Fréttablaðið - 07.04.2020, Qupperneq 10
SPORTIÐ Í KVÖLD
ÞRI • MIÐ • FIM 20:00
#bestasætið
FÓTBOLTI Gordon Taylor, formaður
leikmannasamtakanna á Englandi,
segist vera undrandi á stöðugum
árásum sem fótboltamenn þar í
landi eru að verða fyrir – jafnvel frá
heilbrigðisráðherra landsins. Enska
úrvalsdeildin vill að leikmenn taki
á sig 30 prósenta launalækkun út
árið en leikmannasamtökin gáfu út
yfirlýsingu um helgina sem slökkti
fáa elda. Þar stóð að með því að
lækka í launum myndu Bretar missa
um 200 milljónir punda í skatt-
greiðslur og það myndi ekki hjálpa
fjársveltu heilbrigðiskerfi.
Fyrirliðar liða í úrvalsdeildinni
hittust á fjarfundi og spjölluðu svo
saman í gegnum Wattsapp um það
hvernig leikmenn gætu aðstoðað á
þessum undarlegu tímum sem nú
eru uppi. Viðræður milli deildar-
innar, leikmannsamtakanna, sam-
taka knattspyrnustjóra og fulltrúa
liðanna munu verða í vikunni. Þar
verður meðal annars rætt um laun,
lok tímabilsins og ýmislegt f leira.
Gordon Taylor sagði við Sky
stöðina í gær að það væri ekki þann-
ig að leikmenn vildu ekki aðstoða
– þeir vildu einfaldlega vita hvert
peningurinn þeirra færi. „Það eru
margir erlendir leikmenn að spila í
deildinni og margir þeirra vilja til
dæmis aðstoða heilbrigðisyfirvöld í
sínu heimalandi og setja peninginn
til sinna vina og vandamanna sem
eiga um sárt að binda.“
Taylor bætti við að honum hefði
brugðið við orð heilbrigðisráð-
herra sem skoraði á knattspyrnu-
menn að taka á sig launalækkun.
„Mér fannst merkilegt að hlusta á
ráðherrann því hann er með nóg af
vandræðum á sinni könnu.“ Bretar
hafa fengið mikla gagnrýni á sig
fyrir það hvernig landið tæklaði
kórónavírusinn og yfirvöld hafa
verið sökuð um að vera ekki nægi-
lega undirbúin. Téður ráðherra
hefur fengið megnið af gagnrýninni
og fannst Taylor hann vera að reyna
beina gagnrýninni annað.
Launamál knattspyrnumanna
er orðið að sjóðheitu máli í Bret-
landi. Eftir að Bretar fóru í aðgerðir
til að ná tökum á COVID-19 hafa
vel launaðir fótboltamenn gert sig
að athlægi með hegðun sinni. Nú
síðast landsliðsbakvörðurinn Kyle
Walker með því að bjóða vændis-
konum í kynlífspartý. Áður hafði
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa,
farið í partý og hunsað tilmæli um
að halda sig heima. Báðir höfðu
hvatt fylgjendur sína á samfélags-
miðlum til að vera ábyrgir í sinni
hegðun og halda sig heima. Wal-
ker reyndar hélt kynlífspartýið
heima hjá sér. „Walker setur inn
færslu og svo samdægurs fær hann
til sín tvær fylgdarkonur til þess
að djamma með sér og vinum
sínum. Hversu kærulaus er hægt
að vera? Þetta er dæmi um ógeðs-
lega hræsni, lygilega sjálfselsku
og fádæma kæruleysi,“ sagði Piers
Morgan í morgunþætti sínum,
Good Morning Britain.
Eftir að heilbrigðisráðherra svar-
aði spurningu blaðamanna um laun
fótboltamanna hefur verið smjattað
á ofurlaunum fótboltamanna og
margir tekið undir með ráðherr-
anum. Að fótboltamenn væru ekki
að gera nóg, þó að það sé ekki alveg
satt. Fjölmörg dæmi sanna að leik-
menn hafa verið duglegir að láta
til sín taka í hinum ýmsum góð-
gerðarmálum og margir hafa látið
gríðarlegar upphæðir til heilbrigðis-
mála að undanförnu. Ekki skánaði
ástandið þegar félög fóru að nýta
sér úrræði enskra stjórnvalda um
launagreiðslur starfsmanna. Eftir að
Liverpool nýtti sér þetta úrræði má
segja að enska þjóðin hafi nánast
snúið bakinu við fótboltanum.
Liverpool er á góðri leið með að
sturta niður allri velgengni vetrar-
ins, því spænska blaðið AS greindi
frá því í gær að félagið hafi neitað
að taka þátt í að endurgreiða stuðn-
ingsmönnum sem neituðu að fara
til Liverpool vegna hættunar á að
smitast. Atletico greiddi 17 þúsund
dali til 290 stuðningsmanna sem
hættu við á síðustu stundu og bað
Liverpool að taka þátt, sem sagði
einfaldlega nei takk, samkvæmt
AS. Enda tók Morgan félagið fyrir
og sagði alls ekki fallega hluti um
eigendur liðsins og þá sem stjórna.
Manchester liðin, City og United,
Leicester og Everton eru meðal liða
sem ætla ekki að nýta sér úrræðin.
Kallað hefur verið eftir því að lið
sem nýta sér úrræði stjórnvalda
fái ekki að kaupa leikmenn. Tay-
lor benti einmitt á að þetta skref
sem nokkur lið hafa nýtt sér sýni
að það þurfi að hafa eftirlit með
eigendunum. „Það er samhugur
meðal leikmanna með þeim sem
vinna hjá félögunum. Þetta er eitt-
hvað sem þeir hugsa um. En vinnu-
veitendur þeirra, félögin sem eru að
nýta sér úrræðin, vilja að leikmenn
borgi brúsann og það eru þeir ekki
sáttir við.“
Kostnaðarvandamál hjá KSÍ
Enska knattspyrnusambandið
tilkynnti að þeir sem hafa hæstu
launin þar á bænum munu taka á
sig launalækkun. Allir sem þéna
yfir 50 þúsund pund munu lækka
í launum. Knattspyrnusamband
Íslands gerði ráð fyrir tapi á árinu
þegar áætlun fyrir árið 2020 var
kynnt í Ólafsvík á upphafsdögum
kórónafaraldursins. Þar er gert
ráð fyrir 225 milljón króna launa-
kostnaði og launatengdum gjöldum
á skrifstofu og stjórnunarkostn-
aði. Í ársskýrslu KSÍ kom fram að
laun og bifreiðastyrkur til Guðna
Bergssonar, formanns KSÍ, námu
um 17,4 milljónum króna og til
Klöru Bjartmarz framkvæmda-
stjóra um 15,8 milljónum króna.
Enda bentu á ársþinginu tveir
reyndustu fótboltaforkólfar lands-
ins, Viðar Halldórsson frá FH og
Haraldur Haraldsson frá Víkingi,
á að vandamál KSÍ væri ekki tekju-
vandamál heldur kostnaðarvanda-
mál. benediktboas@frettabladid.is
Leikmenn í Englandi undir smásjánni
Leikmenn í Englandi vilja ekki taka á sig launalækkun því þeir treysta ekki eigendum liðanna. Þess í stað vilja þeir gefa sjálfir til
líknarmála. Knattspyrnusamband Englands dregur saman seglin. Vandinn hjá KSÍ er kostnaður samkvæmt reyndum forkólfum.
FIFA hefur slakað á klónni um að klára tímabilið innan ákveðins tímaramma. NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta er dæmi um
ógeðslega hræsni,
lygilega sjálfselsku og
fádæma kæruleysi.
Piers Morgan
um Kyle Walker
225
milljón króna launa-
kostnaði og launatengdum
gjöldum er gert ráð fyrir á
skrifstofu KSÍ. Kostnaður-
inn hækkar um sjö milljónir
milli ára. KSÍ reiknar með
taprekstri í ár.
7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT