Fréttablaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 32
VIÐ PRÓFUÐUM
MARGAR LEIÐIR AÐ
LEIKGERÐINNI OG FUNDUM
FLJÓTT AÐ MIKILVÆGAST VÆRI
AÐ HALDA Í TÓNINN OG
TENGSLIN VIÐ DÓTTURINA OG
LEYFA SÉR FRELSI Í ÖÐRU.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
13. MARS 2020
Hvað? Hljóð&Mynd
Hvenær? 12.15
Hvar? Listaháskóli Íslands, Þver-
holti 11, fyrirlestrasalur A
Hljóð- og myndlistarkonan
Þóranna Dögg Björnsdóttir heldur
erindi um þverfagleg vinnubrögð
og þreifingar í eigin listsköpun;
smíðar og samsetningar með ólík
efni, sjónrænt og með hljóði og
tónlist. Allir velkomnir.
Hvað? Fjölskyldustund og kvöld-
kirkja
Hvenær? 18.00-22.00
Hvar? Dómkirkjan
Fjölskyldustund og kvöldverður,
hugvekja í höndum Bryndísar Jak-
obsdóttur. Hugleiðslu- og bæna-
tónlist á gong. Kvöldsöngur. Verið
hjartanlega velkomin!
Hvað? Samruni eðlisfræði og mann-
legrar vitundar
Hvenær? 20.00
Hvar? Lífspekifélagið, Ingólfsstræti
22
Gylfi Aðalsteinsson flytur erindi
sem er opið öllum áhugasömum.
Hvað? Sól veður í skýjum og augun
opnast
Hvenær? 17.00
Hvar? Núllið Gallerý, Bankastræti
Sigurrós Ólafsdóttir opnar sýn-
ingu sem verður opin yfir helgina
frá hádegi til klukkan 18.
Hvað? Af jörðu
Hvenær? 17.00
Hvar? Gallerí Úthverfa á Ísafirði
Rósa Sigrún Jónsdóttir mynd-
listarkona opnar einkasýningu
og gerir þar tilraunir með nýjar
aðferðir sköpunar.
Hvað? Glópagull : Þjóðsaga
Hvenær? 17.00
Hvar? Midpunkt, Hamraborg,
Kópavogi
Steinunn Gunnlaugsdóttir opnar
sýningu sem samanstendur af
tveimur sjálfstæðum verkum sem
tengjast í gegnum ólík en skyld
vísindaleg ferli sem fara fram á
hríðdimmri heiði í grennd við
mannabyggðir.
Hvað? List-míla
Hvenær? 17.00
Hvar? Odda, HÍ
Sýning opnuð á 170 verkum úr
safneign Listasafns HÍ í fimm
byggingum skólans.
Hvað? Vorið og vonin í jazzperlum
Hvenær? 12.15.-13.00
Hvar? Borgarbókasafn Gerðubergi
María Magnúsdóttir syngur tón-
list þar sem yrkisefnið er vorið.
Gunnar Hilmarsson leikur á gítar
og Leifur Gunnarsson á kontra-
bassa.
Hvað? Norðurljósablús
Hvenær? 21.00
Hvar? Pakkhúsið Höfn í Hornafirði
Lúðrasveit Hornafjarðar, Unnur
Birna og Bjössi Thor og Una Stef &
The SP-74
Hvað? Djákninn á Myrká
Hvenær? 20.30
Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu
Sýningin hefur slegið í gegn hjá
Leikfélagi Akureyrar.
Bassaleikarinn Leifur Gunn-arsson heldur útgáfutónleika í kvöld klukkan 20 á Björtu-
loftum í Hörpu. Þar verða f lutt lög
af plötu hans Tónn úr tómi. Hann
segir tónlistina vera margslunginn
instrumental djass og hluti verk-
anna er byggður á lánsstefum frá
nokkrum meisturum sígildrar tón-
listar. Á plötunni og á útgáfutón-
leikunum spila, ásamt Leifi, Snorri
Sigurðsson, trompet og flügelhorn,
Sunna Gunnlaugsdóttir, píanó, og
trommuleikarinn Scott McLemore.
„Ég hef lengi gengið með þá hug-
mynd í kollinum að smíða tónlist
fyrir hrynsveit og sólista byggða
á efniviði úr sígildri tónlist. Fyrir
nokkrum árum gerði ég fyrstu til-
raunina með það þegar ég skrifaði
verk byggt á lánsmótívum úr 1.
kaf la úr Myndum á sýningu eftir
Mussorgsky. Verkið var ekki ein-
göngu byggt úr lánsmótívum heldur
sótti það einnig innblástur í form
og uppbyggingu. Þrátt fyrir þetta
er um algjörlega nýja tónsmíði að
ræða,“ segir Leifur.
Þessir tónleikar eru ekki þeir einu
sem Leifur kemur að þessa dagana.
„Ég hef síðustu fimm ár haldið úti
tónleikaröðinni Jazz í hádeginu í
samstarfi við Borgarbókasafnið.
