Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 1

Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —7 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Njóttu hækkandi sólar á rúntinum. Uppáhaldsbíllinn þinn bíður! HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun COVID-19 „Þetta er dauðans alvara en ekkert grín en það virðist vera að það séu margir að leika sér að hósta á annað fólk,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, um atvik sem varð í Krónunni á Granda um kvöld- matarleytið á sunnudag. Kona sem var að versla í Krón- unni er drengirnir fóru þar ham- förum segir þá hafa verið á að giska tólf eða þrettán ára. „Sá stærsti í hópnum gekk aftan að fólki, stopp- aði eins nálægt því og hann komst og púaði svo eða hóstaði á það. Á meðan tók annar allt saman upp á síma,“ lýsir hún. Þessi viðskiptavinur segir að kona ein hafi í rólegheitum reynt að stöðva piltana og bent þeim á að þetta væri ekki sniðugt. „En þeir slógu ekkert af hortugheitunum í svörum. Sá stóri nuddaði sér um augun, boraði í nefið og stakk fingr- um upp í sig, gekk síðan að næstu hillu og strauk puttunum eftir vör- unum þar. Þetta var frekar ógeðfelld sjón,“ segir hún. Sjálf kveðst konan fyrst hafa orðið vör við drengjahópinn þegar hún hafi gengið fram hjá manni sem hafi í forundran spurt ungl- ingsstrák með hettu upp fyrir haus hvort það væri ekki allt í lagi. „Ég hélt fyrst að þarna væri maðurinn að tala við son sinn, sem eitthvað væri greinilega að,“ lýsir konan. Hún hafi ekki kveikti ekki á perunni fyrr en pilturinn hrein- lega púaði ofan í hálsmálið á henni. „Þegar ég sneri mér við stóð hann alveg upp við mig og starði ögrandi á mig. Þar sem ég sýndi engin við- brögð elti hann mig eftir ganginum í tilraun til að ganga fram af mér.“ Gréta framkvæmdastjóri segir að þegar vart verði við slíka hegðun sé hún tilkynnt til öryggisdeildar fyrirtækisins. Í þessu tilfelli hafi upptökur verið skoðaðar og þær sýni hvað gerst hafi. „Núna er öllum svona ábendingum vísað til lög- reglu og almannavarna,“ segir hún. Drengirnir séu ekki velkomnir í Krónuna eftir þessa uppákomu. „Þeir sem eru með dónaskap og sýna hvorki okkar fólki né við- skiptavinum virðingu eru vinsam- legast beðnir um að koma ekki aftur og beina viðskiptum sínum annað,“ undirstrikar framkvæmdastjórinn. Málið sé því miður ekki einsdæmi. „Það eru f leiri tilfelli þar sem við- skiptavinir eru að taka þessum tilmælum almannavar na um tveggja metra regluna af léttúð.“ – gar Hóstuðu á fólk í Krónunni Viðskiptavinum Krónunnar var brugðið er drengir hóstuðu á þá. Einn piltanna stakk fingri í munn sér og strauk síðan yfir vörur. Ógeðfelld sjón, segir kona sem var í búðinni. Krónan vísar málinu til lögreglu. Fjöldi fólks eyðir meiri tíma á heimili sínu en vani er vegna samkomubanns og nálægðartakmarkana sem settar hafa verið á vegna COVID-19 faraldursins. Heyrst hefur af mörgum sem nýta tímann í að dytta að heimilinu og mátti sjá merki þess á Sorpu í gær þar sem bílaröð teygði sig langt út á götu. Myndin, sem tekin er á f lygildi, sýnir vel fulla gámana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þeir sem eru með dónaskap og sýna hvorki okkar fólk né við- skiptavinum virðingu eru vinsamlegast beðnir um að koma ekki aftur. María Grétarsdóttir, framkvæmda- stjóri Krónunnar STJÓRNMÁL Alþingi samþykkti í gærkvöldi viðamiklar aðgerðir rík- isins vegna COVID-19 og fyrirséðra þjóðfélagslegra áhrifa faraldursins. Um var að ræða fimm frumvörp; þar á meðal um efnahagsaðgerðir, borgaralega skyldu starfsmanna opinberra aðila og þingsályktun um tímabundið fjárfestingarátak hins opinbera. Í nýjum fjáraukalögum við fjár- lög yfirstandandi árs, sem sam- þykkt voru í gær er kveðið á um gjaldheimild úr ríkissjóði fyrir 18 milljörðum vegna sérstaks fjárfest- ingarátaks en heimildin hækkaði um tæpa þrjá milljarða í meðförum þingsins. Þá er gert ráð fyrir rúmum þremur milljörðum í barnabóta- auka og þriggja milljarða mark- aðsátaki fyrir ferðaþjónustuna. Heimild ríkissjóðs til að taka lán í erlendum gjaldmiðli var hækkuð um 95 milljarða. - aá / sjá síðu 4 Umfangsmiklar aðgerðir vegna faraldursins

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.