Feykir


Feykir - 01.03.2017, Qupperneq 7

Feykir - 01.03.2017, Qupperneq 7
almennilegan kúrs í þessu í Árósum. Þar var bæði farið í almenna listasögu og trúarlega list. Þetta var mjög skemmtileg reynsla,“ segir hann. Til Taílands í tilefni af sextugsafmælinu Þann 5. janúar síðastliðinn varð Gísli sextugur. „Þuríður og fleiri ákváðu að halda veislu, sem ég vissi ekkert um. Svo var ég gabbaður inn í hana, grunlaus,“ útskýrir Gísli. Veisl- an var haldin á Löngumýri á annan í jólum og þangað kom fjöldi vina og vandamanna. „Í einhverjar vikur vissu þetta allir hérna nema ég og ég fór nú að hugsa um að það væri sennilega ýmislegt að gerast í sveitinni sem ég hefði ekki hugmynd um,“ segir Gísli kankvís. „En þetta tókst mjög vel og var mjög gaman.“ Í tilefni af afmæli Gísla fóru þau hjónin svo, ásamt vinafólki sínu, í 30 daga ferðalag til Taílands. Á heimleiðinni höfðu þau þriggja daga viðdvöl í Brighton. Þau segjast hafa verið nokkuð dugleg að ferðast gegnum tíðina og hafa ánægju af því. Meðal annars hafi þau farið með Karlakórnum Heimi til Ísraels og Egyptalands og með kirkjukórnum til Luxem- borgar og Kanada. Einnig til Edinborgar með kirkjukór Sauðárkrókskirkju. „Þetta hafa verið góðar ferðir, með kórunum,“ segja þau. Gísli segist einnig hafa farið á heimssýninguna í Kína fyrir nokkrum árum, sem hafi verið hin skemmtilegasta ferð og eitt sinn fóru þau til Finnlands og Rússlands. Talið berst að kirkjukór Glaumbæjarprestakalls, en Þuríður var nýlega komin í Glaumbæ þegar Jón Björnsson, þáverandi söngstjóri, dreif hana í kórinn. Hefur hún sungið með kórnum síðan, m.a. sungið einsöng. Hún færir blaðamanni tvo geisladiska sem kórinn hefur gefið út og Gísli segir hafa hlotið góða dóma. „Söngurinn hefur fylgt mér alveg frá barnæsku. Foreldrar mínir sungu bæði í kirkjukór. Ég byrjaði að sitja á loftinu í messum og svo var maður farinn að syngja með, þannig að ég þekki ekkert annað.“ Hún segist einnig hafa sungið með Rökkurkórnum og Skagfirska kammerkórnum og um tíma í Kirkjukór Sauðárkrókskirkju, meðan þau bjuggu á Króknum. Einnig hafi hún fengið að syngja með kirkjukór Barðs- kirkju, meðan Gísli þjónaði Fljótamönnum. Gísli þjónaði Barðspresta- kalli í Fljótum um ellefu ára skeið, á árunum 1985-1996. „Ég hafði mjög gaman af því að hafa Fljótin með. Ég kynntist vel Fljótafólki og hefði ekki viljað missa af því,“ segir Gísli um þennan tíma. „Á þeim árum var mikið um að vera, mikið af ungu fólki, m.a. við laxeldið og virkjunina, og mörg fermingarbörn og krakkar í sveitinni,“ bætir hann við. Gísli sinnti einnig aukaþjónustu í Miklabæjarprestakalli árin 1984-1985. En að öllu jöfnu eru það Glaumbæjarkirkja, Reyni- staðarkirkja, Víðimýrarkirkja, Rípurkirkja í Hegranesi og Langamýri sem heyra undir Glaumbæjarprestakall. Aðspurður segir Gísli starfið ekki hafa breyst mikið á þeim árum sem hann hefur verið í embætti. „Nema hvað, nú er ég eini karlpresturinn í Skagafirði. Ég held að menn finni kannski meiri breytingar í borginni en í sveitinni finnst mér þetta allt ósköp svipað. Hér er ágætis messusókn og mikið starf í kringum kórinn. Við erum mjög heppin með bæði organ- ista og söngfólk. Svo erum við svo heppin að vera með Löngu- mýri hérna í prestakallinu, sem er starfsmiðstöð kirkjunnar. Þar fer fram hið eiginlega safnaðarstarf, fyrir utan mess- urnar.“ Gísli hefur verið formaður Löngumýrarnefndar um langt skeið og segir þá uppbyggingu sem þar hafi átt sér stað ánægjulega. „Ég er mjög stoltur af starfinu sem þar er,“ segir hann. Á Löngumýri hafa m.a. verið sumarbúðir fyrir fatlaða í samstarfi við RKÍ. Þá hafa vinsældir orlofsdvalar fyrir eldri borgara aukist mikið og margir hópar á sumri sem koma í slíka dvöl. Einnig hefur verið boðið upp á samveru fyrir ekkjur og ekkla, fyrir krabba- meinssjúka, sykursjúk börn og fleira. Á veturna er svo kirkju- skólinn vikulega og starf tengt fermingarfræðslu. Einnig er mikið um sauma- og prjóna- helgar, fundi og ráðstefnur, ýmsar veislur og svo mætti lengi telja. Meðfram embætti sínu hefur Gísli gegnt ýmsum félagsstörfum í gegnum tíðina. Hann var stundakennari við Varmahlíðarskóla í tvö ár og formaður skólanefndar skólans í tólf ár. Þá var hann formaður Rauðakrossdeildar Skagafjarð- ar 1984-1998 og í héraðsnefnd Skagafjarðarprófastdæmis 1987-1994. Einnig átti Gísli sæti í Æskulýðsnefnd þjóð- kirkjunnar um fimm ára skeið og í fermingarstarfanefnd Þjóðkirkjunnar í fjögur ár. Jafnframt var hann í stjórn Prestafélags Íslands í fjögur ár, þar af þrjú sem varaformaður. Gísli hefur einnig komið mikið að félagsmálum í héraði. Hann sat í barnaverndarnefnd Skaga- fjarðar í fjögur ár og jafn lengi gegndi hann formennsku í byggðasafnsnefnd. Þá hefur hann verið í stjórn Prestafélags hins forna Hólastiftis frá 1993. Eitt ár sat hann í stjórn Fisk- iðjunnar Skagfirðings og gegndi lengi formennsku í út- gáfunefnd Byggðasögu Skaga- fjarðar. Þá var hann formaður skólanefndar FNV í fjórtán ár og var í stjórn Trygginga- stofnunar árin 2004-2007. Eftir sameiningu sveitarfél- aganna í Skagafirði árið 1998 sat Gísli tvö kjörtímabil í sveitarstjórn. Var hann oddviti sjálfstæðismanna og forseti sveitarstjórnar mest allan tímann, formaður byggðaráðs seinna kjörtímabilið og gegndi ýmsum nefndar- og trúnaðar- störfum á þeim vettvangi. Í dag segist hann einkum koma að pólitíkinni á bak við tjöldin og til að mynda taka þátt í upp- stillingu á lista fyrir kosningar. Hins vegar segist hann aldrei hafa hugsað alvarlega út í að fara í þingmennsku, enda hefði það átt illa saman með störf- unum í Skagafirði. Gísli segist ekki hafa fundið fyrir því að prestsstarfið og pólitíkin ættu illa saman. „Fólkið í sveitinni hefur aldrei látið mig finna fyrir því að ég væri í einhverjum flokki. Enda lít ég bara á þetta eins og að vera í hreppsnefnd, að vera í sveitarstjórn, en það er ekki hægt að komast inn í sveitar- stjórnina nema í gegnum flokk. En mér finnst þetta meira vera þegnskaparvinna en pólitík. Þau voru líka vön þessu hér í sókninni,“ segir Gísli og vísar til þingmennsku föður síns. Hann segist gæta þess að vera aldrei pólitískur í predikunar- stólnum. „Þegar ég hætti í sveitar- stjórnarmálunum um 2006 var ég kosinn á kirkjuþing þar sem sitja tólf prestar og sautján leikmenn. Þingið starfar viku í senn á haustin og er stundum kallað saman þess utan. Frá 2010 hef ég einnig verið í kirkjuráði sem er yfirstjórn Þjóðkirkjunnar. Þar sitja tveir prestar, tveir leikmenn og biskup. Þar eru mánaðarlegir fastir fundir og stundum fundir þess utan. Ég hef verið meira í Þorbergur er fæddur 1984. Hann er smiður og er búsettur í Glaumbæ 2 ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum og eru þau með kúabú. Margrét er fædd 1986 og er framkvæmda- stjóri Landssambands kúa- bænda, búsett í Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum. Yngst er Aldís Rut, búsett í Reykjavík ásamt eiginmanni og tveimur börnum. Hún er að ljúka námi í guðfræði. Gísli var aðeins 25 ára þegar hann vígðist til Glaumbæjar- prestakalls. „Eftir á að hyggja var maður bara krakki,“ segir hann og þau sýna blaðamanni brúðkaupsmyndina sem tekin er það sama ár. Frá því Gísli tók við embættinu hefur hann tvisvar farið í námsleyfi. Árið 1986 var fjölskyldan eitt vormisseri í Edinborg meðan hann stundaði nám við háskól- ann þar. „Síðan fékk ég námsleyfi veturinn 2007-2008 og var þá í Árósum í Dan- mörku,“ segir Gísli. „Ég var þar allan veturinn, nema ég kom heim um jólin en Þuríður fór oftar á milli. Þetta var mjög skemmtilegt nám og mér líkaði vel að búa þar ytra og taka þátt í lífinu Árósum. Svo var maður að reyna að æfa dönskuna og rifja hana upp, það var ákveðin áskorun. Flestir sem fara til Danmerkur halda að þeir kunni dönsku en fljótlega kemur í ljós að það er erfitt að skilja Danina. Mér líkaði vel við Danina og við förum oft til Danmerkur og eigum góða vini þar,“ segir hann. „Við erum svolítið dönsk í okkur,“ bætir Þuríður við. Gísli segir námið í Edinborg eingöngu hafa verið guðfræði en í Árósum bætti hann við sig námi í listasögu. „Þetta var áhugamál sem hafði alltaf blundað með mér. Ég kynntist listasögunni strax í MR, það var ágætur kúrs þar. Svo hefur maður alltaf haft áhugann og fór loks í Þuríður og Gísli á brúðkaupsdaginn árið 1982. Á landsleik Íslands og Frakklands á EM síðastliðið sumar. Vigdís Finnbogadóttir heimsótti Glaumbæ sumarið 1994 þegar styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur, sem stendur við kirkjuna, var afhjúpuð. MYNDIR: ÚR EINKASAFNI Börn Gísla og Þuríðar við Knappstaðakirkju árið 1994. Frá vinstri: Aldís Rut, Gunnar, Þorbergur og Margrét. 09/2017 7

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.