Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 12

Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 12
Ég hreinlega undr- ast að fólk haldi að bannið eigi við um aðra en ekki það sjálft. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri UMFÍ FÓTBOLTI Breska blaðið Independ- ent segir að forkólfar enska boltans rói nú öllum árum að því að klára tímabilið. Ein hugmynd er að spila eins og á HM og allir 92 leikirnir yrðu í beinni útsendingu. Leikmenn yrðu hverjir á sínum hótelum og spilað yrði á hlutlausum völlum án áhorfenda. Dr. Jenny Harries, yfir- maður heilsuverndarstofnunar Bretlands, sagði að útgöngubannið gæti varað í marga mánuði og allt að sex mánuðir gætu liðið þar að lífið kæmist í fyrra horf. Engu að síður vilja ensku liðin klára leikina í júní og júlí. - bb HM-stíll á lokum enska FÓTBOLTI UEFA, knattspyrnu- samband Evrópu, hefur boðað myndbandsfund með með aðildar- samböndum sínum 55 á morgun. Samkvæmt tilkynningu sambands- ins á að ræða meðal annars mögu- legar hugmyndir um hvernig klára eigi yfirstandandi tímabil, samn- ingsstöðu leikmanna og fleira sem brennur á aðildarsamböndunum. Guðni Bergsson og Klara Bjartmarz sátu fundinn fyrir KSÍ síðast þegar UEFA boðaði slíkan fund og búist er við að þau sitji þennan einnig. UEFA skipaði starfshópa sem eiga að skila niðurstöðum á þessum fundi. Þá eru einnig á dagskrá kom- andi landsleikir og Evrópuboltinn, Meistaradeildin og Evrópudeildin. - bb UEFA boðar fund á morgun Aleksander Ceferin forseti UEFA. ÍÞRÓTTIR Alexander Lúkasjenko, forseti Hvíta-Rússlands, er sultu- slakur gagnvart COVID-19 faraldr- inum. Í gær voru 94 tilfelli komin upp og ekkert dauðsfall í landinu sem telur um 10 milljónir manna. Rússar lokuðu landamærunum að landinu í gær en forsetinn er ekki að stressa sig á hlutunum. Lúkasjenko spilaði íshokkíleik fyrir framan troðna íþróttahöll af áhorfendum á sunnudag og eftir leik var hann spurður af fréttamanni hvort hann væri ekkert hræddur um að COVID- 19 myndi stöðva að hann spilaði íþróttina. Hann svaraði rólegur. „Sást þú einhverja veiru f ljúga hér um? Ekki ég. Það er betra að deyja standandi en lifa á hnjánum.“ -bb Veiran flýgur ekki í Hvíta- Rússlandi Alexander Lúkasjenko forseti Hvíta-Rússlands er sultuslakur. 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT ÍÞRÓTTIR Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, bendir á að ekki sé leyfilegt að hafa einstakl- ingsæfingar undir stjórn þjálfara eins og Heimir Hallgrímsson gerir í Katar. „Við erum reyndar með einstaklingsæfingar. Leikmenn fá að bóka völlinn en það er bara einn leikmaður með völlinn í einu. Stundum er þjálfari með leikmanni en þeir koma frá ellefu á morgnana til sjö á kvöldin,“ sagði Heimir í Bít- inu á Stöð 2 og Bylgjunni. Þetta er brot á æfingabanni sem ÍSÍ og UMFÍ settu og KSÍ ítrekaði þau tilmæli í gær. Það er því ekki leyfilegt að herma eftir Heimi. Stutt er síðan UMFÍ gaf út yfirlýsingu um að vísbendingar hefðu borist inn á borð þeirra vegna íþróttafólks sem væri að stunda æfingar úti. „Ég hreinlega undrast að fólk haldi að bannið eigi við um aðra en ekki það sjálft. Við leggjum áherslu við stjórnendur í íþróttahreyfing- unni á að allt íþróttastarfi eigi að fella niður, bæði barna og fullorð- inna, boltaíþróttir, hestaíþróttir, dans og aðrar greinar,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri UMFÍ. Í pistli Elvars Geirs Magnússonar, ritstjóra fótbolta.net á sunnudag, segir: „Eftir að hafa rætt við fjöl- marga stjórnendur félaga og þjálf- ara um helgina þá er greinilegt að fólk er ekki samstíga í því að túlka fyrirmæli um það hvað sé bannað og hvað ekki.