Hugmyndafræði tónleikaraðarinn-
ar er að færa tónlistina út í úthverfin
svo við ferðumst með tónleika á
milli safna. Í þessari atrennu eru
það María Magnúsdóttir söngkona
og Gunnar Hilmarsson gítarleikari
sem koma fram ásamt mér og flytja
efni undir þemanu Vorið og vonin í
jazzperlum. Tónleikarnir fara alltaf
fram á fimmtudögum, föstudögum
og laugardögum í Grófinni, Gerðu-
bergi og Spönginni, um það bil einu
sinni í mánuði.“
Margslunginn djass
Le i k r it ið Kó p avo g s -krónika verður frumsýnt í Kassanum Lindargötu á morgun, laugardaginn 14. mars. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu
Kamillu Einarsdóttur sem kom út
árið 2018. Þar talar móðir til dóttur
sinnar og gerir upp fortíð sína. Móð-
urina leikur Ilmur Kristjánsdóttir
og Silja Hauksdóttir leikstýrir, en
þær eru einnig handritshöfundar.
Arnmundur Ernst Backman og
Þórey Birgisdóttir eru aðrir leikarar
sýningarinnar.
„Ég las bókina stuttu eftir að hún
kom út og gat ekki lagt hana frá mér
fyrr en ég var búin með hana. Það er
frábær tónn í henni sem greip mig,
hún lýsir því ljúfsára svo fallega og
grípandi,“ segir Silja. „Mér fannst
spennandi að horfa inn í og fá að
heyra persónu segja hluti, sem flestar
mæður í hennar sporum myndu taka
með sér í gröfina eða segja engum frá
nema mögulega sálfræðingi, og játa
allt þetta fyrir dóttur sinni. Við erum
ekki vön því að fá svona óritskoðaðar
játningar breyskrar konu af köflóttu
lífi. Þær gripu mig og svo er bókin
mjög fyndin.“
Stanslaust samtal
Um samvinnu þeirra Ilmar segir
Silja: „Það var stanslaust samtal
milli okkar í ár um aðalpersónuna
og það sem hún er að ganga í gegn-
um og afstöðu hennar til þeirra
hluta og tengsl hennar, eða tengsla-
leysi, við fólk og þá ekki síst dóttur-
ina. Við prófuðum margar leiðir að
leikgerðinni og fundum f ljótt að
mikilvægast væri að halda í tóninn
og tengslin við dótturina og leyfa
sér frelsi í öðru.“
Þegar hún er spurð hvaða leið hún
hafi farið í leikstjórn segir hún: „Mig
langaði til að ná utan um áhrifarík-
ustu þættina og ég vil trúa því að við
séum trú ákveðnum anda. Sýningin
er alveg nýtt verk, byggð á þessum
skáldsagnargrunni. Mér finnst líka
mikilvægt að taka utan um það að
sögupersónan er að segja sína hlið,
hún dregur upp mynd af samferða-
fólki sínu sem er mjög skýr, kómísk
og jafnvel tvívíð og leyfir sér að
gera það, þetta er hennar saga og
hún ræður. Þetta finnst mér mikil-
vægt að komi fram í verkinu – hún
er stjórinn í þessari sögu.“
Auðvelt að vera í núvitund
Silja er þaulvanur leikstjóri og leik-
stýrði meðal annars kvikmyndinni
Agnes Joy sem hlaut mikið lof gagn-
rýnenda. Kópavogskróníkan er
Óritskoðaðar
játningar móður
Silja Hauksdóttir leikstýrir Kópavogs-
króniku. Þaulvanur leikstjóri tekst á við
fyrsta leikstjórnarverkefni sitt í leikhúsi.
Mig langaði til að ná utan um áhrifaríkustu þættina, segir Silja um Kópavogskróniku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
fyrsta leikstjórnarverkefni hennar
í leikhúsi. Hún er spurð hvað hafi
komið henni mest á óvart við að
leikstýra í leikhúsi. „Það sem mér
finnst skemmtilegast er að allar
breytingar sem maður gerir eru svo
áþreifanlegar fljótt. Þegar við tökum
ákvörðun um að prófa eitthvað
nýtt eða breyta hlutum þá finnum
við strax hvort það virkar eða ekki.
Þegar maður vinnur að kvikmynd
þarf maður að þróa með sér lang-
lundargeð en í leikhúsi þarf ekki að
nýta það í eins miklum mæli.
Það er mjög auðvelt að vera í
núvitund í vinnu eins og þessari af
því að maður er alltaf á staðnum.
Hér er fólk líka stöðugt að skapa
saman. Allt frá fyrsta æfingardegi
og þar til við frumsýnum erum við
hönd í hönd að búa til sýningu, sem
við berum saman á borð fyrir áhorf-
endur og bjóðum þeim svo að gjöra
svo vel.“
Leifur Gunnarsson bassaleikari.
Þóranna Dögg Björnsdóttir, píanó-
leikari og gjörningalistamaður,
flytur erindi í LHÍ, Þverholti.
Eitt af verkum Rósu Sigrúnar á
sýningu í Gallerí Úthverfu á Ísafirði.
1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING