Fréttablaðið - 31.03.2020, Page 10

Fréttablaðið - 31.03.2020, Page 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Þolinmæði og æðruleysi eru bestu ráðin í þessu nánast óraunveru- lega ástandi sem nú ríkir. Við þekkjum náttúruham- farir og höfum tekist á við afleið- ingar þeirra. Hagfræðingar tala um slíkan við- snúning sem „V“. Summit® kolagrill 61cm Verð: 265.650 kr. Tilboð:215.000 kr. Viðbrögð skipta máli. Skynsamleg viðbrögð þríeykisins skipta miklu máli. Við getum staðið af okkur storminn saman. Fyrst er það COVID-19 sem virðist vera að ná hámarki á Íslandi. Skimun og sóttkví. Samkomubann og minni snertingar. Þetta hefur skilað árangri. Síðan er hitt - skyndilegt frost í efnahagsmálum. Ferðaþjónustan er í fremstu víglínu, en líkt og smit- andi veira getur tjónið margfaldast ef ekkert er að gert. Tekjufall hjá einum verður gjaldþrot hjá öðrum. Við erum staðráðin í að láta þetta áfall ekki brjóta okkur niður. Við þekkjum náttúruhamfarir og höfum tekist á við afleiðingar þeirra. Hagfræðingar tala um slíkan viðsnúning sem „V“. Kröpp niðursveifla en stutt. Sögu- lega séð eru kreppur sem verða vegna atburða eins og náttúruhamfara, drepsótta eða stríða styttri en bankakreppur. En hér skiptir öllu að viðbragðið sé rétt og sterkt. Reykjavíkurborg kynnti fyrstu mótvægis- tillögur sínar í síðustu viku. Þar lögðum við áherslu á lækkun og frestun gjalda á atvinnulífið. Vernda störfin. Viðsnúning með stóru V-i. Upp á ný Þegar storminum slotar nýtum við styrk okkar sem ferðamannalands. Víðerni, hreinleiki, öryggi og gæði verða enn eftirsóknarverðari. En við förum líka út úr þessa einstaka tímabili með miklu meiri færni í tækninni en áður. Skólar og vinnustaðir geta nýtt þessa tækni mun meira. Sveigjanleiki í starfi og námi eru tækifæri sem tæknin færir okkur. Skólar geta byrjað örlítið seinna en atvinnulífið. Unnið líka meira heima. Þann- ig gætum við létt á samgöngukerfinu með breyttu vinnulagi. Við getum nýtt reynsluna af þessari krísu til góðs til framtíðar. Þannig bregðumst við vel við erfiðri reynslu. Komumst upp öldudalinn á V-inu og notum tæknina sem við erum að taka í notkun til að spara fjármuni, ferðir og tíma. Stundum þarf áfall til að bregðast við. Nú ríður á að varðveita þekkingu fólks og störfin. Notum svo tæknina til að gera enn betur þegar aftur er orðið bjart yfir. V Eyþór Arnalds oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík Þær aðgerðir sem heilbrigðisyfirvöld og almannavarnir hafa gripið til vegna útbreiðslu kórónaveirunnar virðast vera að skila tilætluðum árangri. Sam-kvæmt nýju spálíkani fylgir faraldur-inn enn bestu spá. Vöxturinn er hægur og línulegur. Þetta getur þó breyst hratt og því afar mikilvægt að almenningur haldi áfram að fylgja fyrirmælum yfirvalda. Samkvæmt fyrrnefndu spálíkani mun faraldur- inn ná hámarki fyrstu vikuna í apríl. Rætist hins vegar svartsýna spá líkansins yrði hámark farald- ursins viku síðar. Gert er ráð fyrir því að mesta álagið á spítala og gjörgæsludeildir verði skömmu fyrir miðjan apríl. Það er því ljóst að komandi dagar og vikur geta reynt verulega á innviðina. Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að nokkur fjöldi ábendinga hafi borist yfirvöldum um brot á hinu herta samkomubanni sem tók gildi í síðustu viku. Sem betur fer virðast sögur af fjölmennum íþróttaæfingum ekki eiga við rök að styðjast. Þá virðast einhver brot byggja á mis- skilningi eða rangri túlkun á reglum samkomu- bannsins. Vonandi er það raunin með flest þessara meintu brota því það er grafalvarlegt mál ef fólk tekur ekki mark á þessum reglum. Slík brot geta teflt í tvísýnu þeim góða árangri sem náðst hefur. Það er ekki að ástæðulausu að gripið hefur verið til jafn íþyngjandi aðgerða og samkomubann er. Búast má við því að enn muni nokkur tími líða þangað til óhætt verður að slaka á þessum aðgerðum. Þolinmæði og æðruleysi eru bestu ráðin í þessu nánast óraunverulega ástandi sem nú ríkir. Nú er liðinn réttur mánuður frá því fyrsta smit- ið var staðfest á Íslandi. Breytingarnar sem orðið hafa á samfélaginu á þessum tíma eru ótrúlegar og hefðu raunar þótt óhugsandi fyrir ekki svo löngu. Stjórnvöld á Íslandi treystu allt frá upphafi farald- ursins ráðleggingum fagfólks og hafa byggt áætl- anir sínar samkvæmt því. Fyrir það bera að þakka því það er alls ekki sjálfgefið. Við þurfum ekki að leita langt til að finna dæmi um stjórnvöld sem hafa tekið ákvarðanir þvert gegn ráðleggingum sérfræðinga í sóttvörnum og faraldsfræði. Víða sváfu yfirvöld á verðinum og gripu allt of seint til aðgerða sem voru þá ansi harkalegar. Þá er það áhyggjuefni að andlýðræðisleg öfl eru að nýta sér aðstæðurnar. Þannig samþykkti ungverska þingið í gær neyðarlög sem gefa Victor Orban, forsætisráðherra landsins, einræðisvald til að takast á við COVID-19 faraldurinn. Þrátt fyrir hörð andmæli stjórnarandstöðunnar var frum- varpið samþykkt án þess að tímamörk væru á þessum auknu völdum forsætisráðherrans. Hér hefur yfirvöldum auðnast að koma almenn- ingi í skilning um alvarleika málsins án þess þó að skapa andrúmsloft ótta og vantrausts. Það er ekki svo lítið afrek. Góður árangur Vending Daglegir upplýsingafundir almannavarna eru orðnir fastir liðir í tilveru okkar Íslendinga. Mánuður er liðinn frá því að þeir hófust og líkt og með alla góða sjónvarpsþætti er manni farið að þykja mjög vænt um allar aðalpersónurnar. Inn á milli koma svo gestaleikarar með einhverja stæla. Fund- irnir fjalla um grafalvarlegt mál og því ekkert rými fyrir einkamál. Grípa áhorfendur því allir á lofti minnsta mola um eitthvað annað en veiruna, eins og að Þórólfur hafi horft allsgáður á Helga Björns um helgina. Mun betri vending en í sápuóperunni á Alþingi þar sem þingmaður bað ráðherra um að sjúkdómsgreina hann vegna einhverrar f lensu sem hann var með í desember. Ótímabært aprílgabb Upplýsingafundirnir hafa reynst vel við að halda land- anum rólegum. Það er þó f leira sem gerir landann órólegan en veirufaraldurinn. Hagkaup ákvað að loka nammibarnum fræga fyrr en ella eftir að fjöl- miðlar komust á snoðir um að til stæði að selja nammið á 70 prósenta afslætti. Æstir nammigrísir vopnaðir skóf lum voru ekki sáttir við hafa hlaupið apríl í marsmánuði. Líkamar þeirra munu þakka Hagkaupsmönnum síðar. arib@frettabladid.is 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.