Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 20
Þetta er í grunninn bara spurninga- leikur. Þetta á að vera einfalt og þægilegt. Þú býrð til spurningar og getur líka sett inn hljóð- og myndefni. Þórný Péturs- dóttir er for- stöðumaður hjá RB. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Fyrir ekki svo löngu þótti það sjálfsagður hlutur í íslensku samfélagi að fara í bankann öll mánaðamót til að borga reikninga heimilisins, í stað þess að greiða þá með einum smelli í heimabanka,“ segir Þórný Péturs- dóttir, forstöðumaður hjá Reikni- stofu bankanna (RB). Hún segir f lesta taka því sem sjálfsögðum hlut að geta borgað fyrir hlutina stafrænt og hugsa lítið út í tæknina sem þar liggur að baki. „Að baki tækninni sem sparar okkur ferðina í bankann, og gerir okkur kleift að borga reikninga í netbanka, er lausn sem RB smíð- aði í samvinnu við bankana upp úr síðustu aldamótum og hefur rekið allar götur síðan. Í gegnum lausnina f læða árlega 30 milljónir krafna af ýmsu tagi, sem áður hefðu verið afhentar og greiddar með margfalt óskilvirkari hætti. Með því að losa okkur undan tilheyrandi biðröðum og handa- vinnu, bæði þeirra sem greiða og þeirra sem taka við greiðslu, spörum við okkur fjölda klukku- stunda á ári,“ upplýsir Þórný. Lausn til að létta lífið Hlutverk RB er að vera lykilsam- starfsaðili sem skapar virði fyrir viðskiptavini sína með rekstri og þróun öruggra innviða fyrir fjár- málamarkaðinn. „Við viljum vera drifkraftur breytinga og skapa hagræði fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Þórný. „Lausnin í núverandi mynd var Kröfupotturinn gerir lífið auðveldara Þótt Kröfupotturinn, rafræn lausn Reiknistofu bankanna, hafi sparað Íslendingum milljónir klukkustunda á líftíma sínum er vörumerkið ekki þekkt og lætur fara lítið fyrir sér út á við. Þau Sigrún Líf og Hákon eru á öðru ári í Vefskólanum, námsbraut í vefþróun sem kennd er við Tækniskólann. Appið sem þau eru að endurhanna og forrita er unnið í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Stefnu. „Appið er gömul vara frá þeim sem við erum að endurgera. Við erum eiginlega að taka hana alveg í gegn. Búa til nýjan kóða og endurhugsa hana,“ útskýrir Sigrún. „Þetta var upphaflega app sem var hugsað fyrir skóla. Það var hægt að búa til spurningaleiki og kennarinn gat sent á bekkinn og hann fékk svo til baka upplýsingar um hverjir svöruðu rétt og hver nemandi fékk einhvers konar ein- kunn.“ Markmiðið hjá Sigrúnu og Hákoni er að breyta leiknum svo hann nýtist á f leiri stöðum en í skólum. Hugsunin er að einstakl- ingar geti búið til leiki og spilað til dæmis við vini sína en að hann nýtist einnig innan fyrirtækja, til dæmis í starfsmannaþjálfun. „Þetta er í grunninn bara spurningaleikur. Þetta á að vera einfalt og þægilegt. Þú býrð til spurningar og getur líka sett inn hljóð- og myndefni. Það á að vera tungumálastuðningur í þessu svo að leikurinn getir verið á íslensku, pólsku, ensku og þessum helstu tungumálum. Svo verður líka hægt að fletta leikjum upp í spurninga- bönkum þannig að ef einhver hefur Endurgera leikjaapp Þau Sigrún Líf Erlingsdóttir og Hákon Arnar Sigurðsson eru þessa dagana á fullu að vinna að lokaverkefni sínu í Vefskólanum. Það er app til að nýta í spurningaleiki og fleira skemmtilegt. Sigrún Líf og skólafélagi hennar Hákon hafa verið að endurbæta gamalt kennslu- app. búið til sniðuga leiki þá er hægt að endurnýta þá,“ segir Sigrún. Leikurinn er þannig byggður upp að margir geta spilað í einu og hægt er að senda hann á stóra hópa. „Við erum að hugsa um að setja upp einhvers konar stiga- töf lu líka. Þá er hægt að búa til keppni úr þessu, til dæmis ef vina- hópurinn er að hittast í einhverju partíi og spila leikinn.