Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 27

Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 27
Elísabet vinnur við Perluna. hugljómun. Hún sá mann sem stóð í stafni og sigldi út á haf. Hann horfði fram á við en sneri sér þannig að hann horfði samtímis til baka, til lands. Þessi mynd var í huga hennar þegar hún skapaði höggmyndina Perluna sem stendur í garðinum. Og þessi sýn varð til þess að ákveðinn snúningur eða snúin stelling varð einkenni margra af styttum hennar. Eftir Elísabetu liggja verk af ýmsum toga. Hún teiknaði mikið og má nefna dæmi eins og falleg jólakort sem hún teiknaði fyrir I.O.G.T., félagsfána fyrir ýmis félög og einnig teiknaði hún mynd- ir á fermingarskeyd fýrir skáta. Hún hannaði og saumaði ýmsa búninga fyrir öskudag og grímudansleiki, sem kom sér vel þar sem ekkert slíkt var á boðstólum í verslunum á þessum tíma. Elísabet myndskreytti einnig nokkrar bækur. Líflegar og liprar barnateikningar hennar sýna afar frjóan hugmyndaheim en við- fangsefnið í þeim er ýmist ævintýrakennt eða tekið beint úr daglegu lífi. Myndskreytingar gerði hún einnig við mörg Ijóða sinna en hún sinnti ritstörf- um meðfram handverkinu. Einnig samdi hún lög við sum ljóðanna. Þekktust er Elísabet þó fyrir styttur sínar sem ýmist voru skornar úr viði eða steyptar. Hún gerði vinnuteikningar og dró upp hug- myndir að hlutbundnum myndverkum sínum sem urðu allmörg. Kunnugir segja frá því að þegar Elísabet féklc í hendur viðarkubb hafi hún fljótt áttað sig á því hvers konar myndverk hún gæti skorið úr honum. Hún skar út af mikilli Pennan bikar skar Elísabet út og gaf eiginmanni sínum i heiíursskyni fyrir frœknleik á skautum. nákvæmni ýmsa hluti og notaði þá helst birkilurka sem fengnir voru úr Vaglaskógi. Dæmi um þetta er m.a. bikar með skaut- ara á lokinu, gripur sem hún skar út og heiðraði eiginmanninn með vegna færni hans á skautum en það var íþrótt sem þau hjón stunduðu bæði af kappi á Pollinum á vetrum. Pollurinn var á þeim tíma oft ísilagður langtímum saman en þau Elísabet og Agúst voru snjallir skau- tadansarar og sýndu stundum listir sínar á upplýstu svellinu. Steypt verk Elísabetar voru af ýmsu tagi. Hún sótti sér leir þar sem heita Hamraborgir og Naustaborgir rétt norð- an við Kjarnaland ofan Akureyrar. Ur þessum leir mótaði hún frummyndir að styttum sínum. Elísabet þurfti að halda sig vel að verki því að leirinn var mjög stökkur og mátti helst ekki þorna. Hún vafði blautum tuskum utan um verk sín til að halda þeim rökum á meðan þau voru í sköpun. Þegar frumgerð leir- myndar var fullunnin var tekið gifsmót af henni og mótið síðan notað til að steypa hið endanlega verk: steinstyttu eða gifsstyttu eftir stærð og tegund. Margar stytturnar voru litlar, en ekki allar. Otiverk hennar steypt úr stein- steypu eru allt að fullri mannsstærð. Slík stytta gerð úr sterkri steypublöndu getur staðið af sér veður og vind í misjöfnu tíðarfari. Dæmi um þetta er verk Elísabetar sem nefnist Perlan en það er konumynd í hinni dæmigerðu snúnings- stöðu. Og í lófa konunnar liggur perla. Þetta verk auk annarrar styttu er enn á sínum stað í garðinum við Aðalstræti 70 Sumardagurinn fyrsti 1947. á Akureyri. Litlar styttur og gifsverk Elísabetar eru nú sjaldséðir gripir og eft- irsóttir. Þar má nefna styttur af konum í íslenskum þjóðbúningi, ýmsar konu- myndir aðrar, stytta af glímumönnum og stytta af fólki að binda bagga. Þessi verk eru ca. 20 - 35 sm að stærð. Telja má að einna mesta athygli almennings hafi þó vakið glæsilegar sryttur Elísabetar gerðar úr snjó. Hún nýtti sér þann efnivið sem fékkst hverju sinni en það sýnir hversu sterk sköpunarþörf hennar var. Snjóverkin voru mynduð og prentuð í dagblöðum og tímaritum. Gleði í línum. HUGUR 0G HÖND 2011 27

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.