Fréttablaðið - 13.03.2020, Síða 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is,
Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Það er
kreppa í
vændum en
með réttum
og skjótum
ákvörð-
unum eru
allar for-
sendur fyrir
því að hún
verði
skamm vinn
og við-
spyrnan
kröftug.
Mikilvægt er
að mæta því
áfalli sem ljóst
er að mörg
fyrirtæki
verða fyrir,
ekki síst eftir
að Donald
Trump tók þá
fáránlegu
ákvörðun að
setja ferða-
bann á Schen-
gen-svæðið.
Aðalfundur MATVÍS
( matvæla-og veitingafélags Íslands )
verður haldinn í 2F Húsi fagfélaganna Stórhöfða 31.
miðvikudaginn 15. apríl n.k kl. 16.00.
Gengið inn Grafarvogsmegin.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál.
AÐALFUNDUR
Óveðursský hrannast upp í efnahagsmálum vegna COVID-19 faraldursins. Ljóst er að hann mun hafa mikil áhrif á íslenskt efna-
hagslíf, sem og önnur lönd. Ísland stendur vel,
ólíkt mörgum öðrum löndum. Ríkisfjármálin og
fjármálakerfið hafa, frá hruni, verið byggð upp til
að standa af sér áfall og nú búum við að því. Því
getum við gripið til nauðsynlegra aðgerða til að
bregðast við áföllum og örvað efnahagslífið.
Ríkisstjórnin tilkynnti á þriðjudag um að brugð-
ist verði við stöðunni með aðgerðum og mynduð
viðspyrna fyrir íslenskt efnahagslíf. Þetta er fyrsta
skref af mörgum, raunar annað þar sem áður hefur
verið tilkynnt um að fólk í sóttkví fái laun. Staðan
sem við erum í býður ekki upp á heildarpakka sem
kynntur verði í smáatriðum í eitt skipti fyrir öll,
heldur þarf markvissar aðgerðir sem taka mið af
stöðunni hverju sinni.
Sjónum er fyrsta kastið beint að því að styðja
atvinnulífið og þar með okkur öll, því fyrirtækin
eru ekki annað en fólkið sem þar vinnur. Mikil-
vægt er að mæta því áfalli sem ljóst er að mörg
fyrirtæki verða fyrir, ekki síst eftir að Donald
Trump tók þá fáránlegu ákvörðun að setja ferða-
bann á Schengen-svæðið. Nánari útfærsla á þeim
aðgerðum verður kynnt á næstunni. Hugað verður
að því að aðgerðirnar nýtist best þar sem þörfin er
mest. Næstu skref verða síðan stigin eftir þörf til að
verja velferðina.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði
með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna í
gær og í dag verður fundað með fleiri aðilum, til
dæmis aðilum vinnumarkaðarins. Það er mikil-
vægt að við sýnum samstöðu í erfiðri stöðu sem
nú. Við þurfum öll að taka höndum saman til
að bregðast við, þar skiptir engu hvar í f lokk við
skipum okkur.
Okkar alþingismanna bíður að takast á við
mikilvæg mál sem munu skipta sköpum fyrir
þjóðarbúið. Þar verðum við að sýna ábyrgð.
Gerum það sem gera þarf og gerum það saman.
Gerum það sem þarf
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
þingmaður
Vinstri grænna
Vináttan
Veiran skekur nú samfélög með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Trump stökk fram í fyrrinótt og
lagði bann við för ferðamanna
frá Evrópu til lands hinna frjálsu
og hugrökku. Bretland er þó ekki
með í banninu, því það er ekki
aðili að Schengen, eða það var
skýringin. Kannski er skýringin
sú, eða kannski einhver önnur.
Trump hefur ekki farið dult með
aðdáun sína á Boris og virðist
sjá margt líkt með sér og honum.
Kannski hefur það átt sinn þátt.
Hvað sem því líður er svolítið
sérkennilegt að þrjár þeirra sýk-
inga sem hér hafa komið upp eru
raktar til Bandaríkja Trumps.
Heilsa
COVID-19 hefur haft veruleg
áhrif á samskipti fólks hér á land
sem og víðar. Hér er handa-
bandið landlægt en allir eru
hættir að takast í hendur. Það
sem áður var skínandi opnun
á samskiptum, handabandið,
er nú horfið og í staðinn komið
vandræðalegt augnablik. Sumir
hafa tekið upp á að snertast með
öðrum hætti, svo sem slá saman
olnbogum. Kauðslegast af þessu
öllu er fótasnertingin, auk þess
sem hættan á því að missa jafn-
vægið standandi á einum fæti
vex að mun. Enginn missir jafn-
vægið við blessað handabandið.
