Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 23

Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 23
Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir Foldarskart í ull og fat Jurtalitun Þegar hlé er á daglegu amstri leitar fólk sér ánægju og afþrey- ingar, sækist eftir listum, heldur út í náttúruna eða nærir upp- runa sinn með því að hlúa að gömlum hefðum og menningu. Jurtalitun sameinar þetta allt. Gengið er um blómabreiður og plöntur tíndar af þekkingu og virðingu. I samræmi við æva- fornar hefðir eru þær síðan notaðar til að lita efni og garn í óendanlegum fjölbreytileika lita og tóna. Lituð afurðin er svo notuð í flíkur eða til að skapa hluti sem sífellt minna á litadýrð náttúru, menningararfinn og góðar stundir við skemmtilega iðju. Sumarið 2010 létum við vinkonurnar gamlan draum rætast. Við skrifuðum og gáfum út bók um jurtalitun, Foldar skart í ull og fat. Bókin er til sölu hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og í nokkr- um bókabúðum og í framhaldinu af henni opnuðum við heimasíðu: http: //i urtalitun. blogspot.com/ og fésbókarsíðuna Jurtaiitun - Foldarskart í ull og fat. Bókin á sér langan aðdrag- anda. Arið 1997 hittumst við fyrst á námskeiði í jurtalitun hjá Heimilisiðnaðarfélagi Islands. Þangað komum við hvor úr sinni áttinni. Þorgerður hafði lært efnalitun í Textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Islands og hana hafði lengi langað að bæta jurtalitun við. Sigrún er líf- og umhverfisfræðingur, með áhuga á plöntum frá barnæsku og hafði kynnst hefðbundinni, íslenskri jurtalitun hjá alþýðulistakonunni Guðrúnu Einarsdóttur frá Sellátrum í Tálknafirði. Síðan hafa leiðir okkar legið saman. Tilviljun réði því að um tíma bjuggum við báðar í Vancouver í Kanada. Þar fórum við á námskeið í jurtalitun hjá konu sem aftur hafði lært hana víða, meðal annars í Tyrklandi og Indlandi. Þorgerður sótti mörg námskeið á hennar vegum og prófaði líka margvíslegar litunaraðferðir og gerði rannsóknir á þeim við Háskólann í Bresku Kólumbíu. Frá því að við komum heim höfum við kennt jurtalitun við Heimilisiðnaðarskólann og víðar og dreifum þá til nemenda okkar uppskriftum og leiðbeiningum sem sífellt aukast að vöxt- um. Við höfum prófað okkur áfram með alls kyns íslenskar plöntur og aðferðir og einnig litað útsaumsgarn í fjölmörgum litum fyrir Heimilisiðnaðarfélagið. Nú fannst okkur tími til kominn að safna minnisblöðunum okkar saman, bæta textann, auka hann og myndskreyta og gefa út. Markmið okkar var að miðla öðrum einhverju af því sem við höfum viðað að okkur og koma á prent hagnýtum leiðbeiningum um jurtalitun. 1 bók- inni Foldarskart leggjum við áherslu á einfaldar aðferðir til jurtalitunar og góðar skýringar á hvaða áhöld og aðstaða sé nauðsynleg. Aðferðir okkar byggja á gömlum hefðum en taka mið af nútíma þekkingu, aðstæðum og náttúruvernd og skila ágætum árangri þótt sleppt sé að nota ýmis eitruð hjálparefni sem áður voru notuð. Fyrrum kunni fólk á flestum bæjum eitt- hvað til jurtalitunar. Við vonum að bókin hvetji fólk til að láta ekki þekkingu glatast heldur læri af sér eldra fólki sem enn kann til verka frá gamalli tíð. Einnig að það hirði og varðveiti og láti ganga áfram uppskriftir og önnur þekkingarbrot sem hugsanlega leynast enn í kistuhandröðum um allt land. Við vonum líka að bókin opni augu fólks fyrir ánægj- unni við jurtalitun og hjálpi sem flestum að taka fýrstu skrefin við þá iðju. Við vitum að þetta hefur að einhverju leyti tekist. Við höfum fengið kveðjur og þakk- læti frá fólki sem farið er að jurtalita með hjálp bókarinnar. Einnig hefur fólk haft samband við okkur til að sýna okkur gam- alt jurtalitað band og til að segja okkur frá reynslu sinni og þekkingu af jurtalitun. Við vitum að víða er fólk að prófa sig áfram við að lita úr jurtum og jafnvel að lita í miklum mæli. Draumurinn er að halda áfram og safna, með samstillu átaki margra, sem mestri þekkingu um þessa ævafornu iðju og gefa út enn stærri og veglegri bók síðar. Þangað til vonum við að bókin okkar, Foldarskart í ull og fat veiti fólki bæði gagn og gaman. Heimilisiðnaðarsafnið - Textile Museum - eina sérgreinda textílsafnið á íslandi - Minnum á bókina Vefnaður á íslenskum heimilum. Tilvalin tækifærisgjöf. Fáanleg á tilboðsverði hjá Heimilisiðnaðarsafninu Opnunartími: 1. júní - 31. ágúst frá 10-17. Árbraut 29, Blönduósi • Sími 452 4067 textile@textile.is ■ www.textile.is HUGUR OG HÖND 2011 23

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.