Feykir - 22.11.2017, Side 2
Hestamannafélags Neista fær
400.000 krónur vegna fram-
kvæmda nefndarinnar á næsta
ári og 300.000 krónur fær
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
vegna starfsemi kórsins. Þá
fær Ungmennafélagið Geisli
280.000 krónur til styrktar
starfsemi félagsins.
Meðal annarra málefna sem
tekin voru fyrir á fundinum var
fyrri umræða um fjárhags-
áætlun fyrir árið 2018. Sveitar-
stjóri kynnti áætlunina og farið
var yfir rekstur málaflokka,
eignarsjóðs og b hluta fyrir-
tækja. Fjárhagsáætlun var vísað
til síðari umræðu. /FE
Þann 16. nóvember 1807, fyrir 210 árum síðan, fæddist
pjakkur sem átti eftir að setja mark sitt á líf og listir
Íslendinga allt fram á okkar daga. Á sinni stuttu ævi samdi
hann mörg ljóð sem enn eru í fullu gildi og mörg hver
sungin við hin ýmsu tæki-
færi. Hann gaf löndum
sínum góða innsýn í nátt-
úrufræði og alheimsvísindi.
Þýddi bækur og rit yfir á
Íslensku og vegna orða-
þurrðar íslenskunnar í garð
vísinda sem dægurmála
þurfti hann að semja mý-
mörg nýyrði svo almenn-
ingur skildi hvernig hlutirnir
virkuðu.
Þið eruð eflaust búin að geta upp á því við hvern er átt hér.
Jú, það er Jónas Hallgrímsson, en Dagur íslenskrar tungu,
sem haldinn er hátíðlegur á fæðingardegi hans, var í síðustu
viku. Ef við ætlum að halda nafni hans á lofti og þar með að
halda íslenskunni lifandi, þurfum við einmitt að staldra við
á þessum degi og kynna okkur verk hans og ekki síst að efla
áhugann hjá unga fólkinu til að kynna sér það sem eftir
hann liggur. Það er ekkert víst að það klikki.
Ég spurði ungling hvort hann vissi hverjum dagurinn
væri tileinkaður. Unglingurinn var ekki alveg viss og þorði
ekki að skjóta á svarið af ótta við að svara vitlaust. Ég varð
hissa og spurði í forundran: „Veistu ekki hver Jónas var?“
En aumingja barnið hafði ekki séð ástæðu til að kynna sér
manninn hvað þá verk hans og skólinn ekki búinn að fara í
það verkefni. Þannig að nú stóð það upp á mig að gera það.
Ég hugsaði hvernig ég gæti vakið athygli á 200 ára gömlum
manni hjá 15 ára unglingi. Spurningin var hvort ég ætti að
nefna ljóðin, nýyrðin, stjörnufræðina eða blaðaútgáfuna, ég
var ekki viss. Svo mundi ég eftir Megasi þar sem hann
raulaði um skáldið Jónas:
Sauðdrukkinn úti í hrauni lá Hallgrímsson Jónas
og hraut eins og sögunarverksmiðja í Brasilíu.
Mamma komdu ekki með nefið þitt fína.
Það er nálykt af honum, þú gætir fengið klígju.
Það var sem sagt Megas sem vakti minn áhuga.
Ég sagði við unglinginn að Jónas hefði verið poppari síns
tíma enda mörg lög sem við syngjum enn í dag með textum
hans. „Ef Jónas væri tvítugur í dag væri hann frægasti
rappari Íslands,“ sagði ég af sannfæringu og sá strax eftir að
hafa líkt honum við þá listamenn. En ég þurfti að vekja
áhugann. Þess vegna skora ég á rappara landsins að rappa
um Jónas og kannski reyna við ljóðin. Gott að byrja á
Gunnarshólmanum!