Þetta eru þó algerir smámunir
en margir hlakka til að geta
tekist í hendur á ný. Þess verður
ekki langt að bíða.
Þegar hvatvís bjáni, sem var kominn út í horn heima fyrir vegna aðgerðaleysis við útbreiðslu kórónaveirunnar, stýrir voldugasta ríki heims – sem er hættuleg uppskrift – þá var kannski við því að búast að niðurstaðan yrði þessi.
Ákvörðun Bandaríkjaforseta um að setja á flugbann
við ferðum frá Evrópu til Bandaríkjanna í þrjátíu daga
hittir ekkert ríki jafn illa fyrir og Ísland. Áhrifin á ferða-
þjónustuna, einkum Icelandair, og um leið efnahagslífið
eiga eftir að verða gríðarleg. Viðskiptamódel Icelandair
byggist á því að ferja flugfarþega milli meginlands Evr-
ópu og Bandaríkjanna og flugáætlun félagsins mun því
riðlast umtalsvert. Það vinnur með Icelandair við þessar
aðstæður að félagið er með nokkuð sterkan efnahags-
reikning og lausafjárstöðu. Það mun samt duga skammt
ef eftirspurn og bókanir halda áfram að vera hverfandi.
Líklega er aðeins tímaspursmál hvenær stjórnvöld þurfa
að taka afstöðu til þess hvernig, frekar en hvort, eigi að
koma flugfélaginu til aðstoðar í þessum þrengingum.
Útilokað er að spá fyrir um hversu lengi þetta efna-
hagsástand mun vara. Eftir að hafa að mestu kosið að
halda sig til hlés framan af hafa ríkisstjórnin og Seðla-
bankinn stigið fram og brugðist við með því að kynna
margvíslegar aðgerðir. Það er vel og viðbúið að skýrari og
umfangsmeiri aðgerðir muni líta dagsins ljóst á næst-
unni. Tíminn vinnur ekki með okkur. Stór hluti ferða-
þjónustufyrirtækja, í atvinnugrein sem er sérstaklega
mannaflsfrek, mun ekki eiga fyrir launum um mánaða-
mót. Fjöldagjaldþrot blasa við og þúsundir manns eiga
eftir að bætast við á atvinnuleysisskrá. Án mótvægis-
aðgerða verður atvinnuleysi farið að nálgast tíu prósent
innan fárra mánaða. Samkvæmt Lífskjarasamningnum
taka samningsbundnar launahækkanir gildi eftir rúm-
lega tvær vikur. Aðilar vinnumarkaðarins hljóta að
endurskoða tímasetningu þeirra við þessar aðstæður.
Hvað þarf að gera? Mikilvægast er að fjármálastofn-
anir hafi burði til að hjálpa lífvænlegum fyrirtækjum í
tímabundnum lausafjárvanda. Þar er aðkoma ríkisins
með einum eða öðrum hætti óhjákvæmileg. Kreddur
eiga að víkja fyrir köldu hagsmunamati. Stjórnvöld
þurfa umsvifalaust að draga úr kostnaði bankanna við
að binda eigið fé á móti útlánum þeirra fyrirtækja sem
verður veitt aðstoð á erfiðum tímum. Afnema á sveiflu-
jöfnunarauka sem leggst ofan á eiginfjárkröfur bank-
anna ekki síðar en strax. Skattar og opinberar álögur,
sem hafa hækkað stjórnlaust síðustu ár, eiga að lækka.
Fyrirséð er að ríkissjóður verður rekinn með umtals-
verðum halla á yfirstandandi ári. Það skiptir ekki máli.
Það er erfitt að fegra stöðuna eins og sakir standa. Hún
er grafalvarleg. Aðgerðir stjórnvalda eiga að taka mið af
því að efnahagsáhrifanna af kórónaveirufaraldrinum
gæti allt þetta ár. Ólíkt fjármálahruninu mun almenn-
ingur hins vegar ekki finna fyrir þessu með sama hætti.
Þrátt fyrir gengisveikingu, sem er hjálpleg við þessar
aðstæður, þarf ekki að óttast aukna verðbólgu og kaup-
máttur launafólks mun ekki dragast mikið saman. Þar
skiptir sköpum að við höfum búið vel í haginn. Það er
kreppa í vændum en með réttum og skjótum ákvörð-
unum, sem grundvallast á heildstæðri áætlun, eru allar
forsendur fyrir því að hún verði skammvinn og við-
spyrnan kröftug. Engin ástæða er til að örvænta.
Ekki örvænta
1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN