Fréttablaðið - 07.04.2020, Qupperneq 4
Það er ansi erfitt
ástand á heimil-
unum, mikil læti og álag.
Hrannar Björn
Arnarsson,
formaður ADHD-
samtakanna
Þú hringir í síma 517 5500
eða sendir póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Fáðu lyn send frítt heim
LYFSALINN GLÆSIBÆ
Álfheimum 74 104 Reykjavík
Sími 517 5500
www.lyfsalinn.is
lyfsalinn@lyfsalinn.is
OPNUNARTÍMI
Mán.- fös. kl. 08:30-18:00
Laugardaga: Lokað
GLÆSIBÆ
GLÆSIBÆ
COVID-19 Í því ástandi sem nú ríkir
á heimilum landsmanna og raskana
á skólastarfi eiga börn með ADHD
erfiðara að fóta sig. Talið er allt að 10
prósent nemenda í hverjum árgangi
séu einhvers staðar á ADHD-rófinu.
Er það vel á fimmta þúsund grunn-
skólanema. Þá er hætta á að nem-
endur á framhaldsskóla og háskóla-
stigi f losni upp úr námi.
Hrannar Björn Arnarsson, for-
maður ADHD-samtakanna, segir
allt rask erfitt fyrir þennan hóp,
bæði börn og fullorðna, og þetta
geti bitnað á náminu. Lítil viðvera
og aðhald frá skólanum og mikil
verkefnavinna heima henti í mörg-
um illa. „Tímaskyn og skipulags-
eiginleikar eru ekki eins sterkir hjá
mörgum í okkar hópi og hjá ýmsum
öðrum,“ segir hann. „Þetta reynir
rosalega á foreldrana sem þurfa að
taka mikla viðbótarvinnu á sig, sem
kennararnir voru með áður.“
Samkomubann tók gildi 17. mars,
átti að standa fram yfir páska,
hefur nú verið framlengt til 4. maí.
Því lengur sem ástandið varir, því
erfiðara verður það fyrir börn með
ADHD. Samkvæmt Hrannari hefur
þetta þó einhverja kosti. „Frjálsara
umhverfi getur hjálpað sumum, að
geta staðið upp hvenær sem er og
verið maður sjálfur, sem er svolítið
erfitt í stífum skólaramma. Þá þarf
aðhaldið að koma heiman frá því
auðvelt er að láta hugann reika.“
Samtökunum hafa borist fjöl-
margar fyrirspurnir frá foreldrum
ADHD barna um hvernig eigi að
takast á við ástandið. Sumir þeirra
heimavinnandi en aðrir ekki.
Hrannar segir kennara misvel
upplýsta um þetta vandamál og
staðan sé mismunandi eftir skólum.
„Sums staðar er þetta mjög vel gert
og kennararnir meðvitaðir um
þarfir þessara barna en sums staðar
afskaplega frumstætt,“ segir hann.
„Það er galli á skólakerfinu og upp-
byggingu kennslu í dag að enginn
kennari er útskrifaður með grunn-
þekkingu eða hæfni í ADHD-fræð-
um eða sérþarfafræðum yfirleitt.“
Mestar áhyggjur hafa ADHD-
samtökin af eldri nemendum, þar
sem öll kennslan er fjarkennsla.
Telur Hrannar góðar líkur á brott-
falli nemenda þar. ADHD komi oft
í ljós á þessum stigum, þegar sjálfs-
nám er orðið meira, hjá nemendum
sem gekk ágætlega í grunnskóla.
Ástandið er ekki aðeins erfitt
með tilliti til náms fyrir þennan
orkumikla hóp. Margir eru lokaðir
inni, mega fáa hitta og íþrótta- og
tómstundastarf liggur niðri. „Það
er ansi erfitt ástand á heimilunum,
mikil læti og álag. Þetta er ætt-
gengt og því oft f leiri en einn og
f leiri en tveir með ADHD í fjöl-
skyldum,“ segir Hrannar. Minnir
hann á að samtökin veita ráðgjöf
og halda fræðslufundi á netinu
á miðvikudögum á meðan þetta
varir. Sums staðar, til dæmis í
Reykjavík og Reykjanesbæ, er
félagsþjónustan að teygja sig
út til fólks til að veita ráðgjöf.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Röskun skólastarfsins bitnar
verr á börnum með ADHD
Röskun á skólastarfi bitnar illa á nemendum með ADHD, sem eru allt að 10 prósent í hverjum árgangi,
vegna skorts á aðhaldi skólans. Verst bitnar hún á nemendum á efri stigum þar sem allt námið er nú
unnið í fjarkennslu. Formaður ADHD samtakanna telur hættu á að þessi hópur flosni upp úr námi.
