Fréttablaðið - 13.03.2020, Síða 22
vöxturinn á mörgum lykilmörk-
uðum í tveggja stafa tölum.
Landsvæðið sem fer undir líf-
rænan landbúnað hefur stækkað
um tæplega 3% á hverju ári og er
nú komið upp í um 715 þúsund
ferkílómetra. Indland er það land
sem hefur flesta bændur sem
stunda lífrænan landbúnað, en líf-
rænn landbúnaður fer líka fram á
stórum svæðum í Ástralíu og Kína.
Þessar niðurstöður ríma við það
sem kom fram í annarri nýlegri
skýrslu frá fyrirtækinu Grand
View Research, sem veitir ráð-
gjöf varðandi markaðssetningu.
Þar var því spáð að lífræn mat-
vælaframleiðsla yrði meira en 26
þúsund milljarða króna virði fyrir
lok ársins.
Hollara fyrir okkur
Vísindarannsóknir hafa komist
að þeirri niðurstöðu að lífræn
matvælaframleiðsla stuðli að sjálf-
bærni.
Þegar ekki er notast við tilbúinn
áburð, skordýraeitur eða sveppa-
eyðandi efni eykst líffræðilegur
fjölbreytileiki og jarðvegur verður
næringarríkari, auk þess sem
mengun minnkar. Ýmis ólífræn
efni sem eru notuð í hefðbundnum
landbúnaði valda stórum hluta af
mengun og kolefnislosun iðnaðar-
ins.
Í hollenskri rannsókn frá síðasta
ári sem var unnin við háskólann
í Twente var líka komist að þeirri
niðurstöðu að lífrænn landbúnað-
ur geti hjálpað til við að ná alþjóð-
legum sjálf bærnimarkmiðum,
sérstaklega hvað varðar baráttuna
gegn loftslagsbreytingum.
Lífrænum matvælum er líka oft
hampað fyrir hollustu sína, en nið-
urstöður nýlegrar rannsóknar frá
Tækniháskólanum í Graz í Austur-
ríki sýndu til dæmis að lífræn epli
innihéldu meira af bakteríum sem
eru hollar fyrir meltinguna og
að þær væru í betra jafnvægi en í
hefðbundnum eplum.
Styður aukna sjálfbærni
Þessi tengsl milli hollustu, heilsu
og lífrænna matvæla eiga líklega
eftir að auka enn eftirspurnina,
sérstaklega í Asíu, þar sem neyt-
endur hafa almennt mikinn áhuga
á næringarríkum og öruggum
matvælum.
Þessi þróun í lífrænum land-
búnaði er því líkleg til að styðja
við sjálf bærari og heilbrigðari
matvælaframleiðslu um allan
heim. Sérstaklega í Asíu, þar sem
ekki gengur mjög vel að ná öllum
sjálf bærnimarkmiðum. Það er full
þörf á að gera allt sem hægt er til
að tryggja aukna sjálf bærni og þar
getur lífrænn landbúnaður komið
að gagni.
Landsvæðið sem
fer undir lífrænan
landbúnað hefur stækk-
að um tæplega 3% á
hverju ári og er nú komið
upp í um 715 þúsund
ferkílómetra.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Indland er það land sem hefur flesta bændur sem stunda lífrænan landbúnað, en lífrænn landbúnaður fer líka fram á stórum svæðum í Ástralíu og Kína.
Sífellt fleira fólk velur lífrænar matvörur. Eftirspurnin hefur aukist um tæp-
lega 16 prósent á innan við hálfum áratug og það er fastlega gert ráð fyrir
að hún haldi áfram að aukast mikið á næstu árum. MYNDIR/GETTY
Lífræn landbúnaðarframleiðsla og sala á lífrænni matvöru er meiri nú en nokkru sinni
fyrr og eftirspurn eftir lífrænum
vörum eykst sífellt. Markaðsvirði
lífrænnar matvöru er orðið meira
en 13 þúsund milljarðar króna á
heimsvísu. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í nýrri skýrslu
sem ber heitið „Heimur lífræns
landbúnaðar 2020“ og var gefin út
af Alþjóðlegri rannsóknarstofnun
lífræns landbúnaðar (FiBL) og
Alþjóðasambandi lífrænna land-
búnaðarhreyfinga (IFOAM).
Þessa stöðugu aukningu í eftir-
spurn eftir lífrænum matvörum
má rekja til aukinnar meðvitundar
neytenda um áhrif neysluhátta
þeirra á heilsuna og umhverfið,
sem hefur orðið til þess að fleiri
velja lífrænt en nokkru sinni áður.
Eftirspurnin hefur aukist um tæp-
lega 16 prósent á innan við hálfum
áratug.
Met í framleiðslu og sölu
Aldrei áður hefur eins stór hluti
ræktunarlands verið nýttur í líf-
ræna matvælaframleiðslu og það
hefur aldrei áður selst jafn mikið af
lífrænum matvælum.
Skýrslan er byggð á gögnum frá
186 löndum og sýnir að markaðs-
virði lífrænnar matvöru varð
meira en 13 þúsund milljarðar
króna árið 2018 og enn mælist
Mikill vöxtur í lífrænum
landbúnaði um allan heim
Lífræn landbúnaðarframleiðsla eykst hratt á hverju ári og er nú meiri en nokkru sinni fyrr. Vonir
eru bundnar við að hún geti stutt við sjálfbærnimarkmið og aukið framboð á hollri og öruggri
fæðu. Markaðsvirði lífrænnar matvöru er meira en 13 þúsund milljarðar á heimsvísu.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RLÍFRÆN VOTTUN
Lífræn
heilkorna
súrdeigsbrauð
síðan 1990