Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 28

Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 28
Enda þótt Elísabet hafi fengið góðan stuðning frá fjölskyldu sinni er þó aug- ljóst að hún hefur ekki haft tíma til að útfæra nærri allar hugmyndir sínar. Það sést af orðum hennar í eftirfarandi ljóði: Það drukknar svo margt í daglegri önn sem dreymir minn huga að vinna, við matargerð, sauma og margskonar strit þeim myndum ei hægt er að sinna, er sækja á hugann við háleitust störf, og hvísla mér þrálátt í eyra, þá ferðast minn hugur á framandi svið er fæ ég þær raddir að heyra. En langflestar sökkva í hyldýpishaf þær hugmyndir stórar og smáar, þó einstaka fái í efninu líf þær eru svo sorglega fáar. Því grafnar að hálfu í gleymskunnar sand, þó gefist mér tóm þeim að sinna þær krefjast þess allar að öðlast hér líf, hver einasta draumsýna minna. Ég reyni eftir megni að læra þá list svo leyst verði tjáningarþörfin, að glíma í huga við ljóð eða lag það léttir hin daglegu störfin. En aðeins það veitir mér augnabliks ró í annríki líðandi stunda, því draumsýnir þær bíða óleystar enn sem innst mér í hugskoti blunda. Yfir verkum Elísabetar mörgum hverj- um er einhver mögnuð dulúð, hún túlkar hulduheim sem henni einni var kunnur. Um hana hefur verið sagt að ekkert af því sem hún fékkst við hafi verið unnið til fjár eða frægðar. Hana knúði innri nauðsyn og eldmóður og verk hennar öll eru augsýnilega unnin af alúð. I sumum verkum Elísabetar sést að hún vann í sama anda og listamenn eins og Einar Jónsson og Nína Sæmundsson. Verkin bera með sér und- ursamlega heillandi blæ sem er vand- túlkaður en þeim mun sérstakari og merkilegri. Heimildir: Bókin „Listakonan í fjörunni“ gefin út árið 1989. Edda Eiríksdóttir, Akureyri, Delta Kappa Gamma. Viðtöl við Asgrím Ágústsson og Jennýju Karlsdóttur. Ritgerð Elísabetar I. Ásgrímsdóttur gerð 2010. Tímaritið Vorið frá 1951. Húsfreyjur í hátíðabúningi (20 cm). prsumarbúðir 2011 geyri 3. - 9. júlí. ámskeið, sölumarkað, sýningar, fyrirlestra og uppákomur. Spjaldvefnaður §i Eldsmíði Málmsteypa # Tálga úrýsubeini Sauðskinnskór-i'U par B Leikbrúðugerð §^ Útsaumur Lopapeysuprjón Jurtalitun $ f§ List úr lokkum §§ Vattarsaumur §§ Útskurður §§ Leggjaflautusmíði - nálhús # Laufaviðarvettlingar §^ íslensk matargerð §§ Skraut og fylgihlutir §§ Barnanámskeið: blanda af handverki, leikjum, útivist og hreyfingu. v> 'í: Ferð um Arnarfjörð. Safn Jóns Sigurðssonar, Safn Samúels Jónssonar í Selárdal og Dynjandi. KVÖLDVÖKUR Sunnudagskvöld: Kynning á víkingaverkefni Þingeyrar. Mánudagskvöld: Þjóðbúningakynning Þriðjudagskvöld: Leikbrúðusýning Bernd Ogrodni"Unnbreyting - Ijóð á hreyfingu" Miðvikudagskvöld: Frjálst Fimmtudagskvöld: Fyrirlestur listakonunnar Kristinar Flelgadóttur - "Sjávarperlur" Föstudagskvöld: Hátíðarkvöldverður með leiksýningu Gisla Sögu Súrssonar. Leikari: Elfar Logi Hannesson Sjá dagskrá og skráningarblað á www.heimilisidnadur.is Heimilisiðnaðarfélag íslands tyjóíÉúniivjaJáay TeajJþncía. 28 HUGUR 0G HÖND 2011

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.