Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 4
Það er svo margt
sem við eigum að
rífast um, eigum að deila
um, eigum að karpa um í
dagsins önn, en stundum
koma þær aðstæður að við
hefjum okkur yfir það.
Guðni Th. Jóhannesson
6%
samdráttur varð í korta-
veltu erlendra ferðamanna
í janúarmánuði í ár frá því í
fyrra.
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU LÚXUSJEPPI MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LISTAVERÐ FRÁ: 11.490.000 KR.
• Leðurklætt aðgerðastýri
• Rafdrifin opnun á afturhlera
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bi-Xenon LED framljós með þvottakerfi
• 3.0 V6 250 hö. dísel, 8 gíra sjálfskipting
• 570 Nm tog
• Hátt og lágt drif
• Læsing í afturdrifi
• Hlífðarplötur undir vél, kössum og skiptingu
• Loftpúðafjöðrun
• Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan
• Blindhornsvörn
STAÐALBÚNAÐUR M.A.:
REYKJAVÍK Fasteignaþróunarráð-
stefnan MIPIM er ein sú stærsta
sinnar tegundar í veröldinni. Hún
fer fram í sólarparadísinni Cannes í
Frakklandi og sækja um 25 þúsund
manns hátíðina.
Fjölmargar borgir vekja þar
athygli á áhugaverðum fasteigna-
verkefnum hjá sér. Hefur Reykjavík-
urborg horft hýru auga til þátttöku.
Af þátttöku hefur þó ekki orðið
enn. Árið 2014 þátttaka undirbúin,
en þá var kostnaður við að koma
upp spennandi kynningarbás met-
inn um 40 milljónir króna. Starfs-
menn borgarinnar hafa þó sótt
ráðstefnuna heim undanfarin ár,
en Reykjavíkurborg hefur átt aðild
að viðskiptahorni undir merkjum
Íslandsstofu. Í fyrra var kostnaður
við þá þátttöku um 300 þúsund
krónur.
Í ár fékk Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri, boð um að halda opn-
unarerindi á ráðstefnu um loftslags-
mál í Suður-Frakklandi nú í mars og
lá fyrir að borgaryfirvöld Marseille-
borgar myndu greiða fyrir ferða-
og gistikostnað. Skipuleggjendur
MIPIM höfðu veður af þessu og
buðu í kjölfarið Degi að taka þátt í
hringborðsumræðum borgarstjóra
á Norðurlöndum, sem og að halda
fjögur önnur erindi á ráðstefnunni.
Þessu boði fylgdi aðgangur á
MIPIM. Í svari frá Pétri Krogh
Ólafssyni, aðstoðarmanni borgar-
stjóra, kemur fram að af þeim
sökum hafi kostnaður Reykjavíkur-
borgar við hina fyrirhuguðu þátt-
töku verið óverulegur. Kappkostað
er að halda kostnaði í hófi, svo sem
með því að gista í Nice frekar en á
sjálfu ráðstefnusvæðinu í Cannes.
Auk Dags og Péturs var ráðgert að
Óli Örn Eiríksson, sem starfar við
fjárfestingar og fasteignaþróun
innan borgarinnar, myndi taka
þátt.
Nú hefur hins vegar báðum við-
burðunum verið aflýst, MIPIM og
áðurnefndri loftslagsráðstefnu, en
það var gert vegna héraðskosninga
í Marseille. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um þátttöku á MIPIM í
sumar. – bþ
Cannes-för borgarstjórans frestað er fasteignaráðstefnu var aflýst
Dagur B. Eggertsson fer ekki til
Cannes. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI Samdráttur varð í korta-
veltu erlendra ferðamanna í janúar
síðastliðnum í samanburði við
janúarmánuð í fyrra.
Nemur munurinn tæplega níu
hundruð milljónum króna á breyti-
legu verðlagi. Þetta kemur fram á
vef Rannsóknaseturs verslunar-
innar.
Hlutfallslega er um rúmlega sex
prósenta samdrátt að ræða. Sé litið
á einstaka þætti munar mestu um
samdrátt í gistiþjónustu sem nam
tæplega 340 milljónum. Velta
þess þáttar nam 3,2 milljörðum í
mánuðinum og dróst saman um
tæplega tíu prósent.
