Feykir - 11.07.2018, Blaðsíða 5
AÐSENT : Anna Jóna Guðmundsdóttir skrifar
Námsferð starfsfólks leikskólans Ársala til Brighton
Það var að morgni laugar-
dagsins 2. júní að 44 glað-
beittir starfsmenn leik-
skólans Ársala á Sauðárkróki
lögðu af stað í langþráða
námsferð til Brighton í
Englandi.
Við erum svo heppin hér á
Íslandi að eiga stéttarfélög
sem gera okkur það mögulegt
að sækja um náms- og
ferðastyrki til að geta farið í
námsferðir. Það tíðkast t.d.
ekki í Englandi. Ferðirnar eru
sem sé ekki greiddar af
sveitarfélögum heldur úr
sjóðum stéttarfélaga starfs-
manna. Öll greiðum við jú
umtalsverðar upphæðir mán-
aðarlega til okkar stéttar-
félaga og gleðilegt að við
skulum eiga rétt á slíkum
styrkjum. Í okkar tilfelli eru
þetta Kennarasambandið,
Kjölur og Aldan. Við getum
sótt um þessa hóp-ferðastyrki
á fjögurra ára fresti og það er
afar mikilvægt að við nýtum
okkur þau tækifæri til að auka
þekkingu okkar og víðsýni
með því að sækja okkur
fróðleik út fyrir heimahagana.
Þetta er hluti af
endurmenntun þeirri sem
leikskólanum ber að sjá til að
starfsmenn hans fái. Enda
viljum við hvorki vera
„heimsk og heimaalin“ né ala
hér upp fáfróð börn!
Í leikskólanum fer fram
metnaðarfull kennsla á
hverjum degi og börnin okkar
eru svo heppin að fá að njóta
allra þeirra gæða sem
leikskólinn býður upp á. Til
að geta farið í svona ferðir eru
skipulagsdagar yfirstandandi
skólaárs nýttir og sótt um það
til Fræðslunefndar að fá að
nýta þá með þessum hætti.
Foreldraráð leikskólans
leggur blessun sína yfir það
og þetta er kynnt með margra
mánaða fyrirvara. Að þessu
sinni nýttum við alla þrjá
skipulagsdagana fyrir skóla-
árið 2017-2018 í ferðina og
svo tóku allir starfsmenn tvo
orlofsdaga, þannig að
leikskólinn var lokaður í eina
viku af þeim fjórum sem
lokað verður í sumar. Það er
kannski líka rétt að taka það
fram að ferðalagið tók tvo
heila daga; laugardag sem
sannarlega er frídagur starfs-
manna og föstudagur sem var
orlofsdagur. En við gerum
okkur grein fyrir því að til að
geta farið í svona langt
ferðalag verða allir að leggjast
á eitt og gefa eitthvað eftir og
það telur starfsfólk Ársala
ekki eftir sér.
En aftur að ferðinni góðu
til Brighton. Heimsóttir voru
fjórir leikskólar og einn
„Primary school“ fyrir börn á
aldrinum 4-11 ára. Einn
leikskólanna var svokallaður
útileikskóli og annar var
einkarekinn og rekinn í anda
Reggio Emilia sem er ítölsk
uppeldisstefna og byggir á að
virkja frjálsa sköpunargáfu
barnsins. Þá voru heimsóttar
tvær fjölskyldumiðstöðvar,
farið á núvitundarnámskeið
og námskeið um Numicon-
kubba. En það eru kubbar
sem þykja góðir til að kenna
börnum undirstöðuatriði
stærðfræðinnar í gegnum
leik. Þannig að þau hafi
jákvæða upplifun af
stærðfræði og þar með
jákvæðara viðhorf til hennar
þegar þau koma upp í
grunnskólann. Það er bæði
áhugavert og jákvætt að
kynna sér nýjungar, sjá hvað
aðrir eru að gera og geta
dregið lærdóm af því. Það er
talsverður munur á skólastarfi
í Englandi og hér hjá okkur
enda þjóðfélagið ólíkt. Það
var áhugavert að heimsækja
fjölskyldumiðstöðvarnar og
fá kynningu á þeim. Þar er
efnaminna fólki boðið að
koma með börnin sín og leyfa
þeim að leika sér og hitta
önnur börn og foreldra í
barnvænlegu og þroskandi
umhverfi. Um er ræða fólk
sem býr jafnvel í einu herbergi
og hefur enga aðstöðu heima
fyrir hvorki til að leyfa
börnunum að leika né til að
elda mat. Það er því einnig
boðið upp á máltíðir á mjög
vægu verði í fjölskyldu-
miðstöðvunum. Á þeirri fjöl-
skyldumiðstöð sem undirrituð
heimsótti talaði forstöðukonan
um að 15 fjölskyldur fengju
ókeypis mat daglega hjá þeim.
Okkur sem saman voru í
þessari heimsókn rann þetta
svo til rifja að við gáfum 10
pund hver til að leggja í
matarsjóðinn. Forstöðukonan
varð svo hissa á gjafmildi
okkar að hún komst við en var
að sama skapi afskaplega
þakklát. Þegar maður heyrir
svona upptalningar á því hvað
margir eiga lítið sem ekki neitt
kemst maður við en fyllist á
sama tíma þakklæti yfir því
hvað við höfum það gott hérna
heima. Kannski má draga
þann lærdóm af þessu að vera
ánægðari með það sem við
höfum og áminning um að
gleyma ekki að sýna hvert
öðru vinsemd og umburðar-
lyndi.
