Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 22
Í neyð eins og þessari eru konur enn berskjaldaðri fyrir ofbeldi og tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar um allan heim með hverjum degi sem fjölskyldur eru innilok- aðar í samgöngubanni. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is 8 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RRAFRÆNAR LAUSNIR Snædís Baldursdóttir, fjár-öflunarstýra UN Women á Íslandi, segir samfélags- miðla spila veigamikið hlutverk í starfsemi þeirra. Það stafi ekki síst af því hversu auðvelt er að ná til margra. Hvernig nýtið þið stafrænar lausnir hjá UN Women í fjáröflun- arátaki? „Okkar helsti styrkur eru sam- félagsmiðlarnir. Fylgjendum UN Women á Íslandi hefur farið fjölgandi með hverju árinu eftir að við hófum að leggja mikla áherslu á þær leiðir. Í kynningar- og fjáröfl- unarstarfinu náum við til breiðari hóps en við gætum mögulega náð til með hefðbundnari leiðum svo sem símtölum og samtölum úti á götum, þó að það séu vissulega mjög sterkar leiðir líka. Það sem hefur reynst okkur vel er samtalið, en fólk leitar líka mikið til okkar í gegnum samfélagsmiðlana og við sjáum vel viðbrögðin við því efni sem við setjum þar inn og vekjum fólk til vitundar.“ Tæknin geri fólki kleift að skrá sig og velja á milli ólíkra styrktar- leiða á einfaldan hátt. „Það er okkur hjá UN Women mikilvægt að koma til móts við þarfir fólks og gera þá athöfn að skrá sig sem mánaðarleg- an styrktaraðila, eða ljósbera UN Women, sem þægilegasta og fljót- legasta, hvort sem það er í gegnum heimasíðuna okkar á símanum sínum eða í tölvu. En að okkar mati er ein þægilegasta lausnin til að styrkja að senda sms-ið KONUR í 1900 og styrkja UN Women þannig með stökum styrk t.d. þegar við erum með neyðarherferðir í gangi. Þessi lausn er samtökum eins og UN Women ótrúlega mikilvæg vegna þess að það er bæði auðvelt að senda SMS og það tekur aðeins nokkrar sekúndur auk þess sem það er góð lausn fyrir alla sem hafa aðgang að síma, og fólk þarf ekkert að vera á netinu til þess. Auk þess er upphæðin 1.900 krónur nokkuð hófleg og eitthvað sem margir treysta sér til að leggja til góðs mál- efnis án skuldbindingar.“ Hægt er að styrkja á fleiri vegu. „Þeim sem nota ekki sms bjóðum við þann möguleika að leggja inn á samtökin í gegnum smáforritin Aur og Kass með því að senda upp- hæð að eigin vali í númerið 839- 0700 eða slá inn: unwomenisland. Það er möguleiki sem við sjáum fyrir okkur að muni fara hratt vaxandi.“ Hvernig hafa þessar safnanir gengið? „Sms-safnanir UN Women á Íslandi hafa gengið gríðarlega vel og eru frábær leið til að fræða um verkefni UN Women sem og virkja fólk. Við hjá UN Women á Íslandi vorum einmitt að hefja sms-neyð- arsöfnun vegna þeirra afleiðinga sem Covid-19 faraldurinn hefur á konur þar sem við hvetjum almenning til að senda sms-ið KONUR í 1900.“ Samfélags- og efnahagslegar krísur hafi gjarnan í för með sér aukið heimilisofbeldi. „En á meðan áhrif Covid-19 á heims- byggðina eru auðséð eru áhrifin á konur ekki eins sýnileg. Neyð hefur nefnilega afar ólík áhrif á líf kvenna og karla. Það er til dæmis staðreynd að í neyð eins og þessari eru konur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi og því miður fer tilkynningum um heimilisof- beldi fjölgandi um allan heim með hverjum deginum sem fjölskyldur eru innilokaðar í samgöngubanni.“ Áhrifin á líf kvenna eru marg- þætt. „Einnig hefur Covid-19 mun meiri áhrif á tekjur kvenna en karla. Konur sem starfa við tak- markað atvinnuöryggi, svo sem á tímakaupi, í þjónustustörfum og sem heimilishjálp, verða verst úti fjárhagslega sem veldur því að þær geta ekki framfleytt fjölskyldum sínum. Markmiðið með neyðarher- ferðinni núna er þess vegna að UN Women hafi nægt fjármagn til að koma til móts við þarfir kvenna á þeirra eigin forsendum – til dæmis með því að tryggja þeim aðgang að viðeigandi þjónustu vegna heimil- isofbeldis, þrýsta á aukin réttindi kvenna á vinnumarkaði, tryggja að jaðarsettir hópar svo sem konur með fötlun, í dreifbýli eða jafnvel í flóttamannabúðum, hafi aðgang að mikilvægum upplýsingum um faraldurinn, svo eitthvað sé nefnt.“ Verulegur árangur hafi náðst með þessari nálgun undanfarin ár. „Sms-neyðarsafnanir hafa verið okkar árangursríkustu herferðir og höfum við farið í þó nokkrar. Sem dæmi efndum við til neyðarsöfn- unar í lok árs 2017 til að fjármagna hið magnaða starf UN Women fyrir sýrlenskar í konur í flótta- mannabúðunum Zaatari í Jórdaníu sem þúsundir landsmanna tóku þátt í. Varð fjármagnið til þess að það var hægt að opna nýjan griða- stað fyrir konur þar sem þær geta fengið jafningjastuðning, dag- gæslu fyrir börnin sín, skapað sér tekjur og síðast en ekki síst lifað með reisn. Þannig að þó að það að senda eitt sms virðist ekki vera mikið getum við gert ótrúlega hluti saman,“ segir Snædís. „Ég vil endilega hvetja alla til að senda sms-ið KONUR í 1900 og styrkja þannig stöðu kvenna á þessum erfiðu tímum.“ Stafrænar nálganir í hjálparstarfi Það felast margs konar tækifæri í stafrænu hjálpar- og sjálfboðaliðastarfi. Undanfarin ár hafa hin ýmsu samtök því lagt aukna áherslu á stafrænar lausnir og nálganir í starfsemi sinni. Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra hjá UN Women á Íslandi. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins Sími: 550-5654 / jonivar@frettabladid.is VORHREINGERNINGIN Sérblað Fréttablaðsins, Vorhreingerningin, kemur út mánudaginn 6. apríl. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.