Mikil verkefnavinna heima fyrir hentar börnum með ADHD í mörgum tilfellum afar illa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Hjartveikum manni
var gert að framvísa yfirliti um allar
innborganir á reikninga sína með
umsókn til Reykjavíkurborgar um
fjárhagsaðstoð. Samkvæmt yfirlit-
inu hafði hann fengið samtals rúm-
lega áttatíu þúsund krónur greiddar
inn á bankareikning sinn í síðasta
mánuði og var fjárhagsaðstoð til
hans fyrir aprílmánuð skert um
sömu fjárhæð, krónu á móti krónu.
Þessu lýsir Guðmundur Ingi Þór-
oddsson, formaður Afstöðu, félags
fanga og annarra áhugamanna
um bætt fangelsismál og betrun, í
aðsendri grein á frettabladid.is en
maðurinn er fyrrverandi fangi sem
leitaði til félagsins.
Innborganir nar á reik ning
mannsins voru margar lágar upp-
hæðir frá fjölskyldu og vinum; „lán
til að þreyja þorrann,“ segir í grein
Guðmundar sem óskaði svara frá
Reykjavíkurborg.
„Svör borgarinnar eru á þá leið að
fái fólk greiðslur inn á reikning sinn
frá öðrum en borginni sé viðkom-
andi ekki í brýnni þörf fyrir fjár-
hagsaðstoð þann mánuðinn,“ segir
í greininni en í samtali við Frétta-
blaðið segir Guðmundur að um
hjartveikan mann sé að ræða. Hann
hafi ekki ráð á að leysa út hjartalyfin
sín en félagsráðgjafi hjá borginni
hafi ráðlagt manninum að leita til
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Í greininni gagnrýnir Guðmund-
ur þetta fyrirkomulag og segir það
ekki hlutverk félagsráðgjafa Reykja-
víkurborgar að sporna gegn svartri
atvinnustarfsemi.
Ætli borgin hins vegar að halda
í þetta niðurlægjandi kerfi beri
borginni að virða rannsóknarreglu
stjórnsýslulaga og skoða hverja
færslu í þaula og sannreyna að um
tekjur sé í raun og veru að ræða.
– aá
Borgin vísaði fjárþurfi manni á Hjálparstofnun kirkjunnar
Guðmundur Ingi Þóroddsson, for-
maður Afstöðu, félags fanga.
COVID -19 Greint var frá tveimur
andlátum í gær vegna COVID-19
sýkingar og er nú heildarfjöldi
látinna kominn í sex. Annar lést á
Landspítala en hinn í Bolungarvík.
Alls greindust 76 ný tilfelli af
COVID-19 í gær og er því heildar-
fjöldinn kominn í 1.562. Þá hafa 460
hins vegar náð sér af veikindum, en
þeim fjölgaði um 32. Nærri 2.500
sýni voru tekin í gær, meirihlutinn
hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þá
eru um 5.300 manns nú í sóttkví á
heimilum sínum.
Á blaðamannafundi almanna-
varna í gær greindi Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir frá því
að til skoðunar væri að herða eftir-
lit með ferðamönnum sem koma
hingað til lands með skemmti-
ferðaskipum eða f lugvélum. „Við
þurfum að passa það að skemma
ekki þann árangur með að fá aftur
hér faraldur,“ sagði hann en fyrsta
skemmtiferðaskipið er væntanlegt
21. maí næstkomandi.
Víðir Reynisson yfirlögreglu-
þjónn brýndi fyrir fólki að vera
heima um páskana. Björgunar-
sveitir hafi þurft að bjarga um 100
manns föstum á heiðum um liðna
helgi sem hafi verið vonbrigði. „Er
þetta ekki komið gott?“ spurði
hann. Þá óskaði Alma D. Möller
landlæknir eftir fleirum í bakvarða-
sveit heilbrigðisþjónustunnar og
lýsa sig viljuga til að sinna störfum
utan höfuðborgarsvæðisins. Ástæð-
an er hópsýkingar sem hafa blossað
upp, til dæmis á Vestfjörðum og í
Vestmannaeyjum. – khg
Andlát á
Landspítala og í
Bolungarvík
Af daglegum blaðamannafundi
almannavarna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð