Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 6
Við erum með vel
þjálfað fólk sem
tekur við símtölum. Það
kann að hlusta og veitir góð
ráð og stuðning og vísar þér
áfram.
Kristín Hjálmtýsdóttir
Galíleó, Galíleó …
Skælbrosandi maður í ham rokkgoðsagnarinnar Freddies Mercury úr hljómsveitinni Queen tók sig til og skemmti nágrönnum sínum í ein-
angrun í spænsku borginni Ourense. Alls hafa rúmlega 85 þúsund manns smitast af COVID-19 á Spáni og 7.340 látist af völdum sjúkdómsins til
þessa. Yfir sextán þúsund smitaðra er batnað. Yfirvöld segja að loks séu merki um að útbreiðsla faraldursins sé að hægja á sér á Spáni. MYND/EPA
COVID-19 „Engin röskun er á þjón-
ustu heimahjúkrunar en einhverjir
notendur félagslegu heimaþjón-
ustunnar hafa afþakkað þrif tíma-
bundið en hátt á fjórða þúsund
einstaklingar og f jölskyldur fá
þjónustu heim. Velferðarsvið sendi
ítarlegt upplýsingabréf til allra ein-
staklinga sem nota þjónustuna með
leiðbeiningum og upplýsingum um
helstu tengiliði þegar neyðarstigi
var lýst yfir,“ þetta kemur fram í
svari frá Velferðarsviði Reykja-
víkurborgar við fyrirspurn Frétta-
blaðsins um ráðstafanir vegna
COVID-19 faraldursins.
Heimahjúkrun í borginni starfar
undir Velferðarsviði borgarinnar
og var viðbragðsáætlun sviðsins
virkjuð í byrjun síðasta mánaðar.
Öll heimaþjónustan starfar nú á
neyðarstigi og neyðarstjórn sviðs-
ins heldur daglega fundi. Unnið er
eftir tilmælum almannavarna og
landlæknis og þá hefur sérstakt
COVID-19 teymi heimaþjónust-
unnar verið myndað.
„Heimaþjónustan skipti strax
starfsfólki sínu niður í hópa sem
koma og fara á mismunandi tímum
inn í hús þannig að það hittist ekki.
Teymisstjórar fengu fartölvur með
fjaraðgangi og geta því unnið að
heiman,“ kemur fram í svari Vel-
ferðarsviðs. Þar kemur einnig
fram að allur búnaður starfsfólks
hafi verið tryggður í samstarfi við
Embætti landlæknis og að sérstakt
verklag hafi verið unnið varðandi
umönnun skjólstæðinga í sóttkví
og einangrun. „Flestir notendur
þjónustunnar eru einstaklingar
með undirliggjandi sjúkdóma eða
aldraðir. Því miðar öll vinna inni
á heimilum að því að lágmarka
möguleika á útbreiðslu COVID-19.“
1.086 einstaklingar voru smit-
aðir af COVID-19 hér á landi í gær
og 9.236 voru í sóttkví. 927 voru í
einangrun og 30 lágu á sjúkrahúsi
vegna smits, þar af tíu á gjörgæslu
og sjö í öndunarvél. 936 voru í eftir-
liti á göngudeild COVID-19 og þar af
voru 72 börn í eftirliti Barnaspítala
Hringsins.
Áhrifa faraldursins gætir víða
og hafa yfirvöld gripið til ýmissa
ráðstafana vegna sjúkdómsins.
Samkomubann sem miðar við 20
manns hefur verið sett á hér á landi
ásamt nálægðartakmörkunum. Á
upplýsingafundi almannavarna í
gær sagði Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir að landsmenn mættu
búast við því að aðgerðir til að hefta
útbreiðslu veirunnar yrðu í gildi
lengur en upprunalega var talið. Þó
liggi ekki fyrir í hvaða mynd slíkar
að gerðir verða.
„Við þurfum að halda áfram
þessum að gerðum sem við erum
með núna en stóra á skorunin verð-
ur í raun og veru sú hvenær eigi að
af létta þessum aðgerðum. Það er
ekki búið að taka ákvörðun um
það,“ sagði Þórólfur.
Á fundi almannavarna um helg-
ina kom fram að á örskömmum
tíma væri búið að umbylta vel-
ferðarkerfinu. Kristín Hjálmtýs-
dóttir, framkvæmdastjóri Rauða
krossins, var gestur fundarins í gær
og sagði hún Rauða krossinn beina
sjónum sínum sérstaklega að ber-
skjölduðustu hópum samfélagsins.
