Feykir - 20.12.2017, Blaðsíða 5
48/2017 5
Takk fyrir okkur
3. flokkur kvenna fór til Hollands í sumar
Stelpurnar í 3. flokki Tindastóls
í fótbolta fóru í æfingaferð til
Hollands í sumar, nánar tiltekið
til Nijverdal sem er 30.000
manna bær í héraðinu
Overijssel. Það var ferðaskrif-
stofan Gamanferðir sem stóð
að knattspyrnuskólanum sem
ætlaður er stelpum á aldrinum
13-16 ára.
Skólinn stóð yfir dagana 13.
júlí – 27 júlí, á meðan Evrópu-
mót kvenna í knattspyrnu fór
fram en íslenska landsliðið var
þar á meðal þátttökuþjóða.
Auk þess að leika fótbolta,
bæta boltatæknina og hvetja
íslensku stelpurnar áfram á EM
var ýmislegt annað gert sér til
gamans og ánægju.
Ekkert gerist af sjálfu sér,
þess vegna stóðu stelpurnar
fyrir ýmsum uppákomum og
fjáröflunum til að leggja í
ferðasjóð mánuðina fyrir ferð-
ina. Nutu þær mikillar velvildar
í samfélaginu og voru einstakl-
ingar og fyrirtæki fús til að létta
þeim vinnuna.
Fyrir það eru stelpurnar
þakklátar og vilja koma kærum
þökkum til allra er lögðu hönd
á plóg með ósk um gleðileg jól
og farsælda á nýju ári. /PF
Fllottur hópur fótboltastelpna í Hollandi. MYNDIR: MARÍA DÖGG JÓHANNESDÓTTIR
Jóla barnaball Lions
Verður haldið á sal Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki fimmtudaginn 28. des. kl. 16:30
Allir hjartanlega velkomnir – börn og fullorðnir.
Nemendur í 10. bekk Árskóla syngja og dansa við jólatréð.
Jólasveinarnir koma með glaðning ... Hó-hó!
ÞAKKIR FYRIR STYRK OG STUÐNING:
Fisk Seafood – Steinullarverksmiðjan – Kaupfélag Skagfirðinga – Kaffi Krókur – Vörumiðlun – Skagfirðingabúð –
Sveitarfélagið Skagafjörður – Árskóli – Aldan stéttarfélag – Björgunarsveitin Skagfirðingasveit – Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra –
Rögnvaldur Valbergsson – 10. bekkur Árskóla – Nýprent – Feykir og velunnarar
Minnum Lions félaga á að mæta til undirbúnings miðvikud. 27. des. kl. 18:00.
LIONSKLÚBBURINN BJÖRK LIONSKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS
Heilög þrenning saman sat
sólin hópinn kyssti.
Á Maríu mey ég giskað gat,
en gafst upp á Drottni og Kristi.
Nú ég öllu útstáelsi hætti.
Eiginlega þannig á því stendur,
nú er konan sem ég kvöld eitt mætti
komin endanlega í tröllahendur.
AÐSENT : Hilmir Jóhannesson
Raunir ellilífeyrisþega
Það gerist líklega ekki á hverjum degi að fjórir
ættliðir syngi í sama kórnum en sú er nú
raunin í Kirkjukór Hólaneskirkju á
Skagaströnd.
Nýlega gekk til liðs við kórinn ung stúlka,
Sóley Sif Jónsdóttir, sem er aðeins 10 ára gömul.
Í kórnum syngja einnig langamma hennar,
Guðrún Sigurðardóttir, amma hennar, Hallbjörg
Jónsdóttir og föðursystir hennar, Jenný Lind
Sigurjónsdóttir. Það er trúlega ekki á hverjum
degi sem eins ungt fólk og Sóley gengur í
kirkjukór en móðir hennar, Hugrún Sif
Hallgrímsdóttir, sem er stjórnandi kórsins og
organisti, segir að Sóley hafi beðið lengi eftir því
að fá leyfi til að vera með enda hafi hún frá
fæðingu hlustað á móður sína æfa sig heima og
hún sé því orðin nokkuð vel að sér í sálmum
kirkjuársins. Hugrún segir að í báðum ættum
Sóleyjar sé mikið söngfólk og hafi ömmur
hennar, langömmur, langafar og fjöldi skyldfólks
sungið í kirkjukórum. Til gamans má geta þess
að Guðrún, langamma Sóleyjar, á þrjú systkin í
kórnum.
Kirkjukór Hólaneskirkju heldur úti öflugu
starfi, heldur jólatónleika, hefur farið í söngferð til
Kanada, haldið jazz- og poppmessur, staðið fyrir
námskeiðum og fleira. /FE
Söngelsk ætt á Skagaströnd
Fjórir ættliðir í sama kirkjukór
Sóley er á miðri mynd. Henni á hægri hönd er föðursystir hennar, Jenný, Hallbjörg, amma Sóleyjar er aftan við hana og
fremst, Sóleyju á vinstri hönd er langamma hennar, Guðrún. MYND: HUGRÚN SIF HALLGRÍMSDÓTTIR
Pósað í góða veðrinu í Hollandi.
Allar voru stelpurnar sammála um að vel hefði tekist til hjá Gamanferðum.