Fréttablaðið - 13.03.2020, Page 6

Fréttablaðið - 13.03.2020, Page 6
Ég var kulsæll en núna þoli ég illa hitann í húsunum. Ég öfunda samt hitaveitunot- endur stundum því það er mikið moj og óþrifnaður af eldi þótt hann sé hlýlegur og merkilegur vinur. Tryggvi HansenTekin verður til greina annars konar staðfesting á ástundun en vottorð um að einingum sé lokið. NÁTTÚRA „Ég tek myndir eiginlega bara í ljótasta og vanræktasta og misþyrmdasta vatni á Íslandi,“ segir listamaðurinn Tryggvi Hansen sem frá því vorið 2015 hefur búið í skógarrjóðri við Rauðavatn. Tryggvi er langt kominn með fimmta veturinn í búðum sínum við Rauðavatn. „Nú er ég í sex fer- metra koti sem ég náði upp í haust og er með gólfi og einangrun,“ segir hann. Viðarofn kyndi hann einu sinni til tvisvar á sólarhring og oftar í frostum. „Ég var kulsæll en núna þoli ég illa hitann í húsunum. Ég öfunda samt hitaveitunotendur stundum því það er mikið moj og óþrifnaður af eldi þótt hann sé hlýlegur og merkilegur vinur,“ útskýrir Tryggvi sem raunar vill lítið tala um harðræði sem fylgir þessum lífsmáta. Frekar kýs hann að ræða um listina. Og um Rauða- vatn sjálft sem hann ljósmyndar af næmi svo eftir hefur verið tekið. „Ég er með kajak og hef skoðað vatnið í lág- og hástöðu, frosið og ófrosið öll árin hér,“ segir Tryggvi. „Myndirnar segja að fegurðin er ekki bara í hinu stóra, jöklinum og fossum. Fegurðin er alls staðar í hinu villta lífi. Líka í mýrinni og leirnum. Og í auga, hjarta og næmi skoðandans.“ Tryggva blöskrar hvernig farið hefur verið með lífríki Rauðavatns. Vegagerðin hafi fyrir mörgum ára- tugum tekið af því innrennslið. Vatnsstaðan sé því alltof of lág og vatnið súrefnislaust og lífvana. Alls konar drasl hafi safnast í vatnið og það verið gert að drullupolli. „En ég er með alveg plan um hvernig á að lífga vatnið og fegra,“ segir listamaðurinn. Leiða þurfi vatn úr ánni Bugðu undir veginn og að vatninu. Hann sér fyrir sér að vatnið verði dýpkað og að í því verði gerð eyja. „Allt færi að sprikla af lífi aftur í vatninu og það hreinsar sig. Og eftir nokkur slík ár þá er það aftur bað- hæft. Þá kæmu baðhús. Silungur kæmi aftur og kristaltært vatnið yrði fullt af lífi,“ lýsir Tryggvi. Hann sér fyrir sér félagsskap um Rauðavatn og endurlífgun þess og umhverfis. „Það gæti heitið Vinir Rauðavatns.“ Raunar kveðst Tryggvi vilja stofna framboð náttúruunnenda. „Eitt fyrsta mál á dagskrá þar er að stefna á að allir Íslendingar fái sem fæðingargjöf einn hektara lands til skógræktar og eflingar í sjálfbærni,“ segir hann. Þá segir Tryggvi að klæða þurfi landið, ef la birkiskóga, mýrar og villt dýralíf, setja niður berjagef- andi tré og efla skjól. „Við eigum að ef la allt líf, hreinsa hafið og hafs- botninn. Og fjörur og lönd. Við eigum að kveikja eld við hlóðir og ræða saman í bróðerni. Við erum nánast sama veran.“ gar@frettabladid.is Vill láta endurlífga Rauðavatn Tryggva Hansen, sem nú ver sínum fimmta vetri við Rauðavatn, rennur til rifja hversu grátt leikið vatnið er. Gera megi það spriklandi af lífi. Ljósmyndir Tryggva frá náttúrunni við vatnið hafa vakið eftirtekt. Marin forsætisráðherra Finnlands. Listamaðurinn Tryggvi Hansen í uppþornuðum árfarvegi austan við Rauðavatn. Hann telur að veita ætti vatni í farveginn að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Tryggvi er virkur í að birta ljósmyndir sínar á netinu. MYND/TRYGGVI HANSEN EVRÓPA Nokkur Evrópulönd hafa ákveðið að loka skólum og öðrum menntastofnunum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Yfirvöld í Danmörk tilkynntu að skólum og menntastofnunum yrðu lokað vegna ástandsins og hafa ýmis sveitarfélög í Noregi gripið til sams