Feykir


Feykir - 22.02.2017, Page 4

Feykir - 22.02.2017, Page 4
Kristín Helgadóttirr Aðalgötu 17 á Sauðárkróki skrifar Minning Freyju Mig minnir að Sigga mín hafi eignast Freyju fljótlega eftir að hún flutti heim frá Hamborg (mest mín vegna). Hún hafði þá keypt gamla húsið sem við Magnús áttum og bjuggum í í 20 ár, Skógargata 5b. Seldum 1968 er við fluttum til Ástralíu. Hún þá 5 ára og er ég sagði henni eitt sinn er hún kom heim í frí að þetta hús væri til sölu agði hún; þarna eru ræturnar, sendi inn tilboð og fékk húsið. Flutti svo heim og fór að gera við ýmislegt. Sagði svo eitt sinn, mamma ég ætla að fá mér hund, er það ekki í lagi? Auðvitað svaraði ég. Vissum báðar að ég fengi mitt hlutverk með þetta dýr. Fréttum svo af Freyju, þá nefnd Rósa. Falleg lítil tík sem hafði verið ein í goti og því alls óvön að deila nokkru með öðrum. Það kom strax í ljós að hún var óvenjulegur hundur. Hún til dæmis át afar hægt alla tíð, lyfti fæðunni upp í sig með tungunni og tuggði hægt. Slefaði aldrei sníkti sjaldan og skildi oft eftir mat. Át ekki af græðgi. Varð náttúrulega dekurdýr og leyfði sér matvendni. Sigga kom með hana til mín er hún fór í vinnuna og þær báðar í morgunmat. Setti ég þá púða undir Freyju á eldhússtól og leyfði henni að sitja til borðs með okkur, oft mjög gaman. Hún varð kannski aldrei mjög vel öguð. Sjálfstæð, orkumikil, afar fljót að hlaupa og naut þess að eltast við fé og smala því saman í hóp. Hefði orðið frábær fjárhundur í sveit með réttri þjálfun. Ég hef alltaf haft mikið yndi af berjatínslu og tók Freyju oft með. Kári Steins, líka sjúkur í berjatínslu, tók okkur oft með. Eitt sinn fórum við í melana nyrst í Tungulandi út undir rétt, Freyja var með – átti bara að vera í bílnum. Kári þurfti að sækja eitthvað og missti hana út. Hún á harða sprett og burt í fé bræðra minna sem var í girðingu á Tungukoti. Ég brá við og elti Freyju. Er ég kom á vettvang var kella búin að elta hópinn marga hringi á túninu. Ég náttúrlega að skamma hana og skipa að stansa, þá rak hún í horn á girðingunni og lagðist svo niður í varnarstöðu. Ég náttúrlega tók hana og skammaði eitthvað. En það var erfitt, hún var svo ánægð og greinilega stolt af sjálfri sér. Bræðurnir sáu eflaust ekki aðfarirnar, a.m.k. var þetta aldrei til umræðu. Annað sinn missti ég hana frá mér í Skógarhlíðinni, vorum hætt að tína og ég að leysa hana frá tré er ég batt hana við. Kella tók á rás og hvarf út í Sauðárgil. Við ókum þar úteftir en það var eins og jörðin hefði gleypt tíkar- skömmina. Við leituðum talsvert en ég reiknaði svo með því að hún hefði hlaupið heim. Sem reyndist ekki rétt. Komið myrk- ur, Amanda frænka okkar sem var í heimsókn frá Kanada heimtaði að fara og leita. Hún var svo hrifin af Freyju. Sú leit bar engan árangur, olli mér bara áhyggjum af Amöndu, sem var ókunnug og þar að auki fötluð. Alla vega, snemma um morguninn eftir lögðum við Kári upp, fórum beint fram að Áshildarholtsgirðingu þar sem við tíndum daginn áður. Og viti menn, neðar með girðingunni var Freyja, stóð fast upp við staur – hafði byrjað á að festa tauminn í girðingunni farið svo í gegn fram og aftur og kring um staurinn þar til hún var blýföst. Þar var mikill fagnaðarfundur hjá okkur báðum. Mörg fleiri ævintýr áttum við Freyja saman. Hún kippti mér tvisvar af hjólinu mínu úti á miðri götu. Og beinbrot hlaut ég með hana en henni fyrirgafst allt. Hún mátti aldrei heyra eða sjá annan hund, þá tók hún viðbragð. Gelti og reifst. Hún var oft bundin við tröppurnar á húsi nr. 17 við Aðalgötu. Lét alltaf í sér heyra ef hundar fóru hjá hvort sem var í bíl eða gangandi með eigendum. Ég held að henni hafi fundist hún eiga og vilja stjórna gamla útbænum. Eitt enn óvenjulegt við Freyju; hún eignaðist aldrei hvolpa. Var þó aldrei gerð ófrjó. Við gerðum fjórum sinnum tilraun er hún var á lóðaríi. Fengum sinn hvern hundinn í hvert skipti, lokuðum þau af í mínum bakgarði. Hún var lífleg og kát – lék sér dátt heilu dagana. En ef þeir ætluðu að fara að ná á hana beit hún þá frá sér. Fóru þeir flestir með lafandi skott af hennar fundi. Hún veiktist svo hastarlega fyrir nokkrum árum, greindist með æxli í legi og var það fjarlægt og virtist hún ná sér vel eftir þá aðgerð. En nú eftir þriðju árás af nágrannahundum var hún það mikið slösuð að um ekkert var að ræða annað en að gefa henni líknarsprautu. Hún líka að verða 13 ára. Við mæðgur í sjokki og sárri sorg. Munum sakna hennar mikið, en eigum margar skemmtilegar minningar. Kæru dýravinir og gæludýraeigendur. Það fylgir því mikil ábyrgð og vinna að eiga gæludýr. Ekki nóg að gefa þeim að éta á réttum tíma, þau þurfa félagskap, útivist, hreyfingu en umfram allt blíðar gælur og að talað sé við þau. Munum að þau hafa sál og tilfinningar rétt eins og við mannfólkið. AÐSENT Verkfalli sjómanna aflýst Sjómenn samþykktu naumlega Sjómannaverkfalli, sem staðið hafði í rúmar fimm vikur, lauk sl. sunnudag eftir að sjómenn höfðu samþykkt nýgerðan kjarasamning með naumum meirihluta atkvæða eða 52,4%. Á kjörskrá voru 2.214 en 1.189 þeirra tóku þátt, 623 samþykktu samninginn eða 53,7%. 558 sögðu nei eða 46,9%, auð og ógild atkvæði voru 8 eða 0,7%. Talningu atkvæða lauk um kl. 21:00 á sunnudagskvöld og verkfalli sjómanna og verkbanni útgerðarmanna því af- lýst í kjölfarið og stuttu síðar voru landfestar leystar á fyrstu skipunum sem héldu til veiða á ný. Togarar Fisk Seafood, Málmey og Klakkur, héldu á miðin um 10 leytið um kvöldið og Arnar sigldi til hafs daginn eftir. Feykir forvitnaðist um það hjá nokkrum sjómönnum hvernig þeim hugnaðist nýi samningurinn og var hljóðið þungt í þeim og enginn sáttur. Rúnar Kristjánsson Inn á vogi öldur kvika, allt er sumarfegurð prýtt. Sólskinsleiftur líða og blika, logn er nú og veður blítt. Annar svipur var þann vetur vogi og sjó og landi á, þegar bóndinn Barna-Pétur boðaföllin hæstu sá. Hér í stórsjó bana beið hann, bátnum hvolfdi í lendingu. Þjáningar og þrautir leið hann, það fór svo að endingu. Eftir stóð þá ekkjan Þóra, átta börn og flest þá smá. Bágt var í þann bakka að klóra, baslið þar ég harðast sá. Hví skal sögu sára þylja, samtíð skilur ekki neitt. Við þær rúnir vil ég skilja, verður þar ei neinu breytt. Inn á vogi öldur kvika, allt er sumarfegurð prýtt. Samt er erfitt sumt að strika sinni úr og kveða nýtt. Staðið hjá vogi „Ég er ekki sáttur,“ sagði einn sem vildi ekki koma fram undir nafni „Allur þessi tími og fá eitthvað sem er sjálfsagður hlutur. Vinnufatnaður og frítt fæði.“ Annar sagðist vera með óbragð í munni. /PF Skip voru tilbúin til að halda til veiða þegar verkfallið leystist en ís var lestaður sl. föstudag í Klakkinn. MYND: PF 4 08/2017

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.