Fréttablaðið - 31.03.2020, Side 27
Nutrilenk liðbætiefnin eru mörgum Íslendingum góð-kunn. Jóhann og Erna hafa
bæði tekið Nutrilenk í nokkurn
tíma og deila hér með okkur sinni
reynslu.
Get hlaupið og gengið á fjöll
Jóhann Gunnarsson byrjaði að
taka Nutrilenk Gold fyrir um það
bil tveimur árum og hefur líf hans
og líðan gjörbreyst í kjölfarið:
„Ég sleit krossband fyrir
mörgum árum og hef farið í
nokkrar liðþófaaðgerðir. Þegar
ég byrjaði að hlaupa fyrir alvöru
fyrir ca. sex árum var ég alltaf með
verki í hnjánum og svo fór að þeir
urðu óbærilegir þannig að ég gat
nánast ekki stigið í fótinn. Ég tók
mér pásu og byrjaði aftur en alltaf
komu verkirnir aftur. Á endanum
gat ég ekki stigið í fótinn nema að
finna fyrir verkjum og oft vaknaði
ég á nóttunni með verki.
Fyrir um tveimur árum byrjaði
ég að taka Nutrilenk Gold að
staðaldri og smám saman gat ég
farið að ganga eðlilega og hlaupa
aftur. Núna get ég gengið og
hlaupið verkjalaus og finn ekkert
fyrir verkjum eftir mikil átök og
kemst auðveldlega af stað aftur.
Ég hef klárað bæði hálfmaraþon
og fjallahlaup án verkja og þetta
þakka ég NUTRILENK.“
Fann ótrúlega fljótt mun
Erna Geirlaug Árnadóttir er 43 ára
innanhússarkitekt sem hreyfir sig
mjög mikið. Hún hreyfir sig alla
daga og tekur vel á í hverju því sem
hún tekur sér fyrir hendur.
„Ég er búin að æfa mikið síðustu
ár; hlaupa, stöðvaþjálfun, tabata
og fleira og varð alltaf þreytt
og aum í liðum og beinum eftir
æfingar. Mér var bent á að prufa
Nutrilenk Gold og ég byrjaði á að
taka 6 töflur á dag í nokkrar vikur.
Ég fann ótrúlega fljótt mun til
hins betra svo ég ákvað að prufa
að taka líka 1 töflu af Nutrilenk
Active því ég var enn með verki
og eymsli í höndum. Active virkar
eins og smurning fyrir liðina en
ég fann mikinn mun á mér og eru
verkirnir nú horfnir. Í dag tek ég 4
Gold og 1 Active daglega. Ekki má
gleyma Nutrilenk gelinu sem ég
nota á axlir og hné en það kælir og
dregur úr bólgum. Ég get því hik-
laust mælt með öllum Nutrilenk
vörunum, án þeirra gæti ég ekki
hreyft mig eins mikið og ég geri í
dag, verkjalaus.“
Líkamsrækt og hlaup
Lífrænt
RAUÐRÓFUDUFT í hylkjum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
• Lækkun blóðþrýstings • Aukið blóðflæði
• Bætt súrefnisupptaka • Aukið úthald, þrek og orka
• Minni bólguviðbragða • Heilbrigðara hjarta- og æðakerfi
Rannsóknir hafa sýnt fram á og/eða bent til tengsla milli drykkju á
rauðrófusafa og ýmissa jákvæðra heilsufarsþátta eins og:
Nítröt í rauðrófum hafa áhrif á blóðþrýsting. Þeir sem
hafa lágan blóðþrýsting eða taka blóðþrýstingslyf
ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir bæta
rauðrófum við mataræði sitt.
100% náttúrulegt án allra aukaefna – 2 hylki á dag
• Lækk blóðþrýstings
• Aukið blóðflæði
• Bætt súrefnisupptaka
• Aukið úthald, þrek og orka
• Minni bólguviðbragða
• Heilbrigðara hjarta- og æðakerfi
Erna Geirlaug Árnadóttir hreyfir sig
alla daga og tekur Nutrilenk Gold og
Nutrilenk Active sem hún segir að
virki sem smurning fyrir liðina.
Jóhann Gunnarsson byrjaði að taka Nutrilenk Gold fyrir u.þ.b. ári og hefur líf hans og líðan gjörbreyst í kjölfarið.
NUTRILENK
GOLD hefur
hjálpað þúsund-
um Íslendinga
sem þjáðst hafa
af eymslum í
liðum, stirð-
leika eða braki í
liðum. Ekkert lát
er á vinsældum
þessa liðbæti-
efnis og það
fjölgar stöðugt í
hópi þeirra sem
öðlast nýtt líf.
Byggingarefni brjóskvefs
Nutrilenk Gold er mest selda lið-
bætiefni á Íslandi og hefur það
gert þúsundum Íslendinga kleift
að hreyfa sig verkjalaust svo árum
skiptir.
Nutrilenk línan inniheldur þrjár
vörur: Nutrilenk Gold, Active og
Gel, og allar eiga þær það sam-
eiginlegt að þær hjálpa til við að
draga úr stirðleika og eymslum í
liðum. Nutrilenk Gold er þekkt-
asta efnið en það er unnið úr sér-
völdum fiskibeinum (aðallega úr
hákarli) sem eru rík af kondrótíni,
kollageni og kalki.
Til þess að gera þessi innihalds-
efni eins virk og kostur er, þá eru
þau meðhöndluð með ensími
(hvata) sem smækkar stóru móle-
kúlin og gerir þau frásogunarhæf
og virk sem byggingarefni fyrir
brjóskvef.
Að auki inniheldur Nutrilenk
Gold C-vítamín, sem hvetur eðli-
lega myndun kollagens sem nauð-
synlegt er til að viðhalda brjóski,
D-vítamín og mangan.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 1 . M A R S 2 0 2 0