Feykir - 22.02.2017, Síða 1
08
TBL
22. febrúar 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 6–7
BLS. 9
Opinn dagur í Blönduskóla
Árshátíðin stendur
alltaf fyrir sínu
BLS. 10
Jón Daníel Jónsson kynnir
íslenskan mat í fyrrum Sovét
Telur að Rúss-
landsmarkaður
opnist fyrr en varir
Axel Kárason segir frá
degi í lífi brottflutts
„Danir eru með
þann ljóta ósið að
taka bara hálftíma
í mat“
Söngkeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var haldin á
sal skólans föstudaginn 17. febrúar sl. fyrir fullu húsi
áhorfenda. Ellefu flytjendur fluttu tíu lög, hvert öðru betra,
eins og segir á vef skólans. Rannveig Sigrún Stefánsdóttir,
sem sigraði í söngkeppni félagsmiðstöðva á Norðurlandi, flutti
lag sem gestur og vann hug og hjörtu áhorfenda.
Þannig fór að Einar Örn Gunnarsson bar sigur úr býtum í
keppninni með Bon Jovi slagarann, Bed of Roses. Í öðru sæti
endaði Ásbjörn Waage með Kiss-lagið Strutter og í þriðja sæti
urðu flytjendurnir Malen Áskelsdóttir og Bjarkey Birta
Gissurardóttir með lagið Russian Roulette sem hin barbadóska
Rihanna samdi.
Dómarar voru þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Sólveig
Fjólmundsdóttir og Kristján Valgarðsson og segir á fnv.is að
þau hafi séð ástæðu til að veita viðurkenningu utan hefð-
bundinna verðlauna fyrir listamann kvöldsins. Þann heiður
hlaut Hákon Magnússon Hjaltalín fyrir flutning sinn á laginu
Working Class Hero.
Kynnar kvöldsins voru þær Matthildur Kemp Guðnadóttir
og Elín Sveinsdóttir og stjórnuðu dagskránni með stakri prýði
og héldu áhorfendum við efnið á milli atriða. /PF
Sigurvegari kvöldsins, Einar Örn Gunnarsson. MYND: ÞORKELL V. ÞORSTEINSSON
Söngkeppni FNV
Einar Örn söng til sigurs
Uppbyggingarsjóður og Atvinnu- og
nýsköpunarsjóður Norðurlands vestra
veita styrki til atvinnuþróunar,
nýsköpunar og menningarverkefna.
Fimmtudaginn 16. febrúar sl. voru veittir
styrkir úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands
vestra við athöfn í veitingahúsinu
Sjávarborg á Hvammstanga.
Alls bárust 107 umsóknir þar sem
óskað var eftir rúmum 135 milljónum
króna í styrki. Styrkir voru veittir til 64
aðila, alls að upphæð tæpar 56,6 millj.
kr. Við sama tækifæri voru einnig
veittir styrkir úr Atvinnu- og
nýsköpunarsjóði Norðurlands vestra.
Alls bárust sjö umsóknir þar sem
óskað var eftir tæpum 17 milljónum
króna í styrki. Styrkir voru veittir til
Uppbyggingarsjóður
Tæpar 66 milljónir í styrki
þriggja aðila, samtals að upphæð 9,4
millj. kr.
Hæsta styrkinn hlaut Garðyrkjus-
töðin Laugarmýri 4.000.000 kr. (f.h.
óstofnaðs félags): Samrækt á Laugar-
mýri, þá Iceprotein: Þorskbein sem
fæðubót 3.800.000 kr., Magnús Barð-
dal (f.h. óstofnaðs félags): Heimili
lundans 3.700.000 kr. og 2.700.000 kr.
komu í hlut Selaseturs Íslands: Tvö
verkefni a) Stofn- og rekstrarstyrkur
b) Undirbúningur að gerð heimilda-
myndar um selveiðar á Vatnsnesi. /FE
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Velkomin til Pacta lögmanna
& 440 7900 pacta@pacta.is
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is