„Það eru til dæmis heimilislausir.
Nú eigum við öll að vera heima en
það er ekkert heima fyrir heimilis-
lausa,“ sagði hún.
Þá sagði Kristín mikla aukningu
vera á símtölum í hjálparsíma
Rauða krossins, 1717. Á venjulegum
degi taki hjálparsíminn við 35-40
símtölum á sólarhring en síðast-
liðnar vikur hafa símtölin verið um
500-700 á sólarhring.
„Félagsleg einangrun eykst og
það er mikill kvíði. Við finnum
mjög mikið fyrir því á 1717,“ sagði
Kristín. „Við erum með vel þjálfað
fólk sem tekur við símtölunum. Það
kann að hlusta og veitir góð ráð og
stuðning og vísar þér áfram. Ekkert
vandamál er of lítið fyrir okkur.“
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 hefur mikil áhrif
á velferðarkerfi borgarinnar
Engin röskun hefur orðið á heimahjúkrun í Reykjavík vegna COVID-19 faraldursins en neyðarstigi
þjónustunnar var lýst yfir í febrúar. Hópur notenda hefur afþakkað þjónustuna. Faraldurinn hefur haft
mikil áhrif á velferðarþjónustu og Rauði krossinn beinir sjónum sínum að berskjölduðustu hópunum.
Fjöldi símtala í hjálparsíma Rauða krossins hefur margfaldast á síðast-
liðnum vikum, þau eru nú 500-700 talsins á sólarhring. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMFÉLAG „Sumir atvinnurekendur
ætla greinilega að notfæra sér þann
harmleik sem þessi faraldur er til
að ríkisvæða kostnaðinn en halda
tekjunum,“ segir Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður Eflingar.
Stétt ar félag ið hef u r feng ið
ábendingar um að starfsfólk, sem
fyrirtæki hefur sett á hlutabætur
vegna COVID-19 faraldursins, sé
enn látið vinna fullt starf. Fyrirtæki
hafi þannig fært launakostnað yfir á
ríkið á sama tíma og það þiggi vinnu
starfsfólksins.
Ef ling segir í tilkynningu að
um sé að ræða grófa misnotkun á
almannafé sem gangi þvert á mark-
mið yfirvalda. Fyrirtæki sem dragi
seglin saman á næstu vikum geti
þannig haldið ráðningarsambandi
við starfsfólk sem ekki hefur verk-
efni, með því að fá greiddar bætur
úr atvinnuleysistryggingasjóði.
„Þetta er geysilega ósvífið gagn-
vart atvinnuleysistryggingasjóði,
og kaldranaleg eigingirni á hættu-
tímum,“ segir Sólveig Anna. – ab
Segir suma vera
að notfæra sér
faraldurinn
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, gagnrýnir vinnuveitendur.
HEILBRIGÐISMÁL Sérfræðilæknum
og tannlæknum er í sjálfsvald sett
hvort þeir telji skurðaðgerð eða
greiningarrannsókn vera brýna eða
ekki. Er það þeirra að meta í hverju
tilfelli fyrir sig hvort aðgerð geti
beðið í átta vikur eða ekki.
Fyrir rúmri viku beindi land-
læknir þeim fyrirmælum til skurð-
og tannlækna að þeir fresti öllum
valkvæðum aðgerðum til loka maí
vegna COVID-19 faraldursins, er
það gert til að minnka líkur á smit-
hættu sem myndi krefjast sjúkra-
hússinnlagnar. Áður en fyrirmælin
voru gefin hafði sjúklingur á Klíník-
inni reynst smitaður af COVID-19.
„Þess skal þó gætt að brýnar
skurðaðgerðir eða greiningarrann-
sóknir sem ekki þola bið umfram
átta vikur verði framkvæmdar.
Enn fremur að brýnni tannlækna-
þjónustu verði sinnt,“ segir í fyrir-
mælum landlæknis. „Ljóst er að
upp kunna að koma vafatilfelli en
landlæknir treystir á yfirvegað mat
hlutaðeigandi sérfræðilæknis eða
tannlæknis í hverju tilviki fyrir sig.“
Samkvæmt upplýsingum frá
embættinu hafa engin vafamál
ratað þangað inn á borð enn sem
komið er. – ab
Engin vafamál
komið upp
Sérfræðilæknum og
tannlæknum er í sjálfsvald
sett hvort þeir telji skurðað-
gerð eða rannsókn brýna
eða ekki.
Valkvæðum aðgerðum verður
frestað fram í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð