Feykir - 01.03.2017, Síða 8
Sóla. SJÁLFSMYND
þessu síðustu árin heldur en
pólitík og sveitarstjórnar-
málum,“ úrskýrir hann.
„Á þessu sérðu það að það
þurfti einhver að vera heima,
þannig að ég sleppti félags-
málunum,“ segir Þuríður þegar
upptalningunni lýkur. „Það
dugði mér að vera í kirkju-
kórnum og vera heima og sjá
um börn og bú.“ Hún segist
vera lítil félagsmála- og
fundamanneskja. „Tónlistin og
söngurinn eru mitt helsta
áhugamál, auk handavinnu.
Mér finnst alltaf jafn skemmti-
legt að reyna að búa eitthvað til
í höndunum“ segir hún. „Það er
líka heilmikið hlutverk að vera
afi og amma og þarf að sinna
því, bæði hér og fyrir sunnan,“
bætir Gísli við og Þuríður tekur
undir að það sé frábært að hafa
tækifæri til þess.
Ferðamennirnir
banka stundum upp á
Glaumbær er vinsælasti
viðkomustaður ferðamanna í
Skagafirði, enda er gamli
torfbærinn þar stór hluti af
Byggðasafni Skagfirðinga og
hann heimsækja tugþúsundir
ferðamanna á ári hverju. „Við
finnum fyrir auknum þunga
ferðamanna og hér er alltaf
mikið líf og fjör á sumrin,“ segja
þau Þuríður og Gísli. Sumir
banka upp á hjá þeim og halda
að prestssetrið sé hluti af
safninu en þau segja lítinn ama
af því. Sjálfur sat Gísli í
Byggðasafnsnefnd Skagfirð-
inga, m.a. lengi sem formaður,
fyrir sameiningu sveitarfélag-
anna í Skagafirði. „Á þeim
árum var verið að byggja safnið
upp í núverandi mynd og flytja
Áshús og Gilsstofu á staðinn.
Maður sá alltaf fyrir sér að
safnið yrði dálítið sjálfbært og
færi með tímanum að gefa
eitthvað af sér. Við höfum alltaf
litið jákvætt á að efla staðinn
sem ferðamannastað,“ segir
hann. Glaumbæjarkirkja stend-
ur ferðamönnum einnig opin, á
sama opnunartíma og safnið.
„Langflestir sem koma á svæðið
fara einnig í kirkjuna,“ segir
Gísli, en núorðið hafa þau
hjónin umsjón með því að opna
kirkjuna daglega.
Gísli og Þuríður hafa verið
samfleytt í Glaumbæ síðan þau
fluttust þangað 1982, ef undan
eru skyldir tveir vetur sem þau
fluttu á Sauðárkrók. Sr. Hjálmar
Jónsson fékk leyfi frá Sauðár-
króksprestakalli og settist á
alþingi haustið 1995. Fyrsta
veturinn þjónaði Gísli söfnuð-
inum frá Glaumbæ en síðan
fluttust þau á Krókinn haustið
1996 og voru þar í tvö ár. Árið
1998 sagði svo sr. Hjálmar
prestakallinu lausu og auglýst
var eftir sóknarpresti. Fluttist
fjölskyldan þá aftur í Glaumbæ
en hann hafði þjónað presta-
kallinu ásamt Sauðárkróki. „Við
höfum því verið hér alveg,
nema þessi tvö ár. En ég hef átt
lögheimili í Glaumbæ frá því ég
fæddist,“ segir Gísli.
Gísli og Þuríður segjast
kunna vel við sig í Glaumbæ.
„Ef það hefur komið upp
einhver hugmynd um að fara
eitthvað annað eða gera eitthvað
annað þá hefur niðurstaðan
orðið sú að okkur liði það vel
hérna að ekki væri ástæða til að
breyta til,“ segir Gísli, og bætir
við að það sé ekki síður Þuríður
sem hafi tekið miklu ástfóstri
við staðinn. „Það er alveg
frábært að búa hérna. Einstakt
nágrenni og gott mannlíf. Svo
erum við bara svo vel í sveit sett.
Það er mikil fegurð og víðsýni
hérna, bæði niðri á Eylendinu
og upp til fjalla. Hér er veður-
blíða, engin ófærð eða snjór.
Það er bara ekki undan neinu
að kvarta,“ bætir Þuríður við.
„Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að vera hérna og okkur
hefur liðið vel og líkað vel
hérna,“ segja þau að lokum.
Gísli í sextugsafmæli sínu í desember síðastliðnum ásamt systkinum sínum;
Margréti, Arnóri, Ólafi og Gunnari. MYND: ÚR EINKASAFNI
8 09/2017
Hvernig nemandi varstu? Bara
ágætur held ég, en fékk þó einhvern
tímann umsögn í grunnskóla um að
vera óþarflega málgefin. En á síðari
stigum skólagöngu var vandamálið
frekar á hinn veginn og var þá of
mikið til baka. Maður getur aldrei
gert öllum til geðs.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? Ég vil nú ekki blóta
í þessu viðtali en það er sko alveg
tilefni til. Ekkisens fermingarfötin eru
nú það sem stendur upp úr þessum
ágæta degi því miður. Ég hafði
ekkert um að segja hvernig þau litu
út en þetta var hin hroðalegasta
brúna buxnadragt með axlapúðum
í yfirstærð.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Dýralæknir, aldrei
neitt annað en dýralæknir og langar
það ennþá en er líklega að verða of
sein...þótt ég sé reyndar ekki orðin
stór....
