Feykir - 11.07.2018, Qupperneq 8
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gott að byrja að þessu sinni með fallegum
vísum eftir Konráð Vilhjálmsson.
Barmi þrái þínum hjá
þrýsta brá að hjarta,
heyra fá það hvísla, slá,
hringa-gnáin bjarta.
Hlýtt um varman háls á mér
hvíla armar nettir.
Þinn við barm að una er
allra harma léttir.
Ákaft langar okkur sjá
indæl gerður bauga
geisla undan beggja brá
brenna í sama auga.
Veit ekki um höfund að þessari.
Þegar eitthvað þjakar lund
þrýtur lífsins gaman.
Þá er gott að stytta stund,
stökur flétta saman.
Önnur kemur hér höfundarlaus.
Mig þótt græti meinsemd ný
minnst þó bæti trega,
ég vil mæta öllu því
ofur gætilega.
Helgi R. Einarsson mun hafa verið bjartsýnn
á vordegi.
Vel kom Ösp undan vetri,
nú virðist í holdum betri.
Hugguleg rjóð
og hæðin góð.
Töluvert meiri en metri.
Þá rifjar Helgi upp liðna tíð.
Slúður ýmsir segja
og sig í auðmýkt reigja.
En amma sagði
og til lagði.
„Oft er best að þegja.“
Ögn um ást frá Helga í næstu limru:
Þér glæsilegt útlit er gefið
sagði Gísli við Unu með kvefið.
Þá kyssti hún hann
sinn hjartkæra mann,
hnerraði og saug upp í nefið.
Nú á vordögum hefur orðið talsverð umræða
vegna gjaldtöku á fiskveiðiréttindum
útgerðarmanna. Næsta vísa Davíðs Hjálmars
tengist þeirri starfsemi.
Útgerðin stendur sig, heiðvirð og horsk
á Halanum gengur það skafið.
Hún kolmunna veiðir, karfa og þorsk
og kastar svo aftur í hafið.
Næsta limra Davíðs Hjálmars mun trúlega
ort nokkru áður en fréttast fór um kaup á
hlut í Granda af útgerðarrisanum Brimi.
Um fiskinn af kunnáttu keppa
þeir kasta og mokafla hreppa
en einkum hjá Brimi
af afburða fimi
þeir iðka að veiða og sleppa.
Vísnaþáttur 716 Það mun hafa verið morgunsöngl í þröstunum sem varð kveikjan að þessari
vísu Ingólfs Ómars.
Blístrar fugl á birkigrein
blíðan söng mér færir.
Syngur burtu sorg og mein,
sinnið endurnærir.
Ekki klikkar hringhenduformið í næstu vísu
Ingólfs..
Gleði borið getur art,
greikkað spor til muna.
Eykur vorið yndisbjart
orku þor og funa.
Jakob Thorarensen orti margt fallegt á sinni
tíð. Held að þessar snilldarvísur séu allar
eftir hann.
Brott er flest og þorrið þor
þess er fyrr ég unni.
Furða er samt hve vorsól vor
vermir í minningunni.
Bleika sé ég mörk og mar
minna æskutíða,
skrýtilega skiptast þar
skuggar, hregg og blíða.
Sú er kunnust lífsins list
að láta þræði rakna,
allt, sem vinnst, er óðar misst
einskis skal þó sakna.
Áfram skal haldið með fallegar og vel gerðar
vísur. Jón Magnússon, sem mig minnir að
hafi verið kallaður Bláskógaskáld, mun hafa
ort þessar.
Tak þú völdin, unga öld
áður kvöldið fer til dóma.
Sinufölduð klungrin köld
knýttu tjöldum ilman blóma.
Heyr þig kalla sól og söng
sumarhallir draumaviðar.
Syng burt alla sorg og þröng
syng þú fjalli gras í hlíðar.
Ýmsir hafa hér í nágrenni undirritaðs hælt
því vori sem nú er liðið. Get ekki tekið
undir það og tel maí nú í vor með þeim
verstu síðan ég hóf búskap. Fór síðasta dag
júní nú 2018 upp á fjall hér heima ásamt
góðum nágranna til þess að slétta undir
girðingu. Urðum frá að hverfa vegna bleytu
í melum og klaka sem við brutum reyndar
í einni þúfu sem úr varð þrjú klakastykki
á stærð við þokkaleg fólksbílsdekk. Að
þessu sögðu rifjast upp vísa sem er ættuð
úr Þingeyjarsýslu, gæti verið eftir Indriða
á Fjalli, er þó ekki viss. Bið lesendur um
upplýsingar.
