Hugur og hönd - 01.06.2011, Page 29
Sigurlaug Hjaltadóttir
Heklað og prjónað fyrir
haustbrúðkaup
10.10.10.
Elín Björk Jónasdóttir býr í Reykjavík
en ólst upp í Garðinum. Eftir stúdents-
próf frá MA hélt hún utan til
Bandaríkjanna til náms í veðurfræði og
vinnur nú við veðurspágerð auk þess að
vinna að meistararitgerð sinni í veður-
fræði. Henni þykir óskaplega gaman að
prjóna og saumar líka talsvert. Hún og
unnustinn, Daníel, gengu í hjónaband
síðastliðið haust og það var vel við hæfi
að veðurfræðingurinn veldi slíkan góð-
viðrisdag; 10. október voru methlýindi
og blíðan minnti heldur á góðan sum-
ardag en haustið.
Þegar kom að undirbúningi brúð-
kaupsins ákvað hin verðandi brúður að
brúðarkjóllinn yrði heimaprjónaður.
Efnið í kjólinn fékk hún hjá vinkonu
sinni, Guðrúnu Bjarnadóttur á
Hvanneyri, einband litað úr litunar-
mosa. Þegar til kom var tíminn til
hannyrða þó heldur minni en ætlað var
og kjóllinn var því keyptur. Hins vegar
ákvað Elín að prjóna sér hyrnu við kjól-
inn og vesti á synina tvo, tæplega tveggja
og fimm ára gamla. Sitthvað fleira bætt-
ist svo við.
Hyrnan var prjónuð úr jurtalitaða
bandinu og hárskrautið var unnið í stíl
við hyrnuna, heklað blóm skreytt perl-
um. Fleiri hekluð blóm bættust svo í
safnið, bæði úr mosalitaða bandinu svo
og ýmsu öðru bandi sem til var á heim-
ilinu, allt frá íslensku hosubandi til
móher-garns. Afrakstrinum raðaði Elín
Björk svo á kransa og keilur til þess að
skreyta borðin. Tvær hvítar skálar, sem
Elín Björk hafði heklað í dauðum tíma
á næturvakt og svo stífað með sykri,
höfðu tekist svo ljómandi vel að þær
voru notaðar á gjafaborðinu fyrir kort
frá brúðkaupsgestum.
Eftir brúðkaupið var borðskrautið svo
endurnýtt í spangir og hárspennur m.a.
til jólagjafa þetta árið!
Hyrna (mynstrið er Hyrna Herborgar úr bókinni
Þríhyrnum og langsjölum) og hdrskraut úr jurtalit-
uðu einbandi.
Hárskrautið sem Elín Björk heklaði við brúðkaups-
hyrnuna sína.
Hekluð skál undir gjafakort. Uppskriftina fann
Elín Björk á Ravelry-vefnum.
Kransar. Uppskriftirnar að rósunum fann Elín
Björk á Ravelry-vefnum.
Keila skreytt hekluðum blómum úr einbandi.
Elín Björk með heimagerða hárspöng.
HUGUR OG HÖND 2011 29