Páll Friðriksson,
blaðamaður
LEIÐARI
Poppari fortíðarinnar
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Veitir styrki til ýmissa málefna
Húnavatnshreppur
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
kom saman til fundar þann 8.
nóvember síðastliðinn. Meðal
efnis á dagskrá fundarins voru
afgreiðslur á styrkbeiðni frá
ýmsum aðilum. Samþykkti
sveitarstjórn að úthluta
styrkjum til ýmissa verkefna
sem tengjast félagsstarfsemi,
menntun, menningu og fleiru.
Hæsti styrkurinn, ein mill-
jón króna, rennur til Textíl-
seturs Íslands á Blönduósi
vegna þjónustusamnings um
rekstur fyrir árið 2018. Sókn-
arnefnd Þingeyrarklausturs-
kirkju fær 500.000 krónur
vegna sumaropnunar kirkj-
unnar en forsenda fyrir fullum
styrk er að kirkjan verði opin
frá 1. júní til og með 31. ágúst
sumarið 2018. Reiðveganefnd
Í síðustu viku lönduðu 13 bátar á Skagaströnd
og var afli þeirra 286.581 kíló. Af þeim var
Steinunn SF 10 aflahæst með tæpt 181 tonn.
Níu skip og bátar lönduðu rúmum 789
tonnum á Sauðárkróki og á Hofsósi landaði
Ásmundur SK 123 1.416 kílóum. Ekki bárust
aflatölur frá Hvammstanga. Heildarafli vikunn-
ar var 1.077.433 kíló. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 12. – 18. nóvember 2017
Yfir þúsund tonn á land í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 1.416
Alls á Hofsósi 1.416
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landbeitt lína 8.700
Auður HU 94 Landbeitt lína 853
Álfur SH 414 Landbeitt lína 7.327
Bergur sterki HU 17 Landbeitt lína 2.034
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 823
Guðmundur á Hópi HU 203 Landbeitt lína 6.936
Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 7.575
Kambur HU 24 Landbeitt lína 818
Kári SH 78 Landbeitt lína 6.548
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 43.580
Magnús HU 23 Landbeitt lína 10.538
Steinunn SF 10 Botnvarpa 180.746
Stella GK 23 Landbeitt lína 10.103
Alls á Skagaströnd 286.581
SAUÐÁRKRÓKUR
Fjölnir GK 157 Lína 99.726
Grundfirðingur SH 24 Lína 48.918
Klakkur SK 5 Botnvarpa 129.485
Kristín GK 457 Lína 168.172
Málmey SK 1 Botnvarpa 172.655
Onni HU 36 Dragnót 5.272
Sighvatur GK 57 Lína 161.646
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.901
Vinur SK 22 Handfæri 661
Alls á Sauðárkróki 789.436
Þingeyrarklausturskirkja. MYND: NORTHWEST.IS
Kærur vegna skotæfingasvæðis
Blönduós
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála
hefur borist kæra frá Oddi Hjaltasyni og
Blomstra ehf. þar sem deiliskipulag fyrir
skotæfingasvæði á Blönduósi er kært en gefið
var út framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra
framkvæmda þann 26. september sl.
Blomstra ehf. og Oddur Hjaltason höfðuðu mál
fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra á hendur
Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra, íslenska
ríkinu, Skotfélaginu Markviss og til réttargæslu
Blönduósbæ. Ástæðan er sú að Úrskurðarnefndin
hafði þann 12. október sl. hafnað kröfum kærenda
um stöðvun framkvæmda við skotæfingasvæðið.
Í úrskurði ÚUA segir að kærendur byggi mál
sitt m.a. á því að sveitarstjórn hafi verið óheimilt að
samþykkja hið kærða deiliskipulag þar sem það
taki til svæðis utan sveitarfélagsins. Óásættanleg
hávaðamengun stafi af skotsvæðinu sem geti fælt
búfénað í landi kærenda. Þá sé óásættanlegt af
öryggisástæðum að skotsvæðið sé á opnu svæði
nálægt byggð og umferð bæði gangandi og ríðandi.
Skurður á skotæfingasvæðinu muni leiða til
óafturkræfra breytinga á landinu. /PF
Fyrirhugað skotsvæði Markviss.
MYND AF VEF BLÖNDUÓSBÆJAR.
2 44/2017