Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 6
Sesselja Þórðardóttir
Unnið úr hreindýraleðri
Hólmfríður Ófeigsdóttir
Hólmfríður Ófeigsdóttir er ein þeirra
kvenna sem vinna úr hreindýraleðri.
Hún býr á Búastöðum austur í Vopnafirði
þar sem hún stundar handverk sitt sam-
hliða búskap og heimilisstörfum. Verk
Hólmfríðar eru að því leyti sérstök að
hún klippir leðrið í ræmur og prjónar
síðan úr þeim.
Upphafið að þessu var að haustið 2005
fékk hún leður frá Signýju Ormarsdóttur
á Egilsstöðum og í framhaldi af því leið-
beiningar símleiðis um það hvernig best
væri að klippa leðrið. Hólmfríður klippir
eingöngu mýkstu skinnin en þar með
verður þráðurinn þjáll. Það tekur hana
30 til 40 klukkustundir að klippa hvert
skinn sem klippt er í hring og byrjað er
yst á því. Þannig fæst myndarlegur þráð-
ur enda skemmtilegast að þurfa ekki að
skeyta saman þræði í miðju verki. Hún
hefur ekki enn mælt hve langan tíma
tekur að prjóna eitt sjal en gera má ráð
íyrir að það taki a.m.k. 10 klst. A þeim
fimm árum sem liðin eru síðan hún hóf
þessa vinnu hefur hún klippt a.m.k. 40
hreindýraskinn.
Á sýningunni Handverk og hönnun
sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur
haustið 2010, sýndi Hólmfríður sjöl,
Það tekur 30 — 40 klst. að klippa eitt skinn.
topp, veski, trefla og handstúkur sem
hún vill reyndar kalla smokka, enda vön
því frá fyrri tíð.
Leðrið sem Hólmfríður notar er mis-
munandi á litinn. Stundum er liturinn á
úthlið leðursins meiri eða sterkari en á
holdrosanum. Sé holdrosinn ólitaður
verður það sem prjónað er yrjótt og
breytir þar með flíkinni töluvert. Einnig
hefur áhrif hvernig leðrið er á litinn í
skurðinum eftir klippingu.
Mikilvægt er að hirða vel um flíkur úr
hreindýraleðri. Tryggja þarf að loft leiki
um þær og því má ekki geyma þær í
plastumbúðum. Óhreinkist flíkin er í
lagi að þvo hana úr volgu vatni og þurrka
t.d. á handklæði og fjarri hita. Meðan
flíkin er rök skal teygja hana í rétt form.
Hólmfríður vinnur ekki eingöngu úr
leðri, heldur spinnur líka töluvert úr
íslensku ullinni og einnig hefur hún
spunnið úr hundahári og kattarhári. Þá
hefur hún spunnið kanínufiðu og prjón-
að úr henni sokka. Hólmfríður prjónar
einnig úr íslenskri ull og kambgarni,
einkum tvíbanda vettlinga og hand-
stúkur.
VÖrur Hólmfríðar fást hjá
Handverkshópnum Nema-Hvað á
PP Hólmffíður Ófeigsdóttír
ff Margrét Baldursdóttir
H Gler og Jám
Frá sýningu í ráðhúsinu 2010.
Hólmfríður í ráðhúsi Reykjavíkur haustið 2010.
Vopnafirði og í Húsi handanna á
Egilsstöðum. Einnig hefur Hólmfríður
tekið á móti fólki heima á Búastöðum.
Sjal með Dagnýjarprjóni.
6
HUGUROG HÖND 2011