Hugur og hönd - 01.06.2011, Síða 10
Hönnun Patrick Hassel-Zein
Höttur Hróa
Hekluð lambhúshetta
Þetta er mjúk og hlý lambhúshetta
með fimmtánda aldar sniði (þó svo
rússneskt hekl hafi ekki komist í tísku
fyrr en á nítjándu öldinni). Þröngar
lopahúfur valda gjarnan kláða eða rugla
hárgreiðslunni en þessi er þægilega víð
og notaleg. Það er hægt að fella hett-
una niður þegar veður er gott eða draga
hana yfir andlitið þegar veður er kalt
eða hvasst. Stærðir: börn, konur,
karlar.
Heklufesta: 16 L og 16 umf= 10x10 cm.
Mæla þarf ummál höfuðs og hekla
hettuna heldur stærri. Allar mælingar hér
á eftir eiga við hettuna, ekki stærð höf-
uðs. ATH: Flíkur sem heklaðar eru með
rússnesku hekli teygjast ekki eins og
prjónles!
Stærð: XXS (XS) S (M) L (XL) XXL
Ummál kraga/höfuðs: 47 (50) 52 (55)
57 (60) 62 cm
Andlitsop: 59 (61) 64 (66) 69 (72)
75 cm
Herðaummál: 131 (140) 149 (157) 166
(175) 184 cm
Áætlaður vinnutími: 22 (25) 27 (30)
34 (37) 40 klst.
Efni og annað sem til þarf
Heklunál nr. 5 mm með 80-120 cm
snúru (og gjarnan 40 cm snúru í
viðbót)
Brúnt einband nr 9076: 2 hnotur x 50 g.
Brúnn plötulopi nr 0009: 1 plata eða
30 (35) 35 (40) 45 (45) 50 g.
Mórauður plötulopi nr 0003: 1 (1) 1
(1) 1 (2) 2 plötur eða 65 (75) 80 (95)
100 (115) 120 g.
Saumavél
Brúnn eða mórauður þráður til að
sauma með.
Rússneskt hekl
Hver umferð í rússnesku hekli byggist á
tveim skrefum: Fyrst á að fitja upp allar
lykkjur og síðan fella allar af. I þessu
mynstri á alltaf að fitja upp í einbandi og
fella af með plötulopa.
1. umf: Byrja með að hekla loftlykkjur.
[Mynd 1] Þegar síðasta lykkjan er komin
upp á nálina er henni stungið í gegn um
fyrstu lykkjuna og dregin fram ný lykkja
[Mynd 2].
*Nálinni stungið í gegnum næstu loft-
lykkju og dregin fram ný lykkja. Allar
lykkjur áfram á nálinni. * [Mynd 3]
Endurtakið þar til æskilegur fjöldi lykkja
er komin á nálina. Þá er skipt yfir í
plötulopa og fellt af lykkjunni með því
að draga bandið gegn um eina lykkju
*bandið sótt og dregið í gegnum plötu-
lopalykkjuna og eina lykkju af einbandi.*
[Mynd 4] Endurtakið þar til aðeins ein
lykkja af plötulopa er eftir á nálinni.
2. umf: Lykkjan úr plötulopanum á að
vera á nálinni.
*Nálinni stungið aftur fyrir næsta lóð-
rétta band úr einbandi. Náð í lausa band-
ið og dregin fram lykkja.* [Mynd 5]
Endurtekið þar til æskilegur lykkjufjöldi
er á nálinni. Þetta kallast slétt rússneskt
hekl (,,sh“). Plötulopa lykkjan er varlega
færð yfir stopparann/A/y«í/ 6] og fellt af
með plötulopa þar til ein lykkja er eftir.
[Mynd 7]
Brugðið hekl (,,bh“): Bandið lagt fram
fýrir nálina. Nálinni stungið bak við næsta
lóðrétta band, bandið fært niður og nál-
inni krækt í lausa bandið til að draga fram
nýja lykkju. Þannig verður til band þvert
fyrir ofan lykkjuna. [Mynd 8]
Úrtökur: Nálinni stungið aftan í tvö
næstu lóðréttu bönd og dregin fram
lykkja (tekið saman og ein lykkja búin til
úr tveim böndum). [Mynd 9]
Aukið út: Fyrst er hekluð sh í næsta
lóðrétta band og krókurinn á nálinni
notaður til að draga sömu lóðréttu bönd-
in til hliðar svo hægt sé að stinga nálinni
í aftari böndin í sömu lykkju og náð í
laust band til að draga fram lykkju.
[Mynd 10]
Keðjulykkjur: *Nálinni stungið aftur
fyrir næsta lóðrétta band úr einbandi,
lausa bandið sótt og dregið í gegnum
báðar lykkjurnar fremst á nálinni. *
[Mynd 11]
Axlastykki
Notuð er nál með langri snúru og fitj-
aðar upp 210 (224) 238 (252) 266 (280)
294 loftlykkjur með einbandi. Tengt í
hring. Fitja upp 1 umf og fellt af með
plötulopa. Tekin úr 1 L í byrjun, 2 L í
miðju og 1 L í lok hverrar umferðar.
Hekla 3 umf brugðið og 9 (9) 10(10) 11
(11) 12 umf stroff (*1 sh, 1 bh*), 3 umf
brugðið hekl.
Þar á eftir nota plötulopa og taka úr á
sama hátt þar til 76 (80) 84 (88) 92 (96)
100 L eru eftir á nálinni. Hekla 2 umf án
úrtöku. Hekla 4 (4) 4 (5) 5 (5) 5 umf þar
sem aukið er út um 1 L í byrjun, 2 L í
miðju og 1 L í lok hverrar umf.
Hetta
Byrjað er á andlitsopi í þessari umferð.
Aukið út um 2 L í miðju annarrar hverr-
ar umferðar þar til 102 (108) 112 (120)
126 (130) 134 L eru á nálinni. Hekla
áfram (með óbreyttum lykkjufjölda) 35
(35) 37 (39) 39 (42) 44 umf eða þar til
lengdin er mátuleg. Hekla 1 umf keðju-
lykkur í einbandi. Slíta bandið og ganga
frá lausum endum.
Andlitsop
Tveir beinir saumar saumaðir hvorum
megin við andlitsopið. Klippt á milli
þeirra. Hettan saumuð saman að ofan.
Teknarupp 94 (98) 102 (106) 110 (116)
120 L í kring um andlitsop (byrjað
neðst) með því að stinga nálinni í gegn-
um hettuna og draga fram lykkjur úr
einbandi. Fellt af með plötulopa.
Heklaðar 12 (12) 13 (13) 14 (14) 15
umf brugðið hekl í hring. Svo 1 umf
keðjulykkjur úr einbandi. Bandið slitið
og gengið frá.
Frágangur
Hettan er þvegin og strekkt. Faldur við
andlitsop er brotinn inn á við og saum-
aður niður með einbandi með ósýnileg-
um saumi.
10 HUGUR 0G HÖND 2011