Feykir - 20.12.2017, Síða 12
12 48/2017
Anna Scheving er 68 ára
gömul húsmóðir, fædd og
uppalin á Reyðarfirði. Hún
hefur búið víða um land en
síðustu árin hefur hún átt
heima í Húnaþingi vestra, fyrst
á Hvammstanga í allmörg ár
en síðustu þrjú árin á
Laugarbakka sem er að
hennar mati algjör sælureitur.
Allt frá því að Anna lærði að
lesa í kringum fimm ára
aldurinn hefur hún haft yndi af
bóklestri og henni er minnis-
stætt frá barnæsku þegar faðir
hennar las fyrir heimilisfólkið
úr bók Alistairs MacLean,
Nóttin langa. Anna svaraði
nokkrum spurningum fyrir
Bók-haldið.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
Snúður og Snælda. Sennilega
voru Anna í Grænuhlíð og
Sesselja síðstakkur fyrstu stóru
bækurnar sem ég las.
Hvers konar bækur lestu helst?
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Hefur lesið bækur
Guðrúnar frá Lundi aftur og aftur
Anna Scheving / húsmóðir á Laugarbakka
Anna niðursokkin í ævisögu. MYND ÚR EINKASAFNI
Ég les helst ævisögur og
skáldsögur en aldrei ljóð eða
fræðibækur.
Hver er uppáhaldsbókin af
þeim sem þú hefur lesið
gegnum tíðina?
Ég hef lesið bækur Guðrúnar
frá Lundi aftur og aftur og á
örugglega eftir að lesa þær eina
ferðina enn.
Hver er þinn uppáhaldsrithöf-
undur og hvers vegna?
Tryggvi Emilsson. Það er
áhugavert að velta fyrir sér
tíðarandanum á þessum tíma
og því hve duglegur hann var
að koma sér áfram.
Er einhver bók sem þú hefur
lesið sérstaklega eftirminnileg
eða hefur haft mikil áhrif á
þig?
Held að það sé Fátækt fólk eftir
Tryggva Emilsson vegna þess
hvað það var farið illa með
hann og hvað karl faðir hans
var latur.
Hvaða bækur eru á nátt-
borðinu hjá þér þessa dagana?
Tvennir tímar Elínborgar
Lárusdóttur og svo reyfarar frá
Ásútgáfunni.
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni?
Ætli megi ekki segja það. Á
Bókasafninu á Hvammstanga
þar sem Guðmundur sér um að
halda mér við efnið.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð
(hér heima eða erlendis)?
Ég fer helst í Eymundsson til að
fá mér kaffi.
Hvað áttu margar bækur í
bókahillunum heima hjá þér?
Ekki margar, sennilega svona 20
bækur.
Hvað kaupirðu eða eignast að
jafnaði margar nýjar bækur
yfir árið?
Ég kaupi aldrei bækur.
Eru ákveðnir höfundar eða
bækur sem þú færð „alltaf“ í
jólagjöf?
Ég fæ aldrei bækur í jólagjöf.
Hefur einhver bók sérstakt
gildi fyrir þig?
Sennilega er það Biblía sem
hann pabbi minn eignaðist sem
barn. Hef aldrei lesið orð í henni
en þykir mjög vænt um hana.
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
Ætli Arnaldur eða Yrsa yrðu
ekki fyrir valinu.