Fréttablaðið - 07.04.2020, Page 9
Við þær aðstæður sem nú
ríkja í samfélaginu er sér-
staklega mikilvægt að efla
slíkt starf.
Tíminn er naumur og hér
þarf að gera meira en minna
og jafnvel fara óhefðbundn-
ar leiðir.
Við þurfum sem samfélag að bregðast við margvíslegum og alvarlegum aðstæðum
á tímum COVID-19 faraldursins.
Ein áskorunin tengist hættunni
á vaxandi heimilisof beldi sem
hlýst af samkomubanni og til-
mælum um að sem flestir haldi sig
heima. Þegar hafa komið fram vís-
bendingar um að of beldi í nánum
samböndum hafi færst í aukana
að undanförnu. Oftast er um að
ræða konur og börn. Nauðsynlegt
er að bregðast við og tryggja eins
og kostur er öryggi þeirra sem búa
í slíku umhverfi.
Ég hef óskað eftir því við Ríkis-
lögreglustjóra að aðgerðir til að
bregðast við heimilisof beldi verði
sérstaklega teknar til umræðu á
fundi lögregluráðs í þessari viku.
Lögregluembættin verða öll að
vera vakandi fyrir þessari hættu og
reiðubúin til að grípa til viðeigandi
ráðstafana hvar sem er á landinu.
Hraða verður, eftir því sem mögu-
legt er, viðbragðstíma lögreglu eftir
að tilkynning hefur borist um yfir-
vofandi eða yfirstandandi hættu
eða ógn á heimili.
Við þurfum að tryggja þolendum
möguleika og úrræði til að bregðast
við og forða sér út úr hættulegum
aðstæðum. Ótti um að þau úrræði
séu ekki örugg vegna þess faraldurs
sem ógnar nú lífi og heilsu lands-
manna er ástæðulaus. Gerðar hafa
verið ráðstafanir til að bregðast við
af völdum COVID-19 í Kvennaat-
hvarfinu, Bjarkarhlíð og Bjarma-
hlíð. Enginn má veigra sér við að
leita sér aðstoðar á þessum tímum.
Þolendur eiga kost á að fá þar vernd,
dvöl, viðtöl og ráðgjöf, lögfræðiað-
stoð og langtíma stuðning til að
vinna úr afleiðingum of beldis.
Við þurfum öll að hjálpast að
við að miðla upplýsingum um
hvert þolendur heimilisof beldis
geti leitað. Fræðsla og forvarnir er
varða of beldi í nánum samböndum
og heimilisof beldi er mikilvægt á
öllum tímum. Við þær aðstæður
sem nú ríkja í samfélaginu er sér-
staklega mikilvægt að ef la slíkt
starf. Víða um heim eiga konur erf-
iðara með að leita sér hjálpar vegna
COVID-19. Öll verðum við að gera
allt sem í okkar valdi stendur til
að tryggja öryggi fólks sem býr við
erfiðar aðstæður of beldis og ótta á
heimilum sínum. Ef þú veist af eða
hefur grun um heimilisof beldi,
haltu góðu sambandi við þolanda,
láttu lögregluna vita og leitaðu
aðstoðar hjá fagaðila.
Lög reg la n: 112 , Kvenna at-
hvarfið: sími: 5611205 (opið allan
sólarhringinn), Bjarkarhlíð: sími:
5533000 og Bjarmahlíð Akureyri:
sími: 551-2520.
Aukin hætta á heimilisofbeldi
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
dómsmálaráð-
herra
Á að hafa það notalegt og
horfa á eitthvað gott í kvöld?
Þú færð allt naslið og drykkina
á næstu Kvikk-stöð Orkunnar.
