Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 18
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Það hefur sjaldan verið mikil-vægara fyrir fyrirtæki að laga rekstur sinn og þjónustu að þeim breyttu aðstæðum sem við stöndum frammi fyrir í dag,“ segir Ingvar Ágúst Ingvarsson, ráðgjafi í rafrænum lausnum hjá Þekkingu. Hann segir fjarvinnu og fjar- fundi aldrei hafa verið einfaldari í framkvæmd með verkfærum sem Microsoft býður upp á. „Microsoft Teams er eitt öflugasta verkfærið sem völ er á í Office 365-svítunni, hvort sem það er fyrir samskipti, hópavinnu, fjar- fundi og fjarvinnu. Það staðfesta miklar vinsældir Teams um allan heim og er Ísland þar engin undan- tekning,“ segir Ingvar. Nú í mars eru um 44 milljónir notendur Teams á hverjum degi og hafa um 20 milljónir nýrra notenda bæst við síðan í janúar á þessu ári. „Teams auðveldar starfsfólki að sinna sínum verkefnum. Það auðveldar samvinnu starfsfólks og er hentug lausn þegar kemur að fjarfundum, bæði með sam- starfsfélögum og viðskiptavinum. Í umhverfinu er einfalt að tengja saman fjölmargar þjónustur í Office 365 og gera þær aðgengi- legar á einum stað fyrir alla í teyminu,“ útskýrir Ingvar. Hann segir fyrirtæki í auknum mæli farin að nota Teams sem símkerfi og hefur það til að mynda auðveldað starfsfólki að flytja starfsstöð sína heim í því ástandi sem ríkir í heiminum í dag. „Þetta hefur gert fyrirtækjum kleift að laga sig að breyttum aðstæðum mjög hratt og halda uppi þjónustu. Fyrir starfsfólk sem er mikið á ferðinni er auðvelt að setja Teams upp sem app í sím- anum og geta þannig fylgst með þótt maður sé ekki við tölvuna,“ upplýsir Ingvar. Ekki megi svo gleyma að allar innleiðingar á tækni snúist um fólk og því þurfi að huga vel að breytingastjórnun þegar ný tækni sé tekin upp og ferlar breytist. „Það er margt sem þarf að huga að við innleiðingu á Teams og hafa ráðgjafar Þekkingar töluverða reynslu af Microsoft 365-inn- leiðingum. Þar hefur Teams spilað lykilhlutverk í að tryggja farsælar innleiðingar,“ segir Ingvar. Allar nánari upplýsingar er að finna á thekking.is Fjarvinna og fjarfundir með Teams Það er leikur einn að halda utan um fjarvinnu og fjar- fundi með Micro- soft Teams sem hefur auðveldað starfsfólki að flytja starfsstöð sína heim. Ingvar Ágúst Ingvarsson er ráðgjafi í rafrænum lausnum hjá Þekkingu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það er margt sem þarf að huga að við innleiðingu Teams og hafa ráðgjafar Þekkingar töluverða reynslu af Microsoft 365 innleið- ingum. Anna Signý Guðbjörnsdóttir er sérfræðingur í notenda-rannsóknum og þjónustu- hönnun hjá Kolibri. Þessa dagana vinnur hún heima eins og þorri landsmanna og segist hafa lært ýmislegt á því. „Við hjá Kolibri höfum verið að vinna heiman frá okkur og það hefur gengið vel. Þau sem vinna í hugbúnaðar- geiranum eiga oft auðvelt með að vinna heima. Hins vegar felst mitt starf mikið í því að tala við fólk og hitta það. Skiljanlega hefur það minnkað. Síðan er svolítið skrítið að vera að vinna heima í svona langan tíma. Maður þarf að setja sig í aðra rútínu. Við notum fjar- fundabúnað, vídeóspjall, spjall- línur og tölvupósta,“ segir hún. Anna Signý á fimm ára tvíbura- syni sem fara á leikskólann annan hvern dag. „Við hjónin reynum að skipta með okkur vinnutímanum þegar þeir eru heima. Höfum komið okkur upp ágætis vinnu- aðstöðu sem við þurftum að græja vegna þessara breytinga. Ég sakna samt vinnustólsins sem er þægi- legri en stóllinn heima. Það eru ákveðin þægindi að vera á skrif- stofunni,“ segir hún og bætir við að hún reyni að fara í göngutúra í hádeginu til að brjóta upp daginn. Anna segist fyrst hafa verið kærulaus með fatastílinn, var bara á náttfötum. „Ég fann út að þetta væri ekki nógu sniðugt og ákvað að dressa mig upp. Ég á marga fallega kjóla sem ég nota núna. Ég saknaði þess að vera ekki í venju- legri rútínu. Við starfsfélagarnir tökum morgunkaffispjall á fjar- fundi til að undirbúa daginn. Dag- urinn í vinnunni byrjar á því að fá sér kaffi og spjalla svo við höldum því áfram þótt vinnustöðvar séu dreifðar. Við erum alltaf með opna rás til að geta spjallað saman, enda saknar maður vinnufélaganna mikið þessa dagana,“ segir Anna en undanfarið hefur hún eingöngu haft fjölskylduna í kringum sig. Anna segir tiltölulega auðvelt fyrir starfsfólk Kolibri að vinna heima, þægilegra en hjá mörgum öðrum. „Við höfum unnið heima áður þegar það hefur hentað betur svo þetta er ekki alveg nýtt fyrir okkur. Einnig höfum við haldið fjarfundi áður svo þetta er ekkert að koma okkur á óvart. Það sem er öðruvísi er að allir starfsmenn séu í fjarvinnu. Maður skipuleggur sig vel og notar það næði sem skapast, stundum sit ég meira að segja lengur við tölvuna en í vinnunni og mér tekst ágætlega að fókusa á það sem ég er að gera. Framleiðnin er mikil,“ segir hún en Kolibri býður margs konar starfræna þjónustu. „Við vinnum venju- lega náið með viðskiptavinum í teymum á skrifstofunni. Það hefur vitaskuld dregið alfarið úr því en mér finnst allir vera mjög skiln- ingsríkir og umburðarlyndi hefur aukist. Væntingarnar eru öðruvísi og meiri samkennd hjá fólki.“ Anna bendir á að fjölskyldan sé líka mun nánari en áður og streitan minni. „Þetta var skrítið fyrstu dagana en núna er lífið komið í ákveðna heimarútínu og börnin skynja að maður þurfi Minna stress í heimavinnu Lífið hefur breyst hjá mörgum eftir að vinnan fluttist heim. Fólk losnar við bílaumferð á morgn- ana og síðdegis og á fleiri stundir með fjölskyldunni. Þá dregur heimavinnan verulega úr streitu. Anna Signý segir að það séu ýmsir góðir kostir við heimavinnuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI næði til að vinna. Við förum minna út að gera eitthvað en í staðinn hefur skemmtilegum fjölskyldustundum fjölgað heima. Við púslum og spilum og eigum frábæran fjölskyldutíma. Þetta er bara fínt, ágætisleið til að minnka áherslu á hluti sem skipta minna máli. Við lifum alltaf í miklum hraða og spennu en þetta er fín leið til þess að lifa rólegra lífi. Ég panta allt á netinu og það er mjög þægilegt að fá allt sent heim, ekkert stúss að fara í búðir eftir vinnu,“ segir hún en það er frábært að sjá góðu kostina við samkomu- bannið. Við starfsfélag- arnir tökum morg- unkaffispjall á fjarfundi til að undirbúa daginn hjá okkur. 4 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RRAFRÆNAR LAUSNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.