Hugur og hönd - 01.06.2011, Síða 7

Hugur og hönd - 01.06.2011, Síða 7
Sigrún Linda Kvaran Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins Hönnunar- og handverksskólinn Ýmiss konar handverk og hönnun blómstrar nú sem aldrei fyrr og hefur áhuginn á námi því tengdu margfaldast á fáum árum. Möguleikar til atvinnuskap- andi og hagnýtra starfa eru undirstaða þess að unga fólkið fái tækifæri til að koma undir sig fótunum og efla íslensk- an iðnað og hönnun og á það ekki síst við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu. Það virðist því augljóst að kreppan hefur haft eitthvað gott í för með sér, svo sem endurvakinn áhuga fólks á námi, svo ekki sé talað um aðra naflaskoðun sem flest okkar stunda nú þessa dagana um lífsgæði og siðferðisvitund. Fram til þessa hafa tvær löggiltar iðn- greinar verið kenndar á fataiðnbraut Hönnunar- og handverksskólans, þ.e. kjólasaumur og klæðskurður. Með nýrri námskrá frá 2008 hefur orðið sú breyting á að í stað þess að kenndar voru tvær iðn- greinar samhliða í þrjú ár, er skipting fyrr til sérhæfmgar í hvorri grein fyrir sig. Nemendur ljúka fyrst styttri námsbraut, fatatækni sem er tveggja ára nám og átta vikna starfsþjálfun. Þetta opnar mögu- leika nemenda og undirbýr þá til þátt- töku í ýmsum greinum fatatísku og iðn- aðar. Fatatækni getur einnig verið undan- fari ýmissa tengdra greina ef nemandi Nemendur við vinnu sína. hefur ekki áhuga á iðnnáminu. Að lok- inni fatatækni er á brautinni val um kjóla- saum eða herraklæðskurð, sem eru sér- hæfðar námsgreinar sem hvor um sig tekur eitt og hálft ár til viðbótar ásamt 16 vikna starfsþjálfun. Er einnig áædað að opna fleiri möguleika innan brautarinnar samhliða iðnnáminu. Nemendur geta einnig lokið stúdentsprófi samhliða iðnnáminu. Það er almennur misskilningur að fata- hönnun sé kennd í skólanum en það nám fer einungis fram í Listaháskóla Islands. Segja má að námið á fataiðnbraut sé afar gott aðfararnám til fatahönnunar en námið hefur verið viðurkennt víða. Nemendur sem lokið hafa námi við fataiðnbraut Tækniskólans og gamla Iðnskólann hafa fengið nám sitt metið til allt að tveggja ára í háskólum erlendis, svo sem á Italíu, í Danmörku og Bandaríkjunum. Hondverhshotíð Hcindverkshátíð 5.-8. ágúst 201 1 Umsóknorfresturinn rennur út 1 . maí uuuuuu.handverkshatid.is HUGUROG HÖND 2011 7

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.