Feykir - 20.12.2017, Qupperneq 19
48/2017 19
Kjör á Manni ársins 2017
Norðurland vestra
Eins og undanfarin ár stendur Feykir
fyrir kjöri á Manni ársins. Gefst
íbúum á svæðinu og öðrum
lesendum Feykis kostur á að velja úr
hópi þeirra sem tilnefndir voru af
lesendum. Í þetta skiptið bárust
fimm tilnefningar.
Hægt verður að greiða atkvæði á
vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í
pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550
Sauðárkróki. Kosningin hefst kl. 13 á
föstudaginn, 22. desember og lýkur kl.
12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar.
Tilnefndir eru:
Aldís Olga
Jóhannesdóttir
HVAMMSTANGA
Aldís Olga er tilnefnd
fyrir framlag sitt til
menningarmála til
samfélagsins í Húna-
þingi vestra. Hún hélt
úti farsælum vef-
miðli, Norðanátt.is, um tíu ára skeið.
Auk þess að vera í stjórn
Menningarfélags Húnaþings vestra -
sem hlúir að og styður við hvers kyns
menningarstarfsemi í Húnaþingi
vestra - hefur hún tekið virkan þátt í
skipulagningu og uppsetningu fjöl-
margra menningarviðburða í gegnum
árin. Hún er því vel að titlinum „Maður
ársins 2017“ komin fyrir ómetanlegt
framlag hennar til menningarmála og
ímyndarsköpun Húnaþings vestra og
fyrir að auðga samfélagið, segir í
tilnefningunni.
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Sigurður Líndal
Þórisson og
Greta Clough
HVAMMSTANGA
Hjónin Sigurður Líndal Þórisson og
Greta Clough á Hvammstanga fengu
saman tilnefningu og getur Feykir ekki
sett sig upp á móti því og hvað þá að
stilla þeim upp móti hvort öðru. Þeirra
tilnefning er vegna framlags þeirra til
menningar og atvinnulífs í Húnaþingi
vestra. Sigurður hefur sett upp leik-
sýningar á svæðinu og það nýjasta
Hérumbil, Húnaþingi sem frumsýnt
var í síðustu viku. Hann hefur einnig
haft frumkvæði sem formaður Ferða-
málafélags Húnaþings vestra og eflt
starf Selasetursins.
Greta hefur sett á stofn Handbendi
brúðuleikhús og ferðast með sýningar
víða t.d. sýninguna Tröll auk þess að
vera virk í öðru menningarlífi. Mikið
happ fyrir Húnaþing vestra að fá þau
hingað í samfélagið og reyndar fyrir allt
Norðurland vestra, segir í tilnefning-
unni.
Pálmi
Ragnarsson
GARÐAKOTI
Þó tilefnið sé á
alvarlegu nótunum
þá fékk Pálmi til-
nefningu til Manns
ársins vegna já-
kvæðni sinnar í
baráttu hans við krabbamein undan-
farin ár. Hann heldur lífsgleðinni og
kraftinum hvernig sem allt er. Það er
það sem ég dáist að og við ættum að
hafa til fyrirmyndar, segir í tilnefningu
Pálma.
Jóhanna E.
Pálmadóttir
AKRI, A-HÚN
Jóhanna er fram-
kvæmdastjóri Textíl-
setursins á Blönduósi.
Hún fær tilnefningu
fyrir dugmikið starf í
þágu menningar og
lista í Austur-
Húnavatnssýslu. Meðal annars hlaut
Prjónagleðin, sem hún á stóran þátt í
að koma á laggirnar, þann heiður að
vera valin sem eitt af verkefnum
Afmælisnefndar vegna 100 ára
fullveldis Íslands árið 2018. Jóhanna er
frábær leiðtogi og dugmikil til allra
verka, segir í tilnefningu hennar.
Ingvi Hrannar
Ómarsson
SAUÐÁRKRÓKI
Ingvi Hrannar er
kennsluráðgjafi í
upplýsingatækni og
skólaþróun í Sveitar-
félaginu Skagafirði og
Árskóla á Sauðár-
króki. Hann er einn
eftirsóttasti fyrirlesari landsins á sviði
upplýsingatækni og í haust hlaut hann
viðurkenningu á því sviði frá
tölvurisunum Google og Apple. Er
hann fyrstur Íslendinga til að hljóta
slíkan heiður. Íslendingar eiga í
framtíðinni eftir að njóta braut-
ryðjandastarfs Ingva Hrannars, segir í
tilnefningu hans.
- - - - -
Tökum þátt í skemmtilegri kosningu
og kjósum mann ársins á Norðurlandi
vestra!
Ingimar Pálsson á Sauðárkróki var
útnefndur maður ársins fyrir árið 2016.
Hann hefur verið duglegur að þjóna
börnum og unglingum í hestamennsk-
unni enda rekið reiðskóla í yfir 30 ár,
eða frá 1983 við fádæma vinsældir.
Í viðtali við Feyki í upphafi árs rifjaði
Ingimar upp að ein mamman sem hann
hitti hafi sagt sér að dóttir hennar hefði
verið á Litla-Rauð á reiðnámskeiði. Sjálf
hafði hún líka fengið Litla-Rauð til
afnota á sínum tíma og í ljós kom að um
var að ræða sama hestinn.
Ingimar Pálsson
Maður ársins 2016
Gleðileg jól 2017
Aðalgötu 21 • 550 Sauðárkróki
Sími 453 5050 • Fax 453 6021
www.stodehf.is • stod@stodehf.is
OPNUNARTÍMAR YFIR HÁTÍÐIRNAR
Lokað dagana 24., 25., 26. og 27. desember
Opið frá kl. 18:00 dagana 28., 29, og 30. desember
Lokað 31. desember og 1.-2. janúar
Opið eins og vejulega 3. janúar
Starfsfólk Hard Wok Cafe óskar viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári