Hugur og hönd - 01.06.2011, Qupperneq 4

Hugur og hönd - 01.06.2011, Qupperneq 4
Katrín Úlfarsdóttir „Ég er óforbetranlegur safnaria Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarmaður í Freyjulundi talar um lífið og listina Ljósmyndir Jóhann Ólafur Halldórsson „A ég ekki bara aS tylla mér hjd honum Jóni mínum". Það er á frostköldum vetrardegi sem við bönkum upp á í Freyjulundi við vestan- verðan Eyjafjörð og heilsum húsfreyj- unni þar á bæ, Aðalheiði S. Eysteinsdóttur. Fast við þjóðveginn milli Akureyrar og Dalvíkur er þetta sérkennilega hús sem eitt sinn var félagsheimili Arnarneshrepps en hýsir nú listamennina og hjónin Aðalheiði og Jón Laxdal og börn þeirra. Þau keyptu húsið árið 2004 og gerðu það upp. „Það er eiginlega nýtt gamalt,“ útskýrir Aðalheiður. „Við byggðum við húsið og þurftum svo að endurnýja allar lagnir og einangra upp á nýtt.“ En innan- dyra heldur gamla félagsheimilið sér. Eldhúsið er þar sem það var og sam- komusalurinn hýsir vinnustofur þeirra hjóna og enn er gengið á gömlu dansfjöl- unum í salnum. Hlýtt og notalegt er inni, barnabörnin og heimiliskisurnar skottast um og gestum er boðið upp á kaffi og dýrindis súkkulaði. Aðalheiður, sem er Siglfirðingur að uppruna, er með þekktari listamönnum eyfirskum í dag. Þekktust er hún fyrir tréskúlptúra sína af fólki og dýrum í fullri stærð. „Já, ég er Siglfirðingur og foreldrar mínir búa þar ennþá, þau Arnfinna Björnsdóttir og Eysteinn Aðalsteinsson. Pabbi rekur Fiskbúð Siglufjarðar en mamma vann alla tíð á bæjarskrifstof- unum en er með eigin vinnustofu. Hún er föndur- og handverkskona „par exel- ance“. Hefur alltaf verið á fullu í alls konar handverki en á síðari árum hefur hún verið að gera flottar klippimyndir sem eru meiri myndlist en handverk. Það var alltaf verið að föndra heima og alltaf nóg hráefni að föndra úr," rifjar Aðalheiður upp úr æskunni. „Mér finnst mjög mikilvægt þegar fólk er að ala upp börn að eiga til föndurefni í skúffu eða skáp sem hægt er að opna þegar á þarf að halda,“ segir listakonan. „Eg lærði líka fljótt að bjarga mér. Það þurfti að bjarga einhverju fyrir afmæli og ekkert féklcst í búðinni sem mann lang- aði til að gefa. Þá var bara að búa það til. Kornflexpakkar eru til dæmis mjög góðir í dúkkulísur og grímur. Að ég tali nú ekki um straujaðan gjafapappír í dúkkulísuföt!" Aðalheiður föndraði mikið sem barn en myndlist kynntist hún ekki að ráði fyrr en hún flutti til Akureyrar. Þá var hún komin yfir tvítugt. „Mér hafði að vísu verið bent á, bæði af kennurum og öðrum, að þetta ætti ég að leggja fyrir mig en sem unglingi fannst mér það nú ekki spennandi. Á Akureyri fór ég á námskeið í Myndlistarskólanum og strax í fyrsta tím- anum í módelteikningu fann ég að ég var á réttri hillu. Eg fór síðan í dagskólann og útskrifaðist úr málaradeild árið 1993.“ Um síðustu aldamót var Aðalheiði boðin þátttaka í Dieter Roth akademí- unni, fyrst sem nema en nú er hún einn af prófessorum akademíunnar. Dieter Roth akademían er ekki hefðbundin akademía heldur stofnuð af vinum listamannsins og vinnur hún í hans anda, óbundin af stofn- unum og staðsetningu. Málað á lausafög En af hverju fer listmálari yfir í skúlptúr? „Eg hef alltaf verið mjög afkastamikil og rak mig fljótt á að því fylgdi mikill kostn- aður. Eg hafði einfaldlega ekki ráð á því að eyða tugum þúsunda á mánuði í striga, liti, pensla og blýanta. Fyrir svo utan að það samræmdist heldur ekki mínum lífs- stíl - ég sem hef alltaf lifað sparsömu lífi, reynt að nýta það sem til fellur og versla ódýrt. En svo fannst mér málverkið held- ur ekki alveg nógu ögrandi fyrir mig.“ Þannig fór Aðalheiður að fikra sig smám saman inn á nýjar brautir og þar kom fram í henni eðlið frá uppvextinum á Siglufirði. Að skapa úr því sem til fellur hverju sinni. Leita að formum. „Ég deildi á þessum tíma vinnustofu í Listagilinu á Akureyri með Dagnýju Sif Einarsdóttur og á neðri hæðinni var Kristján Pétur Sigurðsson með sína vinnu- stofu. Hjá honum komst ég í spýtnadrasl. Allt sem fór í ruslið hjá honum fannst mér flott. Ég kenndi líka smíðar um tíma í Brekkuskóla og þar féll ýmislegt til. Þá byrjaði ég að búa til litla skúlptúra, por- trett af fólki. Arið 1994 setti ég svo upp fyrstu sýninguna með slíkum verkum. Ég er náttúrlega óforbetranlegur rusla- safnari. Var alltaf að safna að mér drasli og var orðinn fastagestur á gámasvæðinu. Ég náði mér þar í góss þegar ég var orðin uppiskroppa með striga til að mála á og var alltaf að leita að formum. Síðan var það þegar ég komst í lausafög og glugga úr íbúðarhúsi vinkonu minnar að ég fór að mála á rúðurnar og síðan fann ég mér 4 HUGUROG HÖND2011

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.