Gerðu
viðeigandi
ráðstafanirÁ undanförnum vikum höfum við í Viðreisn lagt mikla áherslu á mikilvægi þess
að verja þau fyrirtæki sem eiga
undir högg að sækja við núverandi
aðstæður. Við höfum stutt þær
góðu tillögur sem komið hafa frá
ríkisstjórninni en jafnframt lýst yfir
efasemdum um að þær séu nægilega
öflugar til að tryggja að atvinnulífið
geti veitt þá viðspyrnu sem þarf að
þessum faraldri loknum.
Í aðgerðum stjórnvalda þarf að
taka sérstakt tillit til sprota- og
nýsköpunarfyrirtækja, en þau
standa mörg frammi fyrir óaftur-
kræfu tjóni sé þeim ekki rétt líflína.
Það skiptir gríðarlegu máli að ráðist
verði í aðgerðir sem henta nýsköp-
unar-, hugverka- og hátækniiðnað-
inum og verja hann svo uppbygg-
ingin geti haldið áfram eftir þessar
hremmingar. Þetta er lykilatriði
því eftir faraldurinn verðum við að
geta byggt á fjölbreyttu atvinnu-
lífi. Atvinnulífi sem byggir áfram
á okkar hefðbundnu atvinnugrein-
um; sjávarútvegi, landbúnaði, ferða-
þjónustu og stóriðju en ekki síst
atvinnulífi sem byggir á hugverka-
og hátækniiðnaði og nýsköpun.
Umhverfi nýsköpunar á Íslandi er
brothætt þótt mörg jákvæð skref
hafi verið stigin á síðustu árum. Þar
þarf að bregðast hratt og örugglega
við til að verja störf og halda sprot-
unum á lífi.
Fleiri leiðir en hlutabótaleiðin
Hlutabótaleiðin er brýn og þörf
aðgerð sem kemur til með að
gagnast fjölmörgum fyrirtækjum,
en verr þeim fyrirtækjum sem
byggja framtíð sína á rannsóknar-
og þróunarstarfi. Aukning á fram-
lögum til nýsköpunarsjóða og
hækkun á endurgreiðsluþaki og
hlutfalli vegna rannsóknar- og þró-
unarstarfs, eins og minnihlutinn á
þingi hefur meðal annars lagt til,
myndi gagnast slíkum fyrirtækjum
mun betur.
Þessum tillögum væri hægt að
hrinda strax í framkvæmd en þær
myndu gera nýsköpunarfyrir-
tækjum kleift að halda áfram mikil-
vægu rannsóknar- og þróunarstarfi
og tryggja þannig að þau komi mun
sterkari inn í viðspyrnu haustsins.
Málið er brýnt og varðar framtíðar-
þróun Íslands. Hugvitið og lausnir
til framtíðar er það sem er hér í húfi.
hvort sem um er að ræða lausnir til
orkusparnaðar, rekjanleika mat-
væla, netöryggis og brýnna heil-
brigðislausna svo nokkur dæmi
séu tekin.
Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi
hafnað tillögum okkar um aukna
innspýtingu til nýsköpunar- og
sprotaf y rirtækja þar f enginn
að velkjast í vafa um að henni er
umhugað um umhverfi nýsköpunar
á Íslandi. Það er því ekki úr vegi að
hvetja ríkisstjórnina til að halda
uppteknum hætti og taka enn og
aftur upp mál Viðreisnar og gera að
sínum. Lykilatriðið er að tekin verði
stærri og skarpari skref, samhliða
hlutabótaleiðinni sem raunveru-
lega nýtast nýsköpunar, hugverka-
og hátækniiðnaðinum á Íslandi.
Við í Viðreisn munum styðja ríkis-
stjórnina til þess.
Tíminn er naumur og hér þarf
að gera meira en minna og jafnvel
fara óhefðbundnar leiðir. Gerum
allt sem í okkar valdi stendur til að
skapa þá nauðsynlegu viðspyrnu
sem íslenskt efnahagslíf og samfélag
mun þurfa á að halda.
Líflínu til sprotanna
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 7 . A P R Í L 2 0 2 0