Hvað var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki? Ég
man ekki eftir neinu sérstaku
uppáhaldi. En ég var aldrei mikið
fyrir dúkkur, held það hafi frekar
verið Legó eitthvað sem mig minnir
að hafi kallast Mekkanó. Á sumrin
lékum við bróðir minn okkur mikið
í búinu okkar og svo smíðuðum
við fleka sem við sigldum á um
Áshildarholtsvatnið, Lómatjörnina
og Miklavatnið. Á veturna voru það
skautarnir og sparksleðinn sem eru
minnisstæðastir.
Besti ilmurinn? Nýslegið gras,
lykt af snoppu á hesti og lykt af
ungbörnum. Get ekki gert upp á milli
held ég.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Ég var óskaplegur
rokkhundur og er svo sem enn og á
þessum tíma var hlustaði ég mikið á
Metallica, Ozzy, Queen og Red Hot
Chilli Peppers. Svo dýrkaði ég líka
Prodigy á þessum tíma.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? Ég myndi nú seint syngja
í kareókí sökum hæfileikaskorts en
ef ég hefði hæfileika þá held ég að
ég fengi gríðarlega mikið út úr því að
syngja Since I've Been Loving You
með Led Zeppelin.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Má segja veðurfréttir?
Mér er alla vega oft strítt á því hvað
ég er upptekin af veðurfréttum. En
fyrir utan þær þá missi ég ekki af
náttúrulífsmyndum og hvers kyns
vísindaþáttum. Svo finnst mér
breskir krimmar og danskar svartar
gamanmyndir fínasta efni sem ég
missi ekki af.
Besta bíómyndin? Rosalega erfið
spurning. Ég held alltaf upp á Stellu
í orlofi, sem er svolítið merkilegt því
íslenskar myndir hafa ekki höfðað
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Sólveig Olga Sigurðardóttir, eða bara Sóla eins og afi gamli
tók upp á að kalla mig barnunga og festist strax við mig.
ÁRGANGUR: 1973.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er gift Arnari Kjartanssyni og á dæturnar
Sunnu Líf (19) og Katrínu Sif (11) ásamt bónusdrengum Orra (22).
BÚSETA: Birkihlíðin á Króknum.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Dóttir Sigga og Gunnu á
Sjávarborg (eða réttara sagt Borgargerði en það kannast færri
við það nafn). Ég er alin upp á fjölskyldutorfunni hérna niður frá,
Sjávarborg.
STARF / NÁM: Ég starfa núna hjá Samtökum sveitarfélaga á Norður-
landi vestra. Ég er landslagsarkitekt að mennt og er í fjarnámi
núna í Garðyrkjuskólanum, mér til ánægju og yndisauka.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Úff það er nú ýmislegt, ætli það sé ekki einna
helst að trassa ekki skuldbindingarnar í námi, starfi og ekki hvað
síst gagnvart heimili og fjölskyldu. Og reyna svo að njóta þessa
alls í leiðinni.
Sóla
sérstaklega til mín. Svo dýrka ég
alveg I Kina spiser de hunde og
Gamle mænd i nye biler. Þessar
þrjár þarf ég að sjá reglulega til að
halda geðheilsunni.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Held það sé nú
bara íþróttaálfurinn dóttir mín.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? Pæli nú lítið í því en
kannski að þrífa baðherbergið og
þrífa eftir hundinn.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Sósur, segir eiginmað-
urinn, og marengstertur. Reyndar
myndi ég nú aldrei kalla það snilld
sem ég framkalla í eldhúsinu enda
finnst mér almennt leiðinlegt að
elda.
Hættulegasta helgarnammið?
Súkkulaði.
Hvernig er eggið best? Hrært.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Hvatvísi, óþolinmæði og
pirringur.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óheiðarleiki, hroki og
undirferli.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitn-
un? Vertu þú sjálfur ;o)
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Í kringum 3ja ára aldurinn
í eldhúsinu hjá ömmu og afa á
Sjávarborg sem mér fannst svo
rosalega stórt þegar ég var lítil.
Minningin er líklega ekki ein heldur
margar svipaðar þar sem ég var
eitthvað að dunda mér hjá ömmu.
Hljóðið í heitavatninu,skurk í pottum
og lykt af kaffi og kaffibrauði tengist
þessum minningum líka.
Hvaða teiknimyndapersóna höfð-
ar mest til þín? Kolbeinn kafteinn
finnst mér hafa skemmtilegan
orðaforða.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Æi, ég myndi
aldrei vilja vera fræg.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Ég held ég verði
að segja Þjóðsögur Jóns Árnasonar,
ég hef allavega oftast gripið niður
í þær frá því ég var krakki. Svo
finnst mér Stefán Máni og Steinar
Bragi skemmtilega drungalegir og
draumkenndir.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Ekkert eitt sem mér dettur
í hug en ég er víst frekar orðljót og
nota blótsyrði kannski óþarflega
mikið sem áhersluorð.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
Gandhi, með sinn magnaða friðar-
og kærleiksboðskap.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? Aftur í eldhúsið til
ömmu held ég bara.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
til Borneó eða Súmötru til að heim-
sækja fjarskylda ættingja mína,
órangútana, sem ég hef alltaf haft
mikið dálæti á.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Vasahníf og tvær bækur.
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til með að gera áður
en þú gefur upp öndina: Að verða
amma held ég að sé toppurinn, hitta
blessaða órangútanana og fara í
heimsreisu.