Fénaðurinn féll úr hor
fölna blóm og visna greinar.
Þakki svo drottni þetta vor
þeir sem að vita hvað hann meinar.
Veriði þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) frida@feykir.is
Hverju missirðu helst
ekki af í sjónvarpinu?
Hættur að horfa á
línulegt sjónvarp. Horfi
þegar mér hentar og þá
kemur Netflix sterkt inn.
Besta bíómyndin? The
Red Violin. Mögnuð
saga.
Hvaða íþróttamanni
hefurðu mestar mætur
á? Þeim sem kunna að
taka tapi.
Hvað gerir þú betur en
allir aðrir á þínu heimili? Ég virðist vera sá eini sem kann
á uppþvottavélina.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Spaghetti
Bolognese a la JEB. ,,The secret lays in the sause”.
Hættulegasta helgarnammið? Pizzan.
Hvernig er eggið best? Í Omilettunni a la JEB.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Á stundum
erfitt með að skipuleggja mig. Mjög pirrandi fyrir þá sem
eru í Steingeitarmerkinu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Baktal
og óheiðarleiki.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun?,,Þögn er betri en
þarflaus ræða”.
Hver er elsta minningin sem þú átt? Hún er góð.
Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera?
Ekki viss um að það sé eftirsóknarvert að vera einhver
frægur. Hins vegar á ég fyrirmyndir sem eru kannski ekki
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Jón Egill Bragason
ÁRGANGUR: 1968.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Einstæður m/2 börn.
BÚSETA: Það er gott að búa í Kópavogi.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Freyjugatan
og Birkihlíðin í 550. Frumbyggir í efra hverfinu
þegar allir þekktu alla þar. Bragi Haraldsson og
Eygló Jónsdóttir eru foreldrarnir.
STARF/NÁM: Viðskiptafræðingur frá HR og starfa
hjá Arion banka hf.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Að ferðast ennþá meira erlendis
og þá helst til landa sem bjóða upp á sól.
Hvernig nemandi varstu? Bara nokkuð góður og fallegur
en það er bara mín skoðun.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Veislan.
Þegar heimilinu var breytt hreinlega í veitingastað og fullt
af fólki að samgleðjast með fjölskyldunni.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Tja, það
voru aldrei nein plön en menntun var alltaf á dagskránni.
Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst
krakki? Reiðhjólið….enda fór það svo að ég kenndi
Spinning í mörg ár.
Besti ilmurinn? Þegar mér tekst að elda eitthvað gott.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Úff,
ekki hugmynd. Þótti mjög skrítinn, var að vera 18 ára
þegar ég tók bílprófið.
Hvernig slakarðu á? Sund, sauna og eimbað. Núllstillir
mann algjörlega.
Jón Egill
frægar en miklar hvunndagshetjur.
Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur?
Alæta á bækur og enginn uppáhalds.
Orð eða frasi sem þú notar of mikið ,,Eruð þið með
‘etta?”
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í
draumakvöldverð? Barack Obama, Vigdísi
Finnbogadóttur og John Fitzgerald Kennedy. Þetta fólk
myndi leysa öll heimsins vandmál og það í matarboði
hjá mér, Vá.
Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ekki
viss um að ég myndi þiggja svona boð. Fortíðin er liðin
og við breytum henni ekki auk þess sem við erum smátt
og smátt að þróast og lifa í betri heimi. Til hvers þá að
fara til baka? Myndi hins vegar þiggja boð um að sjá
inn í framtíðina t.d. árið 3000. Það væri svo forvitnilegt.
Kannski finnst fólki þá farsíminn jafn takmarkaður
samskiptamáti eins og okkur finnst bréfdúfur vera.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? “Eftir mínu höfði”.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún
færi, þá færirðu... í eyjahopp í Karabískahafinu.
Bucket list spurningin: Nefndu eitthvað þrennt sem
þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp
öndina:
1. Ferðast til framandi lands A.
2. Læra tungumál viðkomandi lands.
3. Fara aftur í lið 1 þegar búið er að mastera lið 2 og
byrja á landi B. Setja þetta síðan í endalausa lúppu með
hlaupandi bókstöfum í lið 1 og vona að ævin endist til.
Jón Egill Bragason.
MYND ÚR EINKASAFNI
8 27/2018