13 00
LAU . 29 . FEB kl . 13 00
LAU . 14 . mar kl . 13 00
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 9 . M A R S 2 0 2 0