Þau okkar sem heimsóttu
útileikskólann voru úti í skógi
allan daginn. Þau lærðu að
byggja skýli úr greinum og
sprekum og gera eldstæði.
Lærðu síðan að kveikja eld,
tálguðu, leiruðu sátu og
íhuguðu í náttúrunni og komu
alsæl tilbaka úr skóginum.
Reggio Emilia leikskólann
heimsóttum við seinni part
dags eftir að börnin voru farin
heim. Hann var í stuttu máli
sagt stórkostlegur! Rekinn af
hugsjónafólki í tveimur
fallegum eldri húsum á lóðum
hlið við hlið. Fjöldi barnanna
er svipaður og í Ársölum. Há
tré umlykja lóðirnar auk hárra
girðinga og lóðirnar eru aldrei
opnar öðrum en þeim sem í
leikskólunum dvelja. Þannig
að ekki er hætta á skemmdar-
verkum óviðkomandi aðila
eftir lokun á daginn því það
kemst enginn óviðkomandi
inn á lóðirnar. Þar voru grill-
stæði, drullubú, yfirbyggð
rannsóknarstofa/kennslustofa,
slökunarsvæði undir stórum
segldúk, stór matjurtagarður,
vatnstilraunasvæði og smíða-
svæði svo eitthvað sé nefnt.
Hugmyndafræði Reggio
Emilia gengur út á frjálsa
sköpun og að umhverfið hvetji
börnin til sköpunar á eigin
forsendum. Mikil áhersla er
lögð á uppeldisfræðilegar
skráningar. Í Westdene
Primary School er stór skóli
með börn á aldrinum 4-11 ára.
Þar voru það nokkrir af elstu
nemendunum sem tóku á móti
hópnum og sýndu skólann.
Það var áberandi hvað veggir
kennslustofanna voru hlaðnir
af ýmsum upplýsingum,
stöfum og listaverkum og
fannst hópnum þetta mikið
áreiti. Það virtist hins vegar
ekki hafa „óróleg“ áhrif á
nemendurna því það ríkti
mjög mikill agi í bekkjum með
25 nemendum og einn
kennara. Börnin voru afskap-
lega prúð og stillt, réttu upp
hönd og biðu í þögn eftir að
röðin kæmi að þeim. Meðal
yngstu barnanna var mikið
flæði í gangi, börnin gengu út
og inn á milli viðfangsefna
eins og þau vildu. Það virðist
vera einkennandi, einnig fyrir
hina leikskólana sem við
skoðuðum, að það er ekkert
verið að fara úr skónum og
sandur er út um allt sama
hvort um teppalögð eða dúkuð
gólf er að ræða. Það virðist
enginn gera neitt veður út af
því. Þarna voru flest börnin
annað hvort fyrir eða eftir
hádegi. En sum voru allan
daginn og komu þá með nesti
að heiman til að borða í
hádeginu.
Það sem einkennandi er í
leikskólunum sem við
skoðuðum er að flest börnin
eru einungis hluta úr degi
vegna þess að leikskólagjöldin
eru svo há. Þannig að til
undantekninga heyrir að börn
séu allan daginn í leikskóla
eins og tíðkast hér hjá okkur
heldur er stórfjölskyldan
virkjuð til að gæta barnanna á
móti leikskólatímanum. Öll
börn eiga rétt á þriggja klst.
gjaldfrjálsum leikskólatíma á
dag og það nýta foreldrar sér
og reyna svo að nota sem
minnst til viðbótar því það er
svo dýrt. Það eru þá helst þeir
efnameiri sem geta greitt fyrir
40 klst. á viku eða meira og
það getur kostað allt að
180.000 krónum fyrir
mánuðinn. Það voru ánægðir
starfsmenn sem komu heim
aftur að kvöldi 8. júní,
innblásnir af nýjum hug-
myndum úr afar vel heppnaðri
námsferð til Brighton.
Því miður virðist hafa orðið
sá leiði misskilningur meðal
einhverra bæjarbúa að starfs-
menn leikskólans hafi verið úti
á lífinu í Brighton á kostnað
sveitarfélagsins. Afskaplega
sem okkur þykir leiðinlegt að
svona jákvæð og góð ferð skuli
falla í skuggann af illu umtali.
Ég veit ekki hvað liggur að
baki slíku umtali en það er
greinilega byggt á þekkingar-
leysi. Þess vegna vil ég koma
því á framfæri að þátttaka og
virkni starfsmanna allra í
skólaheimsóknum og nám-
skeiðum var til fyrirmyndar í
ferðinni. Það er leitt að
einhverjir sjái ofsjónum yfir
því að ungt fólk skemmti sér
að afloknu dagsverki og komi
síðan af stað illu umtali um
það.
Fyrir hönd starfsfólks Ársala,
Anna Jóna Guðmundsdóttir,
leikskólastjóri.
27/2018 5