Feykir - 11.07.2018, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
27
TBL
11. júlí 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Varamaður Skagfirðings í
A-úrslitum á LM hestamanna
Landsmót hestamanna
Landsmót hestamanna var
haldið í Reykjavík dagana
1. - 8. júlí og lauk sl. sunnudag
með úrslitakeppni í hinum
ýmsu greinum. Verðlauna-
bikar í A-flokki gæðinga
verður áfram í stofunni hjá
Eyrúnu Ýr Pálsdóttur frá
Flugumýri í Skagafirði, sem
hampaði honum eftir síðasta
Landsmót, en sambýlis-
maður hennar, Teitur
Árnason, gerði sér lítið fyrir
og sigraði nokkuð örugglega
á hestinum Hafsteini frá
Vakurstöðum, sem keppir
fyrir hönd hestamanna-
félagsins Fáks. Eyrún landaði
7. sætinu á Sjóði frá Kirkjubæ
Á landsmot.is segir að
A-flokkur gæðinga sé ávallt
hápunktur Landsmóts
hestamanna og svo hafi
einnig verið nú. Keppnin er
ávallt mikil og hestarnir
einstaklega góðir og þegar
það er svo toppað með
frábærri reiðmennsku þá er
það einfaldlega veisla fyrir
augu áhorfenda.
Það vakti verðskuldaða
athygli að Sina Scholz,
Hestamannafélaginu Skag-
firðingi, náði 6. sætinu eftir
vasklega framgöngu gæð-
ingsins Nóa frá Saurbæ, en
þau fóru á Landsmót sem
varahestur/knapi. Eftir for-
keppni enduðu Nói og Sina
í 22. sæti með einkunnina
8,67. Í milliriðli náðu þau 7.
sæti með 8,73 sem fleytti
þeim í úrslit þar sem þau
kræktu í 6. sætið og enn
hærri einkunn eða 8,77.
Í unglingaflokki gerði
Júlía Kristín Pálsdóttir frá
Flugumýri vel er hún
landaði 3. sætinu á gæðingi
sínum Kjarval frá Blönduósi
með einkunnina 8,685. Júlía
og Kjarval voru í öðru sæti
eftir keppni í milliriðli með
8,52.
Í ungmennaflokki átti
Skagfirðingur tvo fulltrúa í
A úrslitum. Annars vegar
voru það Viktoría Eik
Elvarsdóttir og Gjöf frá
Sjávarborg og Guðmar
Freyr Magnússon á
Óskasteini frá Íbishóli.
Viktoría og Gjöf kræktu sér
í 5. sætið með einkunnina
8,54 en Guðmar og
Óskasteinn þurftu að hætta
keppni sem var sárgrætilegt
þar sem þeir urðu í 3. sæti í
milliriðli með einkunnina
8,60. Á FB-síðu Guðmars
kemur fram að Óskasteinn
hafi bitið sig í tunguna svo
blæddi úr. Hætt var að
blæða þegar þeir komu úr
brautinni og var allt í lagi
með hestinn strax á eftir.
Guðmar segir þetta atvik
eitt það allra leiðinlegasta
sem hann hafi lent í á
keppnisvelli. „Við félagarnir
vorum báðir í feikna gír og
ætluðum okkur að gera
góða hluti en svona er
keppnin, allt getur skeð. Það
jákvæða var að við komum
báðir út af mótinu
reynslunni ríkari og látum
þetta slys ekki á okkur fá,“
skrifar Guðmar.
Í barnaflokki náðu þau
Þórgunnur Þórarinsdóttir
og Grettir frá Saurbæ besta
árangri Skagfirðingsfélaga,
13. sætinu með einkunnina
8,65, og unnu sig upp um
tvö sæti frá milliriðlum
8,42.
Sina og Nói stálu
senunni
Sina segir að þau Nói hafi
ekki hitt á góðan dag í
úrtökunni hér fyrir norðan
og uppskáru „bara“ 8,49 í
A-flokki eftir forkeppni.
Það leiddi til þess að þau
komust ekki inn á Landsmót
fyrir félagið en Nói var
varahestur. Hann náði samt
frábærri einkunn í tölti,
7,20, og var á stöðulista 30
bestu tölthrossa landsins.
Seinni daginn á úrtöku og
félagsmóti unnu þau úrslitin
með 8,69 og urðu
félagsmeistarar Skagfirðings
í A- flokki.
Einn hestur var afskráður
úr A-flokki fyrir hönd
Skagfirðings stuttu fyrir LM
og þar með fengu þau Sina
og Nói sæti til að keppa.
„Á þriðjudaginn var
forkeppnin og gekk rosalega
vel hjá okkur, þó að Arion
væri í okkar riðli og þar
með mjög sterkur
samanburður. Við náðum
8,67 og 22. sæti eftir
forkeppni, sem þýddi að við
fengum að mæta aftur í
milliriðill sem fór fram á
fimmtudaginn. Hann
reyndist vera okkar dagur
og toppaði Nói enn og aftur,
8,73 og 7. sæti af 30 bestu
fimmgangshestum lands-
ins,“ segir Sina og bætir við
að sennilega hafi það komið
mörgum á óvart hversu vel
þau skemmtu sér og nutu
sín vel á vellinum.
„Úrslitin á sunnudaginn
voru rosalega skemmtileg
og Nói var með næsthæstu
einkunn fyrir töltatriði,
9,08. Í lokin náðum við að
bæta okkur um eitt sæti og
lentum í 6. sæti með
einkunnina 8,77. Hæsta
sem við höfum náð hingað
til.“
Sina segir upplifunina
ólýsanlega og tilfinninguna
stórkostlega að vera í A-
úrslitum í A- flokki á stærsta
móti á Íslandi. „Hesturinn
minn var æðislegur og alveg
eins og hugur minn. Ég er
rosalega stolt af honum og
okkar afreki á þessu móti.
Nú stefnum við bara á að
gera ennþá betur næst,“
segir Sina en Nói hefur
verið í eigu hennar sl. þrjú
ár. „Hann er aðalkeppnis-
hesturinn minn og hef ég
séð alfarið um þjálfun hans
og sýningar. Ég er einnig að
rækta undan honum og
mun hann taka á móti
merum í Miðsitju í sumar
og hægt að bæta við fleirum
eins og staðan er,“ segir Sina
að lokum. /PF
Guðmar Freyr Magnússon og Óskasteinn frá Íbishóli. MYND AF FB-SÍÐU ÍBISHÓLS
Sina Scholz og Nói frá Saurbæ vöktu mikla athygli fyrir vasklega framgöngu á Landsmóti hestamanna í Reykjavík.
MYND: ÁRNI RÚNAR HRÓLFSSON