Hugur og hönd - 01.06.2011, Page 21
Koparstunga eftir Israel von Meckenem frá lokum 15. aldar.
dreginn af og bandið hespað á þarlend hesputré eða niddy
noddy. Það er miðstöng með tveimur stöngum festum í sinn
hvorn enda sem vísa í 90° á miðstöng sem gjarnan er útskor-
in til að hafa betra grip á henni. Hjá rétthentum er niddy
noddy haldið í vinstri hendi en teini með bandi í þeirri hægri
sem vindur því um armana í eins konar áttu.
Þegar tveir þræðir eru tvinnaðir saman með þeirri aðferð
sem tíðkast annars staðar en á Islandi er þannig farið að:
Þegar fyrsta snældan er full er snúðurinn færður yfir á næsta
tein og spunnið á hann. Til að tvinna er snúðurinn færður
yfir á þriðja tein og endunum af garninu hleypt saman á
hann, en nú þarf að snúa snældunni í hina áttina, þ.e.a.s. tvö
bönd með Z—snúningi verða að tvinnuðu bandi með
S-snúning.
Rétt eins og distaff má sjá niddy noddy á mörgum mið-
aldamyndum en þau eru þó mun eldri, t.d. eru þau líka að
finna í Osebergskipinu.
Spurningunni af hverju þetta áhald náði ekki fótfestu hér
á landi á landnámstíð þó að samtímamenn í Noregi notuðu
það greinilega verður ekki svarað hér, en það er áhugavert
rannsóknarefni að leita svara við henni.
attoeíí cxíbtnn cnna
riot mÖTicucxi
© Moraan Library, N«w York
Api vindur upp ull á hesputré eða niddy noddy. Myndfrá um 1350. (C) Morgan
Library, New York (Voeux du paon, PML G.24, for. 15r).
Samantekt
Spuni eða öllu heldur verknaðurinn að búa til þráð hefur verið
mönnum nauðsynlegur frá upphafi mannkynssögunnar. Að búa
til þráð gerði forfeðrum okkar á steinöld kleift að gera net, reipi
o.fl. og var eitt sterkasta (og hingað til vanmetið) afl í þróun
mannkyns, eins og Dr. Adovasio orðar það:
„The string revolution was a profound event in human
history," Dr. Adovasio said. „When people started to fool aro-
und with plants and plant byproducts, that opened vast new
avenues ofhuman progress."
Snældur voru fundnar upp í mörgum heimshlutum og fór
útlit þeirra eftir eiginleikum efnisins sem átti að spinna. Þar
fyrir utan er hefðin sterkur þáttur og þegar ein aðferð hefur náð
fótfestu komast aðrar ekki að.
Við sjáum að í allri Evrópu, í Suður-Ameríku og víðar tíðkast
halasnældur sem eru með snúðinn neðst á halanum, þær eru
settar af stað með þumli, vísifingri og löngutöng og á þær er
spunnið band með Z-snúningi.
Eftir því sem ég kemst næst þekkist halasnældan með snúðinn
efst á halanum bara á fáum svæðum veraldar og er Island eitt
þeirra.
Myndefnið sem var skoðað sýnir að íslensk hefð í tóvinnu er
að þessu ieyti ólík því sem tíðkaðist annars staðar í Evrópu. Mér
er ekki kunnugt um heimildir um notkun niddy noddy á Islandi,
spuni með hjálp rokks eða distaff virðist hafa lagst af og snúð-
urinn á snældunni er efst á halanum, öfugt við flest önnur
menningarsvæði.
Með þessari grein vil ég gjarnan kveikja umræðu um sérstöðu
spuna-aðferða á íslandi.
Heimildir
Áslaug Sverrisdóttir, Tóskapur. Ullarvinna í bændasamfélaginu. Hlutavelta tím-
ans. Menningararfur á Þjóðminjasafhi, Reykjavík 2004.
Elsa E. Guðjónsdóttir, Um rokka, einkum með tilliti til skotrokka, Árbók hins
íslenska fornleifafélags (1992).
Franquemont, Abby, Respect the Spindle. Spin Infinite Yarns ivith One Amazing
Tool, Interweave Press LLC 2009.
Ingstad, Anne Stine, The Textiles in the Oseberg ship, skoðað á internetinu
20.12.2010. http://wiviv.forest.gen. nz/Medieval/articles/Oseberg/textiles/TEXTILE.
HTM
Wayland Barber, Elizabeth, Prehistoric Textiles. The Development ofCloth in the
Neolithic and Bronze Ages with Special Reference to the Aegean, Princeton 1991.
Wayland Barber, Elizabeth, Womens Work: the first 20,000 years. Women, Cloth
and Society in Early Times, New York, London 1994.
O. Soffer, J.M. Adovasio, and D.C. Hyland, The “Venus” Figurines. Current
Anthropology vol. 41, number 4.
Vefsíður
kerberos.imareal.oeaw.ac.at/realonline Vefsíða skoðuð 28.12.2010.
www.larsdatter.com undir leitarorðunum spinning og winding thread andyarn.
www.textile-technology.com/stone-age-clothing-more-advanced-than-thought
Vefsíða skoðuð 29.12.2010.
utu.morganlibrary.org Vefsíða skoðuð 28.12.2010.
www.unl.edu/rhames/courses/readings/venus/venus_string.html Vefsíða skoðuð
11.1.2011.
www.thefreelibrary.com/ Vefsíða skoðuð 11.01.2011.
HUGUR0G HÖND 2011 21