konar aðgerða. Írsk stjórnvöld upplýstu í gær að öllum mennta- stofnunum yrði lokað til marsloka. Leo Vardakar, forsætisráðherra Írlands, varaði við að írskur efna- hagur myndi bíða hnekki vegna faraldursins. „Því miður verðum við líka að horfast í augu við þá stað reynd að fólk mun deyja,“ sagði hann í yfirlýsingu í gær. Þá hafa Finnland og Svíþjóð sett bann á samkomur með meira en 500 manns. „Stærri viðburðum verður aflýst og við hvetjum fólk til að huga sérstaklega að þeim sem til- heyra áhættuhópum,“ sagði Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, í gær. – atv Skólalokanir og samkomubann COVID-19 Donald Trump Banda- ríkjaforseti lýsti yfir ferðabanni frá 26 Schengen-ríkjum ESB og EFTA. Hefur hann hlotið harða gagnrýni fyrir þetta frá Evrópusambandinu og íslensk stjórnvöld hafa tekið í sama streng. Með þessari aðgerð hlífir Trump bæði Bretlandi og Írlandi þar sem hann á sjálfur mikla viðskiptahagsmuni en hætta af veirunni er til staðar þar. Bandaríkjastjórn, og Trump sér- staklega, hefur áður verið gagnrýnd fyrir sofandahátt gagnvart COVID- 19 og fáar prófanir á fólki. Alls hafa tæplega 1.400 manns greinst með veiruna í landinu og 38 dáið af völdum sjúkdómsins. Veiran hefur greinst í 42 af 50 ríkjum og þau sem hafa sloppið eru fámenn og víð- feðm eins og Alaska, Montana og Wyoming. Nær öruggt er að útbreiðslan sé mun meiri en opinberar tölur gefa til kynna því prófanir hófust ekki af alvöru fyrr en um mánaðamótin. Hlutfall prófana í Bandaríkjunum er aðeins 26 á hverja milljón íbúa. Suður-Kóreumenn prófa mest, 4.545 á hverja milljón, Kína 2.820, Ítalía 1.212, Bretland 456, Rússland 481, Kanada 269, Japan 79 og Ísland 1.949. Nýjustu smitin sem greinst hafa hér á Íslandi áttu upptök sín í Bandaríkjunum. Hverju ferðabannið eigi að skila skilja Evrópuþjóðir ekki. „Kóróna- veiran er heimsvandamál, ekki bundið við ákveðnar heimsálfur, og við þurfum að vinna saman, ekki taka svo einhliða ákvarðanir,“ sögðu leiðtogar ESB, Ursula von der Leyen og Charles Michel, í yfirlýsingu í gær. Búist er við aðgerðum af hálfu ESB gagnvart Bandaríkjunum vegna bannsins. Þá krefjast íslensk stjórnvöld þess að ferðabanninu verði aflétt og hefur Guðlaugur Þór Þórðarson óskað eftir símafundi með Mike Pompeo utan- ríkisráðherra. Athygli vekur að Bretland og Írland eru undanskilin banninu, en í báðum löndum rekur Trump lúx- ushótel og golfklúbba sem myndu skaðast við ferðabann. – khg Donald Trump á í vök að verjast vegna ferðabannsins COVID -19 Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) ætlar að koma til móts við námsmenn vegna COVID- 19 með því að taka til greina annars konar staðfestingu á ástundun nem- enda en vottorð um að einingum sé lokið. Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu kemur fram að gripið sé til úrræðisins til að bregðast við aðstæðum nemenda sem mögulega geta ekki sinnt námi sínu vegna röskunar á hefðbundnu skólastarfi vegna kórónaveirunnar. Tekið verður mið af umsóttum einingafjölda nemenda í samræmi við lánsáætlun þeirra fyrir önn- ina sé þess óskað. Sama gildir fyrir nemendur sem veikjast af COVID- 19 og geta ekki sótt skóla í lengri tíma þannig að það hafi áhrif á námsframvindu. Einnig geta nem- endur sótt um auka ferðalán vegna sérstakra aðstæðna sem leiða til aukaferða vegna veirunnar. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir aðstæður kalla á sveigjanleika af hálfu samfélagsins alls. „Ég tel það víst að þessi ákvörðun muni létta áhyggjur margra,“ segir hún. – bdj LÍN kemur til móts við námsmenn Ákvörðun Trump er harðlega gagn- rýnd og sögð skila litlu. MYND/GETTY 1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.