“ Sigrún segir að hugmyndin að appinu hafi komið frá Stefnu. „Við erum í starfsnámi. Kennarinn okkar hafði samband við nokkur fyrirtæki og bað þau að koma með tillögur að verkefnum sem við gætum unnið með þeirra aðstoð og Stefna kom með þessa hug- mynd. Þau voru búin að vera með þetta app í einhvern tíma og vildu krydda það aðeins, gera það svo- lítið skemmtilegra.“ Ennþá er ekki komin nein dag- setning á hvenær appið verður tilbúið fyrir notendur að prófa. „Þetta er lokaverkefnið okkar og það verður bara að koma í ljós á hvaða stig það verður komið í vor,“ segir Sigrún. búin til upp úr síðustu aldamót- um. Vinnan byggðist á góðu sam- starfi á milli RB og sérfræðinga sem voru að störfum hjá bönk- unum. Hún var smíðuð af mikilli framsýni, fyrst og fremst með það í huga að létta almenningi lífið og auka sjálfvirkni og skilvirkni greiðslukerfisins. Kröfupotturinn hefur einnig þá sérstöðu að um er að ræða eina miðlæga lausn fyrir allt landið sem hægt er að nálgast úr netbönkum allra banka. Þetta er uppsetning sem við höfum ekki séð dæmi um annars staðar í heiminum en einfaldar lífið mjög mikið fyrir bæði kröfuhafa og greiðendur hér á landi.“ Starfsfólk RB heldur áfram þróun á þessari afkastamiklu lausn og í kortunum eru nýj- ungar sem gera munu líf íslenskra banka notenda enn þægilegra. „Það fer ekki endilega mikið fyrir því þegar það gerist heldur verður líf okkar bara allt í einu númerinu auðveldara án þess að við veitum því sérstaka eftirtekt,“ segir Þórný. „Lausnin hefur verið í mikilli þróun og endurnýjun á síðustu árum. Hún hefur verið uppfærð, margvísleg viðbótarvirkni hefur verið þróuð og allir innviðir eru í endurnýjun. Í þeirri endurnýjun hefur meðal annars verið lögð áhersla á ógreidda reikninga. Næst á döfinni er tenging við raf- ræn skjöl og viðbætur sem gera bönkunum kleift að bjóða upp á fullkomna innheimtuþjónustu fyrir allar tegundir fyrirtækja, allt frá þeim stærstu yfir í lítil húsfélög og góðgerðarfélög.“ Afburða fjármálaþjónusta RB leggur áherslu á að mæta kröfum og óskum bankanna þannig að þeir geti mætt þörfum viðskiptavina sinna sem allra best með þægilegum og hagkvæmum hætti. „Flestir sem komnir eru til vits og ára kannast við Ógreidda reikn- inga sem birtast þeim í öppum og netbönkum. Með því að skoða þá er hægt að fá góða yfirsýn yfir helstu greiðslur sem standa þarf skil á næstu daga og vikur. Hægt er að greiða ógreidda reikninga með einum smelli og upphæðin færist á örstuttri stundu af reikningi greið- anda inn á reikning þess sem gaf út reikninginn. Einnig er hægt að óska eftir að sambærilegir reikn- ingar skuldfærist ávallt sjálfkrafa af reikningi greiðenda,“ útskýrir Þórný um þá hraðvirku og þægi- legu leið sem miðlar greiðslum frá greiðanda til viðtakanda og byggir á miðlægum gagnagrunni sem RB þróar og rekur. Þórný segir fæsta gleðjast yfir reikningunum sínum en þeir sem muni eftir hvernig þetta var hér áður fyrr, eða þekki til erlendis, sakni sjálfsagt fáir raðanna sem voru í bönkum um hver mánaða- mót þar sem fólk var mætt til að greiða af lánum. „Íslensk fjármálafyrirtæki hafa alltaf lagt mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum af burða fjármálaþjónustu í gegnum netið og öpp. Ógreiddir reikningar og virknin í kringum þá eru mikil- vægur þáttur í að ná því markmiði og við munum halda áfram að þróa lausnina með okkar við- skiptavinum til að skapa enn meiri þægindi fyrir fyrirtæki og almenna notendur,“ segir Þórný. Allt um Reiknistofu bankanna á rb.is 6 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RRAFRÆNAR LAUSNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.