“ Fótbolti.net fór á stúfana á sunnudag eftir að Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði að fjögur íþróttafélög hefðu stund- að æfingar í æfingabanninu, sem reyndist vera rangt. Víðir fékk ekki hrós, hvorki frá Ölmu né Þórólfi, á fundi gærdagsins. Helgi Björns fékk þó klapp á bakið og Alma þakkaði þeim sem þróa rafrænar lausnir. Þegar tilmælin eru skoðuð og lesin má sjá að þau eru skýr. Það stendur mjög skýrt til dæmis að sameiginleg notkun á búnaði er smitleið. Líney segir að þau félög sem hún hafi haft samband við segi henni að engar skipulagðar æfingar séu í gangi. „Tilmæli sótt- varnalæknis sem kynnt hafa verið voru að mínu mati mjög skýr það er að allt íþróttastarf falli niður bæði barna og fullorðinna. Þá er mjög skýrt tekið fram að Bannað að herma eftir Heimi Heimir Hallgrímsson lýsti hvernig æfingar ganga fyrir sig í Katar í Bítinu í gær þar sem leikmenn æfa einir á velli með þjálfara. Slík hegðun er ekki leyfileg hér á Íslandi. Tilmæli til íþróttafólks eru skýr. Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og núverandi þjálfari Al Arabi, er með einstaklingsæfingar í Katar. Þar eru reglurnar öðruvísi en hér og því bannað að herma eftir hugmyndum Heimis. MYND/GETTY sameiginleg notkun á búnaði er smitleið. Við getum öll aðstoðað við að koma þessum tilmælum á fram- færi og gera fólki ljóst að það þarf að taka ábyrgð og fylgja tilmælum heilbrigðisyfirvalda.“ Í tilkynningu frá Þórólfi sótt- varnarlækni vildi hann beina því til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands að, líkt og gert hefur verið varðandi börn og ungmenni, tekið verði hlé í æfingum og keppnum á vegum sambandsins og aðildar- félaga þeirra á meðan samkomu- bann varir. „Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og UMFÍ treysta því að öll íþróttahreyfingin muni fara að þessum afgerandi tilmælum og að allt íþróttastarf falli tímabundið niður.“ benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI Stjórn KSÍ tók fyrir til- lögur mannvirkjanefndar um vallarleyfi á fundi stjórnarinnar í síðustu viku. Stjórnin samþykkti 18 vallarleyfi í samræmi við til- lögur nefndarinnar en afgreiðslu vallarleyfa fjögurra keppnisvalla var frestað. Eyjamenn þurfa að fara í girðing- arvinnu í kringum Hásteinsvöll og fær völlurinn keppnisleyfi ef girð- ingarframkvæmdum vestan vallar verður lokið fyrir fyrsta heimaleik. Þá vantar vottun á grasið í Egilshöll eins og frægt er. Vottun á gervi- grasi á Hlíðarenda rennur út í júní og í ágúst í Víkinni. Fylkisvöllur og Stjörnuvöllur voru með vallarleyfi til 2021. KA er á undanþágu eins og Fjölnir en framkvæmdaráætlun við vellina þarf að liggja fyrir í lok árs. Stjórn ák vað einnig í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi að krefjast ekki prófa á gervigras- völlum á keppnistímabilinu 2020. Þó þurfa umræddar prófanir að liggja fyrir tímanlega áður en kemur að útgáfu vallarleyfa fyrir keppnis- tímabilið 2021. Þau félög sem leika í Evrópukeppni á komandi keppnis- tímabili þurfa að standa skil á til- skilinni úttekt til UEFA. Þá kom einnig fram á fundi stjórnar KSÍ að UEFA gerir kröfur um flóðlýsingu í leikjum á vegum sambandsins, sem er frá 800 lúx og hærra. Flóðlýsingarstaðan á Íslandi er alls ekki góð því staðan er sú að eini leikvangurinn sem uppfyllir þessa kröfu er Laugardalsvöllur. - bb Eyjamenn þurfa að fara í girðingarvinnu Glæsilegasta vallarstæði landsins þarf girðingu vestan megin. Aðeins Laugardalsvöllur er með leyfilega keppnis- lýsingu á flóðljósum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.