Hugur og hönd - 01.06.2011, Síða 17
hann slitni. Seinna tók ég þetta upp aftur
og spann upp úr þessu peysu með útvíð-
um ermum og galdratákni. Ekkert fór til
spillis.“
Brugðnu bárurnar, upprúllaðir þykkir
faldar og rúnir og önnur gömul tákn eru
einkum einkennandi fyrir flíkur
Bergþóru. „Maðurinn minn bað mig eitt
sinn um peysu með Ægishjálmi. Upp úr
því datt mér í hug að nota rúnaletur og
skrifa eitthvað skemmtilegt á peysurnar.
Maðurinn minn hefur hjálpað til við að
teikna upp táknin í rúður, enda list-
rænn“, segir hún og brosir. „Eg hef nær
eingöngu prjónað flíkurnar mínar úr
plötulopa og stundum einbandi með.
Einstöku sinnum bæti ég við annars
konar þræði til skrauts. Herrapeysurnar
prjóna ég í tvöföldum plötulopa. Það er
gaman að vinna með lopann, hann er
ódýr miðað við allt innflutt band og
hann fæst í svo fallegum litum. Ég prjóna
hann frekar þétt og það er merkilegt
hvað prjónlesið verður sterkt þannig.“
Hún sýnir mér fyrstu flíkina, lítinn rauð-
an skoltk sem hún prjónaði á dóttur sína
og uppskrift að honum fylgir með í þessu
blaði. Hann er núna í notkun á öðru
barninu og það sér varla á honum.
„Upphaflega hugmyndin var allt öðru
vísi, kjóllinn átti að vera með ermum en
mér fannst hann hentugri og notadrýgri
fyrir smábarn sem ermalaus skokkur.
Þennan skokk prjónaði ég í janúar 2009,
eftir allar lopapeysurnar!" A þeim tveim-
ur árum sem síðan eru liðin hefur
Bergþóra hannað það margar flíkur að
hún vinnur nú að því að gefa afraksturinn
út í bók sem hún vonast til að geta gefið
út á komandi hausti.
Skokkur fyrir skottur
Prjónastærðir: Perluprjón (4,5 mm) og
slétt prjón (4mm).
Prjónafesta: 10 x 10 cm = 17 lykkjur
slétt prjón og 30 umferðir (prjónastærð
4,0).
Garn: Einfaldur plötulopi.
Litir: Hárauð samkemba (1430) og rið-
rauð samkemba (1426). 1 plata af hvor-
um lit.
Stærðir:
12-18 m 3-4 ára
Sídd(frá handakrika) 33 cm 49 cm
Yfirvídd (Brjóst mál) 50 cm 56 cm
Fjöldi lykkja fitjað upp 190 216
Stroff:
Fitjað er upp 190 (216) lykkjur með
riðrauðri samkembu og prjónað perlu-
prjón á prjóna nr. 4,5. þar til stroffið
mælist 4,5 (5) cm.
Pils:
Að stroffi loknu er skipt yfir á prjóna nr.
4 og prjónað slétt prjón með hárauðri
samkembu þar til skokkurinn mælist 14
cm. Þá hefst úrtaka sem hér segir:
Úrtaka:
Teknar eru úr 10 lykkjur jafndreif yfri
hringinn þegar skokkurinn mælist:
___ (14 cm): Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjurnar í byrjun umferðarinnar
og svo prjónarðu næst 20 sl lykkjur
milli úrtaka út allan hringinn. Eftir
síðustu úrtökuna eru 16 lykkjur eftir á
prjóninum.
14 (20) cm: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjurnar í byrjun umferðarinnar.
Prjónaðu næst 17 (19) sl lykkjur milli
úrtaka út allan hringinn. Eftir síðustu
úrtökuna eru 17 (15) lykkjur eftir á
prjónunum
17 (28) cm: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjurnar í byrjun umferðarinnar.
Prjónaðu næst 16 (18) sl lykkjur milli
úrtaka út allan hringinn.
20 (34) cm: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjurnar í byrjun umferðarinnar.
Prjónaðu næst 15 (17) sl lykkjur milli
úrtaka út allan hringinn.
23 (39) cm: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjurnar í byrjun umferðarinnar.
Prjónaðu næst 14 (16) sl lykkjur milli
úrtaka út allan hringinn.
26 (45) cm: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjurnar í byrjun umferðarinnar.
Prjónaðu næst 13 (15) sl lykkjur milli
úrtaka út allan hringinn.
32 (47) cm: Lokaúrtaka er gerð í
næstu 4 umferðum sem hér segir:
1. umferð: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjur umferðarinnar og prjónaðu
svo 5 (5) lykkjur milli úrtaka út allan
hringinn.
2. umferð: Þessi umferð er prjónuð án
úrtöku.
3. umferð: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjur umferðarinnar og prjónaðu
svo 4 (4) lykkjur milli úrtaka út allan
hringinn.
4. umferð: Prjónaðu saman fyrstu
tvær lykkjur umferðarinnar og prjónaðu
svo 3 (3) lykkjur milli úrtaka út allan
hringinn.
Þegar úrtöku er lokið eru 80 (90)
lykkjur eftir á prjóninum
BERUSTYKKI:
Að úrtöku lokinni er skipt yfir á prjóna
nr. 4,5 og um leið er skipt um lit (rið-
Hönnun Bergþóra Eiríksdóttir
rauð samkemba) og prjónað slétt einn
hring áður en byrjað er á perluprjóni.
Prjónið því næst einn hring með perlupr-
jóni. Eftir það er berustykkinu skipt í
fram og bakstykki sem eru prjónuð
fram og til baka sem hér segir:
Bakstykki (40 (46) lykkjur)
Bakstykkinu er skipt í tvo helminga (20
(23) lykkjur hvor helmingur - bakstykk-
ið er opið niður eftir miðju baki. Hvor
helmingur er prjónaður í sitt hvoru lagi
Úrtaka fyrir handvegi:
Eftir að bakstykki hefur verið skipt í tvo
helminga er tekið úr fyrir handvegi sem
hér segir í næstu 4 umferðum (alls 5
lykkjur) í hvorri hlið:
-1. umf. =1 lykkja tekin úr.
-2. umf. = 2 lykkjur teknar úr .
-3. og 4. um. = 1 lykkja tekin úr í
hverri umferð.
Prjónið perluprjón áfram þar til kemur
að úrtöku fyrir hálsmáli.
HUGUR0G HÖND 2011 17