Þá nam erlend kortavelta í veit-
ingasölu einum og hálfum milljarði
króna í janúar, sem er 6,5 % minni
en var í sama mánuði í fyrra. – jþ
Velta erlendra
korta minnkar
Velta í gistiþjónustu minnkar mest.
Í laugardagsblaði Fréttablaðsins
var ranghermt á bls. 44 að Kristján
IX. konungur Danmerkur og
Íslands á þeim tíma, hafi ekki átt
börn. Það er ekki rétt, hann átti sex
börn. Beðist er velvirðingar á þessu
ranghermi.
LEIÐRÉTTING
COVID-19 Áfram greindust ný smit
af völdum kórónaveirunnar í gær.
Voru þau í gærkvöldi orðin 58
talsins. Þá greindist smit hjá fimm
starfsmönnum á gjör gæslu deild
Land spítalans í Foss vogi og eru
fimm starfsmenn þaðan til viðbótar
í sóttkví. Fram kom á blaðamanna-
fundi Almannavarna um miðjan
gærdag að um sé að ræða tvo ein-
staklinga sem smituðust í skíðaferð.
„Annar þeirra kom á eina vakt
og þar hafa sennilega orðið til þrjú
smit,“ sagði Alma Möller landlæknir
á fundinum. Fram kom að búið
væri að rekja smitið. Jafnframt að
ekki sé vitað til að smit hafi borist
í sjúklinga.
Af hálfu Landlæknis og sóttvarn-
arlæknis kom fram að þetta væri til
marks um að heilbrigðisstarfsfólk
þyrfti að fara varlega. Búið var að
setja upp skilvegg á deildinni. „Að
svo stöddu verða fjögur rúm opin
áfram. Það er ljóst að þetta mun
hafa áhrif á starfsemi deildarinnar,“
sagði Alma á fundinum.
Íslensk erfðagreining hafði fyrir
helgi boðið heilbrigðisyfirvöldum
aðstoð fyrirtækisins við skimun
fyrir veirunni. Persónuvernd og Vís-
indasiðanefnd grennsluðust fyrir
um hvort sú aðstoð fyrirtækisins
væri leyfisskyld. Í kjölfarið dró
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, boð fyrirtækisins
til baka og sagði að ekki stæði til að
óska leyfis fyrir aðkomunni.
Um hádegisbil í gær sendu svo
Persónuvernd og Vísindasiðanefnd
frá sér tilkynningu, þar sem því var
lýst að við nánari athugun væri
aðkoma Íslenskrar erfðagreiningar
ekki leyfisskyld. Kári Stefánsson
lýsti því svo yfir í kjölfarið að boð
fyrirtækisins stæði. Gert er ráð fyrir
að skimun á þess vegum hefjist um
miðja viku. Hún verður undir stjórn
sóttvarnalæknis.
Í fréttatíma RÚV í gærkvöld sagði
Guðni Th. Jóhannesson forseti að
brýnt væri fyrir landsmenn að láta
óttann ekki ná tökum á sér.
„Ég vil fyrst og fremst ítreka það
sem ég hef áður sagt, að við fylgj-
umst vel með leiðbeiningum og til-
mælum landlæknis og framvarðar-
sveitar okkar í þessum málum,“
sagði hann. „Við hér getum staðið
saman þegar á reynir. Það er svo
margt sem við eigum að rífast um,
eigum að deila um, eigum að karpa
um í dagsins önn, en stundum koma
þær aðstæður að við hefjum okkur
yfir það,“ sagði Guðni.
Þá hefur sóttvarnarhúsið við
Rauðarárstíg verið tekið í notkun.
Um er að ræða tvo erlenda ríkis-
borgara sem sýnt hafa einkenni og
var annar settur í sóttkví og hinn í
einangrun.
jon@frettabladid.is
Smituðum fjölgar dag frá degi
Fimm starfsmenn gjörgæsludeildar hafa greinst með smit og fimm aðrir eru í sóttkví. Ekki er talið að
smit hafi borist í sjúklinga. Guðni Th. Jóhannesson forseti segir brýnt að hleypa ekki óttanum að.
Greint var frá smiti á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi á reglulegum blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð